Fréttablaðið - 08.04.2011, Síða 3
ADVICE hópurinn telur hagsmunum Íslands best borgið með því að fella Icesave-lögin þann 9. apríl.
Auglýsingar og annað starf hópsins er greitt með frjálsum framlögum og vinnuframlagi sjálfboðaliða. Tölvupóstur: advice@advice.is
www.advice.is
Hvers vegna
segja þauNEI?
Á vefsíðunni www.advice.is má fi nna fjölmargar greinar eftir sérfræðinga sem og
áhugamenn um málið. Greinarnar fjalla um málið frá ýmsum hliðum, þar á meðal
viðskiptafræði, lögfræði, hagfræði, siðfræði. Hér er vitnað í nokkrar þeirra.
Ísland hefur sýnt sanngirni
í Icesave málinu
„Með neyðarlögunum færðum
við þeim 600 milljarða, en með
Icesave-samningunum tökum
við á okkur alla áhættuna,
sem þeim fylgir, hvort sem
er vegna ólögmætis laganna
eða bótakrafna almennra
kröfuhafa bankanna á hendur
ríkinu vegna tjóns sem af þeim
hlaust. Bretar og Hollendingar,
hins vegar, njóta alls ábatans.“
- Jón Gunnar Jónsson LLM
í lög- og hagfræði
Bretar og Hollendingar axla
enga ábyrgð samkvæmt
samningnum
„Fyrirliggjandi samningur
gerir ekki ráð fyrir að Bretar
og Hollendingar axli neina
ábyrgð. Þrátt fyrir það liggur
ljóst fyrir að eftirlitsaðilar
þessara ríkja fengu upplýs-
ingar um uppbyggingu inn-
stæðutryggingakerfi sins áður
en útibú Landsbankans voru
stofnuð í þessum löndum.“
- Aðalsteinn Jónasson,
hæstaréttarlögmaður
Nei er jákvætt
Víst er það skrýtið, virðist mér,
sem vilja jámenn ná fram:
Að hafa Icesave yfi r sér
áfram!
Þetta viðhorf vel ég ei,
viti og rökum fáklætt.
Við skulum segja nei nei nei.
Nei er jákvætt.
- Þórarinn Eldjárn rithöfundur
Að hengja bakara fyrir smið
„Talað er um, að til þess að
vinna traust verði Íslendingar
að standa við skuldbindingar
sínar. Það eiga Íslendingar að
sjálfsögðu að gera – eins og
aðrar þjóðir. En þjóðin hefur
ekki skuldbundið sig til þess
að greiða skuldir af þessu
tagi. Það hefur heldur aldrei
aukið virðingu nokkurs manns,
karls eða konu – því síður
heillar þjóðar – að láta undan
hótunum, svo ekki sé sagt
hótunum yfi rgangsmanna.“
- Tryggvi Gíslason fyrrverandi
skólameistari MA
Dómstólaleiðin er betri
„Mikið er þessa dagana
rætt um hvort fara skuli
„dómstólaleiðina“ í stað þess
að samþykkja Icesave III
samningana, sem svo eru
nefndir. Ég tel einsýnt að fara
skuli dómstólaleiðina enda
höfum við ekki miklu að tapa,
en höfum allt að vinna.“
- Reimar Pétursson,
hæstaréttarlögmaður
Losnar ekki við böggið
„Að samþykkja samninginn er
eins og að giftast leiðinlega
gæjanum til að hann hætti
að bögga þig. En ofan á allt
saman ætlar hann að fl ytja inn
til þín.“
- Lára Björg Bjarnadóttir,
sagnfræðingur
Icesave séð frá Bretlandi
„Að hafna Icesave sendir skýr
skilaboð um að almenningur
sættir sig ekki lengur við spillt
og ofvaxin fjármálakerfi . Þorri
fólks erlendis sem fylgist með
þessum málum mun fagna því
ef Íslendingar hafna Icesave.“
- Sveinn Valfells eðlisfræðingur
og hagfræðingur
Nennum við að standa á rétti
okkar?
„Þjóð sem ekki nennir eða
treystir sér til að standa á rétti
sínum gagnvart ólögmætum
kröfum annarra þjóða á sér
ekki bjarta framtíð.
Það er því fagnaðarefni að
íslenska þjóðin skuli fá tækifæri
til að hafna fyrirliggjandi
IceSave-samningi þann
9. apríl.“
- Ásta Hrund Guðmundsdóttir,
námsmaður og móðir
Kostnaður við dómstólaleið
iðulega ofreiknaður
„Fylgjendur samningsins tala
um mörg hundruð milljarða
aukakostnað við synjun í tilfelli
verstu mögulegu niðurstöðu
dómsmáls, en gleyma að
segja frá mörg hundruð
milljarða endurheimtum sem
myndu fást á móti. Þetta
útskýrir þann mikla mun sem
er á útreikningum mögulegrar
niðurstöðu frá nei og já
hliðinni.“
- Esther Anna Jóhannsdóttir,
viðskiptafræðingur