Fréttablaðið - 02.04.2011, Qupperneq 86
2. apríl 2011 LAUGARDAGUR54 54
menning@frettabladid.is
Gamlar íslenskar munn-
mælasögur og kveðskapur
lifnar við í leiksýningunni
Gýpugarnagauli, sem
Möguleikhúsið frumsýnir í
Gerðubergi á morgun.
„Góðar sögur eiga alltaf erindi
óháð aldri. Það er hins vegar
okkar að finna flöt til að tengja
þær samtímanum og höfða til
krakka á okkar dögum,“ segir
Pétur Eggerz hjá Möguleikhúsinu
um Gýpugarnagaul, sem frumsýnt
verður í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi á morgun.
Gýpugarnagaul byggir á göml-
um íslenskum munnmælasögum
og kveðskap. Við efnissöfnun var
víða leitað fanga, í hljóðritasafni
Árnastofnunar sem og í rituðum
heimildum. Sögum sem lengi hafa
lifað í munnlegri geymd er flétt-
að saman við vísur og kvæði svo
úr verður eitt samfellt ævintýri
kryddað söng og hljóðfæraleik.
„Við renndum dálítið blint í sjó-
inn með þetta,“ segir Pétur, „án
þess að vita í rauninni hvernig við
ætluðum að útfæra þetta.“
Smám saman tók verkið á sig
mynd og var ákveðið að gera þjóð-
söguna um Gýpu, sem át allt sem
fyrir henni varð, að hryggjar-
stykki sýningarinnar. Auk henn-
ar koma við sögu Snæja snjótitt-
lingur, sem breytist í sólskríkju
þegar sólin hækkar á lofti, ris-
inn með gullhárin, prinsessan
Dettiklessa og fleiri furður. Allt
er þetta kryddað með vísum og
kviðlingum, söng og leik.
„Það er svo gaman með söguna
af Gýpu að hún er til í svo mörgum
útgáfum,“ segir Pétur. „Við erum
í rauninni bara að bæta við enn
einni útgáfunni, því galdur munn-
mælasagnanna er að þær eru ekki
til í endanlegri útgáfu, heldur
sífellt að breytast eftir tíðaranda
og tíma.“
Pétur vann handritið ásamt Sig-
rúnu Valbergsdóttur, sem jafn-
framt leikstýrir, en þeim til halds
og trausts var Rósa Þorsteinsdóttir,
þjóðfræðingur og rannsóknar-
lektor á þjóð-
fræðisviði hjá
Stofnun Árna
Magnússonar.
Umsjón tónlist-
ar er í höndum
Báru Gríms-
dóttur en leik-
mynd og bún-
inga hannar
Messíana Tóm-
asdóttir. Flytj-
endur verksins eru þrír, leikkonan
Alda Arnardóttir, söngkonan Þór-
unn Elín Pétursdóttir og tónlistar-
maðurinn Birgir Bragason.
„Við unnum handritið í náinni
samvinnu við þau,“ segir Pétur,
„og þau bregða sér öll í ólík hlut-
verk.“
Gýpugarnagaul verður sýnd
„jafn oft og þurfa þykir“ að sögn
Péturs. „Við gerum ráð fyrir
að sýna verkið allt að 200 sinn-
um. Það er eðli sýninganna hjá
okkur að ganga lengi. Við verð-
um í Gerðubergi í vor og sumar
en förum síðan á flakk með
haustinu.“ bergsteinn@frettabladid.is
Góðar sögur eiga alltaf erindi
PÉTUR EGGERZ
ÚR GÝPUGARNAGAULI Þjóðsagan af Gýpu er hryggjarstykkið í sýningu Möguleikhússins, en í henni segir frá Gýpu, sem var
sí svöng og át allt sem á vegi hennar vegi varð án þess að hirða um afleiðingarnar.
SPOTTARNIR Á ROSENBERG Hljómsveitin Spottarnir heldur sína árlegu vortónleika á Café Rosenberg við Klapparstíg þriðjudag-
inn 12. apríl klukkan 21. Hljómsveitin hefur nú starfað í sex ár og spilað og sungið á blúshátíðum, á tónleikum í miðbæ Reykjavíkur og á
landsbyggðinni. Hljómsveitin hefur frá upphafi lagt megináherslu á tónlist og texta sænska söngvaskáldsins Corneliis Vreeswijk. Einnig eru
á efnisskránni lög eftir Megas, Magnús Eiríksson, Magnús Einarsson, Woody Guthrie, Hank Williams og fleiri.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA AF LANDSBYGGÐINNI
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.
Þórður Tómasson í Skógum 90 ára
Skógasafn 60 ára
Í tilefni af 90 ára afmæli Þórðar Tómassonar í Skógum
þann 28. apríl næstkomandi og 60 ára afmæli
Skógasafns mun koma út ný og glæsileg bók eftir Þórð.
Bókin heitir Svipast um á söguslóðum og fjallar einkum
um og þjóðlíf og minjar í Vestur-Skaftafellssýslu og kynni
höfundar af fólki í héraðinu á seinni hluta 20. aldar.
Velunnurum Þórðar og safnsins býðst að skrá nafn sitt á
heillaóskaskrá fremst í bókinni honum til heiðurs.
Þeir sem óska að skrá nafn sitt á heillaóskaskrána fá bókina
með góðum afslætti, eða á kr. 5.990 í stað 7.490 og er
sendingarkostnaður innifalinn. Hægt er að panta bókina á
heimasíðu Skruddu, www.skrudda.is, senda tölvupóst
á skrudda@skrudda.is eða hringja í síma 552-8866, fyrir 15. apríl nk.
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 – 101 Reykjavík
S. 552 8866 – skrudda@skrudda.is
Rödd skynsemi
minnar segir já við
þessum samningum
hvernig sem ég hor
fi
á málið. Ég vil hjálp
a
til við að koma því
út úr heiminum me
ð
mínu atkvæði!
Guðmundur Oddur
Magnússon,
prófessor
„
“
Já er leiðin áfram!
Áfram-hópurinn eru þverpólitísk grasrótarsamtök fólks
sem telur að best sé fyrir okkur að ljúka Icesave málinu með samþykkt fyrir-
liggjandi samnings í þjóðaratkvæðagreiðslunni 9. apríl nk. Starf hópsins byggir
á frjálsum framlögum einstaklinga og fyrirtækja og sjálfboðavinnu fjölda fólks.
www.afram.is
50%
AFSLÁTTUR
TORTILLA M/OSTI OG
SKINKU, BORIÐ FRAM
M/SALATI. ÁÐUR 690.-
NÚ 345.-
TILBOÐIÐ GILDIR DAGANNA 1. - 17. APRÍL
ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8,
112 Reykjavík, sími 522 4500 www.ilva.is
mánudaga - föstudaga 11-18:30
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18
einfaldlega betri kostur