Fréttablaðið - 08.04.2011, Side 16

Fréttablaðið - 08.04.2011, Side 16
16 8. apríl 2011 FÖSTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 HALLDÓR Samninganefnd Íslands undir forystu Lee Buchheit hefur fært sterk rök fyrir því að Íslendingar staðfesti nýgerð- an samning um ríkistrygg- ingu á skuldbindingum inn- lánatryggingasjóðs í stað þess að hætta á málaferli. Höfnun samningsins mun tefja fyrir aðgengi íslenska ríkisins og innlendra stofnana að erlendu lánsfé sem er nauðsynlegt til þess að Ísland geti staðið á eigin fótum án aðstoðar Norð- urlanda og Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins. Væntanlegur kostnað- ur við samninginn er metinn á 30 milljarða króna sem er álíka upphæð og kostnaður við bygg- ingu tónlistarhússins í Reykja- vík eða sem svarar tíu vikna sparnaði þjóðarinnar um þess- ar mundir. Til þess að mæta óvissu um endanlegar byrðar ríkissjóðs er samningurinn sérstaklega gerður með það í huga að greiðslubyrðin verði ekki of mikil. Á móti mæla þau til- finningarök að ekki eigi að greiða skuldir eigenda Landsbankans. En þá gleymist að féð sem bankarnir dældu inn í íslenska hagkerfið skilaði sér í stóraukinni fjár- munaeign, betri skuldastöðu ríkissjóðs og góðum lífskjörum árin fyrir 2008. Eftir standa ný borgar- hverfi, vegir og sundlaugar sem erlendir kröfuhafar munu að verulegu leyti á endanum bera kostnað af. Það vill svo til að þeir sem ganga lengst í að mæla gegn samþykki samningsins eru margir hverjir sömu aðilar og gáfu ríkisbankana ævin- týramönnum og leyfðu þeim að skuldsetja sig svo mikið að tjón erlendra aðila vegna falls þeirra nemur yfir 7.000 millj- örðum króna sem er hærri upp- hæð en núvirt verðmæti fiskafla á Íslandsmiðum um alla framtíð margfölduð með þremur. Með því að samþykkja samn- inginn er ekki verið að greiða skuldir þessara óreiðumanna heldur að tryggja að það tjón sem þeir ollu erlendum innstæðueigend- um umfram íslenska verði bætt, svo end- urreisn efnahagslífsins geti haldið áfram í friði við nágranna okkar. Skynsemi eða tilfinningar? Icesave Gylfi Zoëga hagfræðingur Höfnun samningsins mun tefja fyrir aðgengi íslenska ríkisins og innlendra stofnana að erlendu lánsfé Námskeið við ræðukvíða Kvíðameðferðarstöðin stendur nú fyrir 6 vikna námskeiði við ræðukvíða. Námskeiðið byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og er miðað að þeim sem ræðukvíði truflar í daglegu lífi og starfi. Námskeiðið hefur þegar verið haldið tvisvar sinnum við mjög góðar undirtektir. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 23. apríl kl. 17 og stendur yfir í 6 vikur. Skráning fer fram hjá Kvíðameðferðarstöðinni í síma 534 0110/822 0043 eða með tölvupósti á kms@kms.is. Athugið að hámarksfjöldi þátttakenda á námskeiðinu er 12. K annanir benda nú til að fleiri muni hafna Icesave-samn- ingnum í þjóðaratkvæðagreiðslu á morgun en samþykkja hann. Ástæða þess að fólk ætlar að kjósa nei eru fjöl- margar og snúast ekki allar um efni kosninganna, sem er að ganga frá samkomulagi við bresk og hollensk yfir- völd um ríkisábyrgð á greiðslu til þeirra sem lagt höfðu fé inn á Icesave-reikningana í Bretlandi og Hollandi á lágmarkstryggingu innstæðueigenda úr Tryggingarsjóði innstæðueigenda á Íslandi. Fáir sem á annað borð vilja semja við Breta og Hollendinga um Icesave munu líklega segja nei vegna þess að þeim þykir fyrirliggjandi samningur ekki nógu góður. Þeir eru mun fleiri sem ætla að kjósa nei vegna þess að þeir vilja ekki að íslenskur almenningur ábyrgist skuldir Landsbankans. Íslenskur almenningur hefur þó þegar ábyrgst skuldir þess banka og annarra íslenskra banka vegna innstæðna á Íslandi. Sumir ætla að kjósa nei vegna þess að þeir líta svo á að þeir séu að greiða atkvæði gegn ríkisstjórninni og að einhverju leyti þeir sömu ætla að segja nei af því að þeir álíta að með því séu þeir að greiða atkvæði gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Um hvorugt af þessu er þó kosið á morgun. Afleiðingar þess að kjósa nei eru þó alltaf þær sömu. Nei-fólk hefur bent á að þrátt fyrir „hræðsluáróður“ hafi höfnun Icesave- samninganna fyrir ári ekki haft mikil áhrif á stöðu Íslands. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi haldið kúrsi gagnvart landinu og atvinnulífið hér hafi ekki hrunið til grunna. Sú staða sem nú er uppi er allt önnur. Þegar gengið var til atkvæða þá var samningurinn sem borinn var undir atkvæði þegar úreltur vegna þess að fyrir lágu drög að samningi sem var Íslendingum mun hagstæðari en sá sem kosið var um. Sömuleiðis lá fyrir afdráttarlaus vilji samningsaðila til áframhaldandi samn- ingaviðræðna. Í ljósi þessara staðreynda breytti atkvæðagreiðslan þá ekki miklu. Nú þegar ljóst er að samningaleið hefur verið reynd til þrautar er allt annað uppi á teningnum. Ef samningnum verður hafnað liggur fyrir tímafrek dómstólaleið, fyrst til að skera úr um hvort Íslendingum beri að ábyrgjast innstæðurnar, og ef sá dómur fellur okkur í óhag, mál á hendur okkur til að heimta féð. Niðurstaða dómsmálanna er ekki fyrirsegjanleg en í versta falli yrði Tryggingarsjóði gert að gera upp við erlendu sparifjáreigend- urna með sama hætti og þá íslensku. Í besta falli félli dómur okkur í hag. Þá eru þó ótalin óbein áhrif þess að hafna Icesave-samningnum. Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri benti í ræðu sinni á ársfundi bankans í gær á að vísbendingar væru um að stóru bandarísku matsfyrirtækin tvö myndu setja láns- hæfismat ríkissjóðs niður í spákaupmennskuflokk ef samningnum yrði hafnað. Óvissa um framtíðina hefur verið þung byrði frá hruni. Með sam- þykki Icesave-samninganna í atkvæðagreiðslunni á morgun væri einum óvissuþætti eytt úr endurreisnarstarfinu sem stendur yfir á Íslandi. Verði þeir hins vegar felldir verður óvissan förunautur þjóðarinnar enn um hríð með tilheyrandi lamandi áhrif á efnahags- líf og endurreisn. Óvissan gæti orðið förunautur enn um hríð. Afdrifaríkt nei SKOÐUN Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Klapplið í Háskólanum Forystumenn stjórnmálaflokkanna körpuðu um Icesave í háskólanum í gær. Sjálfstæðismenn virðast vera farnir að ókyrrast vegna málsins, því þeir sendu heljarinnar klapplið með formanni sínum. Þar voru Friðjón Frið- jónsson, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, þingmenn- irnir Tryggvi Þór Herbertsson og Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, varaformaðurinn Ólöf Nordal, framkvæmdastjórinn Jónmundur Guðmarsson og framkvæmdastjóri þing- flokksins, Svanhildur Hólm Valsdóttir. Ríkisstjórnar- flokkarnir létu nægja að senda aðstoðarmann forsætisráðherra og upplýsingafulltrúa fjármálaráðu- neytisins. Ferilskráin Talandi um Bjarna Benediktsson. Olíufélagið N1 hefur verið tekið yfir af lánardrottnum. Það safnaði slíkum skuldum í góðærinu að því tókst ekki að burðast með þær lengur en í tvö ár við nýjar aðstæður. Bjarni var sem kunnugt er stjórnarformaður N1 og móðurfélagsins BNT á árunum 2006 til 2008. Flestum þætti nokkur upphefð að því að vera treyst fyrir slíkum verkum. Það er hins vegar furðulegt að upplýsingar um þennan starfa er hvergi að finna í ferilskrá Bjarna á vef Alþingis. Upp í Icesave Fjármálaráðherra upplýsti í gærmorg- un að kostnaðurinn við Icesave-samn- ingaviðræðurnar hefði numið rúmum 300 milljónum. Svo vill til að um sama leyti var kveðinn upp fangelsisdómur yfir fyrrverandi ráðu- neytisstjóra ráðuneyt- isins og 192 milljónir í hans eigu gerðar upp- tækar. Þær duga til að greiða næstum tvo þriðju af reikningnum. stigur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.