Fréttablaðið - 08.04.2011, Qupperneq 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
veðrið í dag
Sími: 512 5000
KÖNNUN Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn
bæta við sig fylgi en stuðningur við Samfylk-
inguna og Framsóknarflokkinn dalar sam-
kvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins.
Um 55 prósent tóku afstöðu til spurningar-
innar, en þriðjungur þeirra sem hringt var í
sagðist óákveðinn, eða sagðist myndu skila
auðu eða sitja heima í kosningum.
Alls sögðust 15 prósent þeirra sem hringt var
í óviss um hvað þau myndu kjósa yrði boðað til
kosninga. Tæplega 18 prósent sögðust myndu
sitja heima eða skila auðu. Um 11 prósent gáfu
ekki upp afstöðu sína. Þetta bendir til þess að
enn sé mikil óánægja með stjórnmálaflokka og
stjórnmálamenn meðal almennings.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi samkvæmt
könnuninni 44 prósent atkvæða og 29 þing-
menn yrði kosið nú. Stuðningur við flokkinn
mældist 41,2 prósent í könnun Fréttablaðsins
24. febrúar síðastliðinn.
Samfylkingin fengi 24,8 prósent atkvæða og
16 þingmenn. Fylgið dalar heldur frá síðustu
könnun Fréttablaðsins, þegar það mældist 26
prósent.
Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar
njóta Vinstri græn stuðnings 17,7 prósenta
landsmanna, sem myndi skila flokknum 12
þingmönnum. Stuðningur við flokkinn hefur
aukist frá síðustu könnun, þegar 15,7 prósent
sögðust styðja Vinstri græn.
Framsóknarflokkurinn mælist nú með stuðn-
ing 9,4 prósenta landsmanna, og fengi sex þing-
menn yrðu það niðurstöður kosninga. Stuðning-
ur við flokkinn mældist 11,7 prósent í febrúar
og hefur því fylgið dalað talsvert.
Hreyfingin fengi 4,1 prósent atkvæða og
næði ekki inn þingmanni yrðu það niðurstöður
kosninga. Alls sögðust 3,6 prósent styðja flokk-
inn í febrúar og því lítil breyting á stuðningi
við hann. - bj / sjá síðu 10
Föstudagur
skoðun 16
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
8. apríl 2011
82. tölublað 11. árgangur
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
H vannadalshnúkur er háleitt takmark hins hjólastólsbundna Leifs Leifssonar, þjónustu-fulltrúa í þjónustumiðstöð Vestur-bæjar. Þangað stefnir hann í lok maí eða byrjun júní. „Ég kný mig sjálfur upp á eigin handafli og fer 250 metra í einu, ferðafélagar mínir, sem eru úr Flugbjörgunarsveit Reykjavík-ur, færa akkeri með spili um þá vegalengd í senn og stinga því ofan í snjóinn. Ég spila mig svo áfram í átt að því á sérútbúnum stól sem verið er að þróa og smíða,“ segir hann er hann lýsir ferðamátanum. Farin verður Hnappavallaleið og ekið á bíl í um 400 m hæð, áleiðis upp að jökli. „Þetta verður ævintýraferð. Við ætlum okkur góðan tíma og munum tjalda á jöklinum,“ segir Leifur sem hyggur á að minnsta kosti eina æfingaferð á Snæfellsjökul áður. Leifur hefur verið lamaður í fótum alla sína ævi en hefur aldrei látið það stoppa sig. Hann þakkar samt líkamsræktarstöðinni Hreyfingu fyrir að gefa honum kraft og kjark í þessa fyrirhuguðu ferð. „Hreyfing gaf mér líkamsræktarkort og tveir þjálfar-ar þaðan vinna í sjálfboðavinnu við að þjálfa karlinn fyrir þessa ferð,“ segir Leifur. Kappinn er í Hjólastólasveitinni. Hún hefur það að markmiði vekja athygli á málefnum hreyfihamlaðra og annarra fatlaðra í þjóðfélaginu, auk þess að skemmta fólki og efla heilsu þess með hlátri. Þar lætur Leifur sitt ekki eftir liggja. „Ég ætla að vera með uppistand á toppnum og það verður frítt inn,“ segir hann glaðlega og bætir við: „Öllum er velkomið að mæta.“
gun@frettabladid.is
Leifur Leifsson þjónustufulltrúi ætlar á eigin handafli upp á Hvannadalshnúk og hafa þar uppistand.
