Fréttablaðið - 08.04.2011, Page 10
8. apríl 2011 FÖSTUDAGUR10
FRÉTTASKÝRING
Hvernig hefur fylgi stjórnmálaflokk-
anna þróast samkvæmt könnunum
Fréttablaðsins?
Stjórnarflokkarnir eru saman-
lagt með stuðning 42,5 prósenta
kjósenda og fengju samtals 28
þingmenn af 63 samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins.
Stjórnin myndi samkvæmt þessu
falla yrði kosið nú.
Alls tóku 54,5 prósent afstöðu
til spurningar um fylgi flokka í
könnuninni. Um 15 prósent þeirra
sem hringt var í sögðust óviss um
hvaða flokk þau myndu kjósa yrði
gengið til þingkosninga nú. Tæp-
lega 18 prósent sögðust myndu
sitja heima eða skila auðu og 11
prósent kusu að svara ekki spurn-
ingunni.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
sem fyrr með mestan stuðning.
Um 44 prósent þeirra sem afstöðu
tóku í könnuninni myndu kjósa
flokkinn yrði gengið til kosninga
nú. Stuðningur við flokkinn hefur
aukist um 2,8 prósentustig frá síð-
ustu könnun Fréttablaðsins, sem
gerð var 24. febrúar síðastliðinn.
Þetta er langt yfir 23,7 prósenta
kjörfylgi flokksins.
Yrðu þetta niðurstöður kosninga
fengi flokkurinn 29 þingmenn, en
fékk 16 í þingkosningunum 2009.
Samfylkingin fengi samkvæmt
skoðanakönnuninni stuðning 24,8
prósenta landsmanna yrði gengið
til kosninga nú. Það er 1,2 prósent-
um yfir fylgi flokksins í könnun
Fréttablaðsins í febrúar, en tals-
vert undir 29,8 prósenta kjörfylgi.
Fengi flokkurinn þennan stuðn-
ing í kosningum yrðu þingmenn
flokksins 16 talsins, en í síðustu
kosningum fékk Samfylkingin 20
þingmenn kjörna.
Vinstri græn njóta nú stuðnings
17,7 prósenta landsmanna sam-
kvæmt könnun Fréttablaðsins.
Fylgi flokksins hefur aukist um
tvö prósentustig frá síðustu könn-
un, en er enn talsvert undir 21,7
prósenta kjörfylgi flokksins.
Vinstri græn fengju samkvæmt
þessu 12 þingmenn, en flokkurinn
fékk 14 í síðustu kosningum.
Framsóknarflokkurinn tapar
fylgi milli kannana Fréttablaðs-
ins. Um 9,4 prósent styðja flokkinn
samkvæmt könnuninni. Það eru
um 2,3 prósentustigum færri en
samkvæmt könnun Fréttablaðsins
í febrúar. Framsóknarflokkurinn
fékk 14,8 prósenta fylgi í síðustu
kosningum. Samkvæmt könnun
Fréttablaðsins fengi Framsókn-
arflokkurinn sex þingmenn yrði
gengið til kosninga nú, en fékk níu
í síðustu kosningum.
Hreyfingin nýtur stuðnings 4,1
prósents þeirra sem afstöðu taka
í könnun Fréttablaðsins, sem er
lítil leg aukning frá síðustu könn-
un. Flokkurinn bauð ekki fram í
síðustu kosningum, en varð til með
klofningi Borgarahreyfingarinnar.
Flokkurinn er því með þrjá þing-
menn í dag, en næði engum manni
á þing yrðu niðurstöður kosninga
í takt við könnun Fréttablaðsins.
Hringt var í 800 manns dagana
5. og 6. apríl. Þátttakendur voru
valdir með slembiúrtaki úr þjóð-
skrá og skiptust jafnt eftir kyni og
hlutfallslega eftir búsetu og aldri.
Spurt var: Hvaða lista myndir
þú kjósa ef gengið yrði til kosn-
inga í dag? Ef ekki fékkst svar
var spurt: Hvaða flokk er líkleg-
ast að þú myndir kjósa? Ef ekki
fékkst svar var að lokum spurt:
Er líklegra að þú myndir kjósa
Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern
annan flokk? Alls tóku 54,5 pró-
sent afstöðu. brjann@frettabladid.is
Brjánn
Jónasson
brjann@frettabladid.is
FRÉTTASKÝRING: Niðurstaða skoðanakönnunar um Icesave-kosningarnar
FYLGI STJÓRNMÁLAFLOKKANNA
Heimild: Könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2
40
30
20
10
%
29,8
44,0
24,8
17,7
9,4
4,1
25
. a
pr
íl
20
09
28
. j
úl
í 2
00
9
15
. o
kt
. 2
00
9
7.
ja
nú
ar
2
01
0
18
. m
ar
s
20
10
23
. s
ep
t.
20
10
19
. j
an
. 2
01
1
24
. f
eb
. 2
01
1
6.
a
pr
íl
20
11
Ko
sn
in
ga
r
23,7
21,7
14,8
7,2
Stjórnarflokkarnir
langt frá meirihluta
Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn og Vinstri græna eykst en Samfylkingin og
Framsóknarflokkurinn tapa fylgi samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins.
Stjórnarflokkarnir eru samanlagt með 42,5 prósenta fylgi og 28 þingmenn.
Landsmenn virðast ætla
að hafna Icesave-samning-
um í kosningum á morgun
samkvæmt skoðanakönn-
un Fréttablaðsins. Nokkur
munur er á afstöðu fólks
eftir aldri, en enn meiri
eftir stuðningi við stjórn-
málaflokka.
Meirihluti landsmanna ætlar að
hafna Icesave-samningnum í þjóð-
aratkvæðagreiðslunni á morgun.
Þetta sýna niðurstöður skoðana-
könnunar Fréttablaðsins og könn-
unar MMR. Þetta er talsverður
viðsnúningur frá fyrri könnunum
sem sýndu að meirihluti ætlaði að
samþykkja samninginn.
Af þeim sem taka afstöðu í könn-
un Fréttablaðsins ætla 54,8 pró-
sent að hafna samningnum en 45,2
prósent ætla að samþykkja hann.
Könnunin var gerð dagana 5. og
6. apríl.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unar sem MMR gerði fyrir Stöð
2 dagana 4. til 6. apríl ætla 56,8
prósent að hafna samningnum en
43,2 prósent vilja samþykkja hann.
Munurinn á niðurstöðum þessara
tveggja kannana er innan eðli-
legra skekkjumarka.
Afstaða almennings hefur
sveiflast hart í átt að því að hafna
Icesave-samningnum. Í könnun
Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem
gerð var 23. og 24. febrúar sögð-
ust 61,3 prósent þeirra sem afstöðu
tóku ætla að samþykkja samning-
inn en 38,7 prósent sögðust ætla að
hafna honum.
Svarhlutfallið í nýjustu könnun
Fréttablaðsins var um 76 prósent,
sem telst vel viðunandi fyrir skoð-
anakönnun af þessu tagi, og nið-
urstöðurnar því vel marktækar.
Aðeins um 15 prósent þeirra sem
þátt tóku í könnuninni sögðust
enn ekki hafa gert upp hug sinn.
Atkvæði þessa hóps geta því skipt
úrslitum í kosningunum. Þá sögð-
ust 4,8 prósent ekki ætla að kjósa
eða ætla að skila auðu. Um 4,1 pró-
sent vildi ekki gefa upp afstöðu
sína.
Yngra fólk er líklegra til að
hafna Icesave-samningnum en
þeir sem komnir eru á eða yfir
miðjan aldur samkvæmt könnun
Fréttablaðsins. Alls sögðust 59,5
prósent fólks á aldrinum 18 til 49
ára ætla að hafna samningnum en
40,5 prósent ætla að samþykkja
hann.
Afstaðan snýst við hjá fólki 50
ára og eldra. Í þeim aldurshópi
ætla 52,6 prósent að samþykkja
Icesave-samninginn en 47,4 pró-
sent ætla að hafna honum.
Ekki var marktækur munur á
afstöðu fólks eftir kyni eða búsetu.
Mikill munur er á afstöðu fólks
til Icesave-samningsins eftir því
hvaða flokk það myndi kjósa í
þingkosningum yrði gengið til
kosninga nú.
Þannig ætla 67,7 prósent stuðn-
ingsmanna Sjálfstæðisflokksins
að hafna Icesave-samningnum en
32,3 prósent ætla að samþykkja
hann. Þetta er afstaða flokks-
manna þrátt fyrir að þorri þing-
manna flokksins hafi greitt samn-
ingnum atkvæði sitt á Alþingi, þar
á meðal Bjarni Benediktsson, for-
maður flokksins.
Hlutföllin eru svipuð meðal
stuðningsmanna Framsóknar-
flokksins. Af þeim sem kjósa
myndu flokkinn segjast 68,8 pró-
sent ætla að hafna Icesave-samn-
ingnum en 31,3 prósent ætla að
samþykkja hann.
Staðan er önnur hjá stuðnings-
mönnum stjórnarflokkanna. Alls
ætla 84,3 prósent stuðningsmanna
Samfylkingarinnar að samþykkja
samninginn en 15,7 prósent ætla
að hafna honum í þjóðaratkvæða-
greiðslunni. Þá ætla 73,8 prósent
stuðningsmanna Vinstri grænna
að samþykkja samninginn en 26,2
prósent ætla að hafna honum.
Atkvæði óákveðinna geta ráðið úrslitum
Níu af hverjum tíu ætla að kjósa
Ríflega 90 prósent af þeim sem afstöðu tóku í könnun Fréttablaðsins sögðu mjög
eða frekar líklegt að þau ætluðu að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave
á morgun. Verði raunin nærri þeirri tölu er það mjög mikil kosningaþátttaka í
sögulegu samhengi, eins og sjá má hér að neðan.
Stjórnlagaþingskosningar 27. nóvember 2010 36,8%
Þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave 6. mars 2010 62,7%
Alþingiskosningar 25. apríl 2009 85,1%
Alþingiskosningar 12. maí 2007 83,6%
Forsetakosningar 26. júní 2004 62,6%
■ Samþykkja ■ Hafna ■ Óákveðinn
■ Kýs ekki/Skila auðu ■ Svara ekki
45,2%
31,3%
68,7%
32,3%
67,7%
84,3%
15,7%
73,8%
26,2%34,4%
4,8%
4%
41,8%
15%
54,8%
Allir sem
taka afstöðu
Allir
Ætlar þú að samþykkja Icesave-samkomulagið eða hafna
því í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu þann 9. aprí?
Skoðanakönnun Fréttablaðsins 5.-6. apríl
myndu sitja
heima eða
skila auðu ef
kosið yrði til Alþingis nú
18%
Hringt var í 800 manns 5. og 6. apríl. Þátttakendur voru valdir með
slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega
eftir búsetu og aldri. Þátttakendur voru fyrst spurðir: Ætlar þú að samþykkja
Icesave-samkomulagið eða hafna því í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu
þann 9. apríl?
Þeir sem sögðust óákveðnir voru í kjölfarið spurðir: Hvort er líklegra, að
þú samþykkir Icesave-samkomulagið eða hafnir því? Spurt var tvisvar með
þessum hætti til að auka nákvæmni könnunarinnar. Alls tóku 76,1 prósent
afstöðu til spurningarinnar.
Spurt tvisvar til að auka nákvæmni
DALANDI STUÐNINGUR Um 42,5 prósent styðja flokka Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra og Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra samkvæmt könnun
Fréttablaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu
framkvæmdar
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtalin
framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum
samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. nr. 106-
/2000 m.s.br.
Sjóvarnargarður í Óslandi, Höfn í Hornafirði, Sveitar-
félaginu Hornafirði
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Lauga-
vegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna á
heimasíðu Skipulagsstofnunar:
www.skipulagsstofnun.is.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráð-
herra og er kærufrestur til 9. maí 2011.
Skipulagsstofnun