Fréttablaðið - 08.04.2011, Page 25
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
H
vannadalshnúkur er
háleitt takmark hins
hjólastólsbundna Leifs
Leifssonar, þjónustu-
fulltrúa í þjónustumiðstöð Vestur-
bæjar. Þangað stefnir hann í lok maí
eða byrjun júní. „Ég kný mig sjálfur
upp á eigin handafli og fer 250 metra
í einu, ferðafélagar mínir, sem eru
úr Flugbjörgunarsveit Reykjavík-
ur, færa akkeri með spili um þá
vegalengd í senn og stinga því ofan
í snjóinn. Ég spila mig svo áfram
í átt að því á sérútbúnum stól sem
verið er að þróa og smíða,“ segir
hann er hann lýsir ferðamátanum.
Farin verður Hnappavallaleið og
ekið á bíl í um 400 m hæð, áleiðis upp
að jökli. „Þetta verður ævintýraferð.
Við ætlum okkur góðan tíma og munum
tjalda á jöklinum,“ segir Leifur sem
hyggur á að minnsta kosti eina
æfingaferð á Snæfellsjökul áður.
Leifur hefur verið lamaður í fótum
alla sína ævi en hefur aldrei látið
það stoppa sig. Hann þakkar samt
líkamsræktarstöðinni Hreyfingu
fyrir að gefa honum kraft og kjark í
þessa fyrirhuguðu ferð. „Hreyfing gaf
mér líkamsræktarkort og tveir þjálfar-
ar þaðan vinna í sjálfboðavinnu við að
þjálfa karlinn fyrir þessa ferð,“ segir
Leifur.
Kappinn er í Hjólastólasveitinni. Hún
hefur það að markmiði vekja athygli
á málefnum hreyfihamlaðra og
annarra fatlaðra í þjóðfélaginu, auk
þess að skemmta fólki og efla heilsu
þess með hlátri. Þar lætur Leifur
sitt ekki eftir liggja. „Ég ætla að
vera með uppistand á toppnum og það
verður frítt inn,“ segir hann glaðlega og
bætir við: „Öllum er velkomið að mæta.“
gun@frettabladid.is
Leifur Leifsson þjónustufulltrúi ætlar á eigin handafli upp á Hvannadalshnúk og hafa þar uppistand.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Takmarkið
er hátt
Brokkolí inniheldur tvisvar sinnum
meira C-vítamín en appelsína auk þess
að vera einstaklega kalkríkt. Það er líka
seleníum-auðugt en selen er talið virka
fyrirbyggjandi á krabbamein. Brokkolí
inniheldur talsvert af A- og D-vítamíni
og hefur andoxunareiginleika.