Takmarkið
er hátt
Brokkolí inniheldur tvisvar sinnum meira C-vítamín en appelsína auk þess að vera einstaklega kalkríkt. Það er líka seleníum-auðugt en selen er talið virka fyrirbyggjandi á krabbamein. Brokkolí inniheldur talsvert af A- og D-vítamíni og hefur andoxunareiginleika.
föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 8. apríl 2011
Bergþóra
Guðnadóttir
konan á bak við Farmers Market
● Nýtt vefrit í l ftið
Íþróttahúsið við
Strandgötu á afmæli
Opnunarleikur FH og
Hauka endurtekinn 40
árum síðar.
tímamót 24
Betra brauð
með súpunni!
www.for lagid . i s
„Ótrúlega
grípandi.“
N o w
Ný bók eftir Dorothy Koomson,
höfund Dóttir hennar, dóttir mín
og Góða nótt, yndið mitt
Gemmér
Cocoa Puffs!
Sprengitilboð
Blaðsíða 11
Fylgi við Sjálfstæðisflokk og
Vinstri græn eykst lítillega
18 prósent myndu sitja heima eða skila auðu yrði kosið til Alþingis nú samkvæmt könnun Fréttablaðsins.
Um 15 prósent segjast óviss um hvað þau myndu kjósa. Fylgi Framsóknarflokksins og Samfylkingar dalar.
EFNAHAGSMÁL Már Guðmundsson
seðlabankastjóri sagði á ársfundi
Seðlabankans í gær að Íslendingar
stæðu á krossgötum í efnahags- og
peningamálum. Þar átti hann við
að nú væri óstöðugleiki og sam-
dráttur að víkja fyrir betra jafn-
vægi og efnahagsbata.
Már sagði einnig að Icesave-
kosningarnar gætu sett strik í
reikninginn.
„Verði niðurstaðan já munu
haftaafnám og lántökur ríkissjóðs
ganga fram eins og áformað er. Ef
Icesaves-samningunum verður
hafnað eru hins vegar vísbending-
ar um að stóru bandarísku mats-
fyrirtækin tvö ákveði að setja
lánshæfismat ríkisstjóðs niður
í spákaupmennskuflokk. Óvissa
er hins vegar um hversu sterk og
langvinn þessi áhrif yrðu.“
Í ræðu sinni sagði Árni Páll
Árnason, efnahags- og viðskipta-
ráðherra, að Seðlabankinn hefði
ekki enn gefið nægileg svör við því
sem aflaga fór fyrir hrun.
Málflutningur bankans sé enn „í
fjötrum persónuverndar þáverandi
formanns bankastjórnar“. Hann
lagði aukinheldur mikla áherslu á
að þjóðin tæki höndum saman við
endurreisn landsins. - þj
Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir efnahagshorfur fara batnandi:
Nei getur sett strik í reikninginn
FÓLK Sigurður Hjartarson, safn-
stjóri Hins íslenzka reðasafns
á Húsavík, mun formlega full-
komna safn sitt á reðrum
íslenskra spen-
dýra í dag.
Hann mun
þá stilla upp
eintaki sem
Páll Arason
ánafnaði safn-
inu að sér látn-
um.
Í samtali við
Fréttablaðið
sagðist Sigurð-
ur telja að nýjasta viðbótin muni
auka aðsókn á safnið.
„Þetta er síðasta eintakið sem
mig vantaði í íslensku spendýra-
fánuna og ég hef ekki trú á öðru
en að þetta bæti safnið og styrki
það.“ - þj
Nýr safngripur á Reðasafnið:
Safnið loksins
fullkomnað
SIGURÐUR
HJARTARSON
Á ferð og flugi
Rokksveitin Who Knew
spilar á Hróarskelduhátíð-
inni í sumar.
fólk 36
HLÝNANDI Suðvestan 5-10 m/s
með dálítilli vætu SV- og V-til.
Annars víða bjart veður. Hiti yfirleitt
á bilinu 5-13 stig.
VEÐUR 4
9
7
5 7
8
Óttast flótta
Laufey Guðjónsdóttir
segir óvissu ríkja um
kvikmyndagerð á Íslandi.
föstudagsviðtalið 12
9,4 4,1 44,0 17,7
Fj
öl
di
þ
in
gs
æ
ta
24,8
25
20
15
10
5
0
6
9
0 0
16
29
20
14
12
16
Ko
sn
in
ga
r
Samkvæmt könnun Fréttablaðsins 5. og 6. apríl 2011
Fylgi stjórnmálaflokkanna
Skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 dagana 23.
og 24. febrúar 2011 - fjöldi þingmanna og fylgi (%)
KR SIGUR KR-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta í gærkvöldi þegar þeir lögðu
Keflvíkinga að velli, 105-89. Stuðningsmenn KR voru að vonum ánægðir. - Sjá síðu 40 FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN