Fréttablaðið - 02.04.2011, Side 92
2. apríl 2011 LAUGARDAGUR60
Elizabeth Taylor virðist
ætla að kveðja með stæl.
Hún skilur eftir sig slóð
leyndarmála og auðæva og
það má búast við hörðum
deilum erfingja um hver
hljóti allt góssið.
Elizabeth Taylor andaðist á
sjúkrahúsi í síðustu viku og þar
með lauk merkilegum kafla í
sögu Hollywood. En þótt leikkon-
an væri horfin á vit feðra sinna
hefur hún enn talsverð áhrif út
fyrir eigin gröf. Leyndarmál
frægra Hollywood-stjarna, sem
Liz geymdi í hjarta sínu, eru
afhjúpuð.
Meðal þeirra leyndarmála er
saga James Dean, stórleikarans
sem lést langt fyrir aldur fram.
Taylor og Dean léku saman í
The Giant og urðu fljótt mikl-
ir vinir enda jafnaldrar. Dean
lifði hratt, elskaði hraðskreiða
bíla og reykti eins og strompur.
Samkvæmt vefsíðunni Huffing-
ton Post trúði Dean Taylor fyrir
sínum dýpstu leyndarmálum og
hann tók af henni það loforð að
saga hans mætti ekki koma fram
í dagsljósið fyrr en eftir daga
þeirra beggja. Þegar Dean var
ellefu ára missti hann móður sína
og var prestur fenginn til að leið-
beina honum gegnum sorgina. Sá
reyndist hins vegar vera úlfur í
sauðargæru því hann misnotaði
leikarann kynferðislega. „Við
töluðum mikið um þetta, vöktum
saman á næturnar. Þetta fylgdi
honum alla tíð, held ég,“ sagði
Taylor.
En það eru ekki bara leynd-
armál Hollywood-stjarna sem
Taylor geymdi því leikkonan
skildi eftir sig umtalsverð auð-
ævi. Samkvæmt Daily Mail eru
eignir hennar metnar á einn
milljarð dollara og hún er þar
með ein af fjórtán konum sem
státað geta af því. Taylor átti
glæsilegt safn skartgripa sem
metnir eru á 150 milljónir dollara
og þar að auki fjöldann allan af
húseignum, meðal annars glæsi-
villu í Los Angeles sem metin er
á 150 milljónir dollara.
Taylor gekk kirfilega frá erfða-
skránni og eignum hennar á að
skipta á milli barnanna hennar
fjögurra og þeirra góðgerðastofn-
ana sem hún hefur lagt nafn sitt
við. Hins vegar eru þegar risnar
upp miklar deilur milli barnanna
um hver eigi að erfa Taylor-veld-
ið því það mun áfram græða pen-
inga þrátt fyrir dauða leikkon-
unnar. Arden-fyrirtækið ætlar
til að mynda að framleiða við-
hafnarútgáfu af ilmvatni Taylor
og svo má fastlega gera ráð fyrir
því að varningur tengdur Taylor
eigi eftir að seljast eins og heitar
lummur. freyrgigja@frettabladid.is
Taylor kveður með stæl
LEYNDARMÁL Elizabeth Taylor bjó yfir leyndarmáli James Dean sem nú hefur verið
afhjúpað; Dean var kynferðislega misnotaður í æsku af presti skömmu eftir andlát
móður hans. NORDICPHOTOS/GETTY
Hjónaband leikkonunnar Kather-
ine Heigl og eiginmanns hennar,
Josh Kelley, gengur ekki nógu
vel, ef marka má fréttir The
National Enquirer. Tímaritið
greinir frá því að Kelley sé orð-
inn þreyttur á að hafa tengda-
móður sína stanslaust inni á
heimilinu.
„Josh er mjög þolinmóður
maður en hann er orðinn þreytt-
ur á því að koma alltaf í öðru
sæti á eftir Nancy, tengdamóður
sinni. Hún býr í næsta nágrenni
við þau hjónin en eyðir mestum
tíma sínum inni á heimili þeirra.
Hún ferðast meira að segja með
þeim þegar þau eiga frí og þetta
er farið að hafa áhrif á hjónalíf
þeirra,“ var haft eftir heimildar-
manni.
Heigl og móðir hennar eru ekki
aðeins bestu vinkonur, móðir
hennar er einnig umboðsmaður
Heigl og viðskiptafélagi og því
eyða þær umtalsverðum tíma
saman. „Þetta er of mikið fyrir
Josh. Hann verður stanslaust
pirraðri og honum líður eins og
hann sé kvæntur tveimur konum,
Katherine og móður hennar.“
Tengdó hefur slæm
áhrif á sambandið
ERFIÐLEIKAR Samband Katherine Heigl
við móður sína er farið að hafa slæm
áhrif á hjónaband hennar.
NORDICPHOTOS/GETTY
John Travolta hefur samþykkt
að leika hinn alræmda glæpafor-
ingja John Gotti í nýrri kvikmynd
um ævi hans. Travolta hefur verið
orðaður við hlutverkið í dálítinn
tíma og stutt er síðan fregnir bár-
ust af fundi hans og Johns Gotti
yngri. Hann hefur lagt blessun
sína yfir aðild Travolta að mynd-
inni, rétt eins og systir hans Vic-
toria. Myndin heitir Gotti: Three
Generations og leikstjóri verður
Nick Cassavetes. Travolta lék síð-
ast í hasarmyndinni From Paris
With Love þar sem Jonathan Rhys
Meyer lék á móti honum.
Travolta sem Gotti
LEIKUR GLÆPAFORINGJA John Travolta
leikur John Gotti í mynd um ævi hans.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI SKEMMTUN
Meiri Vísir.
TILBOÐ Á JOHN FRIEDA
HÁRVÖRUM!
Ódýrasti hluturinn fylgir með.
31. MARS.- 06. APRÍL