Fréttablaðið - 08.04.2011, Page 32
6 föstudagur 8. apríl
Bergþóra Guðna-
dóttir stofnaði fata-
merkið Farmers Market
árið 2005 ásamt eigin-
manni sínum, tónlistar-
manninum Jóel Pálssyni.
Hugmyndin var í senn að
hanna fatnað sem þau
sjálf mundu vilja klæð-
ast og endurspeglaði
íslenska arfleifð. Þau
byrjuðu smátt og með
tímanum hefur fyrir-
tækið vaxið og dafnað
og hönnun þess er nú
fáanleg víða um heim.
Viðtal: Sara McMahon
Ljósmynd: Valgarður Gíslason
B
ergþóra útskrifað-
ist frá Myndlista- og
handíðaskólanum
árið 1999 þar sem
hún hafði stundað
nám í textílhönnun. Eftir útskrift-
ina opnaði hún verslunina Aurum
við Bankastræti ásamt vinkonu
sinni og seldi þar meðal ann-
ars eigin hönnun. Hún hóf störf
hjá útivistarfyrirtækinu 66°Norð-
ur árið 2001 og vann þar til árs-
ins 2005 þegar hún ákvað að segja
starfi sínu lausu og stofna Farmers
Market. Hún vann þó áfram sem
verktaki hjá 66°Norður í tvö ár
samhliða því að koma Farm ers
Market á laggirnar. „Ég sagði end-
anlega upp hjá 66 Norður fjórum
dögum áður en Geir Haarde bless-
aði landið, sællar minningar. Það
var svolítil geðveiki að segja upp
svona traustu starfi og fara í eigin
rekstur og þegar ég hugsa til baka
þá var það líklega lán að ég tók
þessa ákvörðun fyrir hrun því ég
hefði örugglega þurft að hugsa
mig um tvisvar um eftir það,“ út-
skýrir Bergþóra.
Þegar hjónin ákváðu að stofna
Farmers Market var góðærið í al-
gleymingi og viðskiptaumhverf-
ið var ólíkt því sem það er núna.
„Árið 2005 talaði fólk ekki um
annað en peninga og Ísland var
á barmi þess að verða viðskipta-
miðstöð heimsins. Við skildum
ekki alveg þessa þróun og trúð-
um að mótvægið við þessari al-
þjóðahyggju hlyti að koma. Þegar
við fórum að velta því fyrir okkur
að stofna eigið fyrirtæki ákváð-
um við því að leita aftur í ræturn-
ar. Okkur fannst fyrirtæki eins og
Burberry‘s mjög heillandi, það er
gamalgróið fyrirtæki en maður
velkist aldrei í vafa um að það
sé breskt,“ útskýrir Bergþóra og
bætir við: „Ofan á þetta bættist
að ullariðnaðurinn, sem eitt sinn
hafði blómstrað, var í sögulegu
lágmarki á þessum tíma og því
var okkur mjög vel tekið af ull-
arframleiðendum og þar af leið-
andi góður jarðvegur fyrir okkur
til að byrja á.“
Bergþóra segir foreldra sína
einnig hafa átt mikinn þátt í að
hún ákvað að fara út í eigin rekst-
ur og segir þá afskaplega duglega
að stappa í hana stálinu. „Ég held
það skipti töluvert miklu máli að
foreldrar mínir eru fólk sem gefst
aldrei upp og hjá þeim er ekki
til að eitthvað sé ekki hægt. Það
hefur reynst mér gott veganesti.“
FRÁBÆR ÞRÓUN
Hugmyndin að baki Farmers
Market var að hanna og fram-
leiða fatnað sem Bergþóra og Jóel
mundu sjálf vilja klæðast. Fyrstu
árin einbeittu þau sér að mestu
að prjónaflíkum og með tímanum
hafa þau byggt í kringum þann
grunn og stækkað vöruúrvalið
með þeim hætti. Hönnun Farmers
Market er nú fáanleg í tólf lönd-
um víða um heim og eru flíkurnar
sérstaklega vinsælar í Japan.
A ð s p u r ð s e g i r B e rg þ ó r a
skemmtilegt að sjá hversu mikil
breyting hefur orðið á fatahönn-
unariðnaðinum hér á landi und-
anfarin ár. „Þegar ég byrjaði í
þessum bransa voru bara örfá
fyrirtæki að hanna fatnað. Þetta
Umkringd skemmtilegu fólki Bergþóra Guðnadóttir fatahönnuður stofnaði Farmers
Market árið 2005 ásamt eiginmanni sínum, Jóel Pálssyni. Reksturinn hefur gengið vel
og er hönnun fyrirtækisins nú fáanleg í tólf löndum.
LEITAR AFTUR
Í RÆTURNAR
Ég held það
skipti töluvert
miklu máli að for-
eldrar mínir eru fólk
sem gefst aldrei upp
og hjá þeim er ekki
til að eitthvað sé ekki
hægt.