Fréttablaðið - 08.04.2011, Blaðsíða 36
10 föstudagur 8. apríl
Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni.
Netfangið er kynlif@frettabladid.is
Typpi í
klám-
myndum eru
stór því það er
praktískt fyrir
myndavélina
sem vill sýna
sem mest af
kynfærum.
mælistikan
Á RÚMSTOKKNUM
Sigga Dögg kynfræðingur
Typpadýrkun karlmanna
É g er mikil áhugamanneskja um typpi. Það er margt mjög merkilegt við þennan líkamshluta og þá einna helst mýturnar sem flestar
snúa að stærð. Typpastærð virðist mikið hitamál og jafnvel enn meira
en frammistaða eða risvandamál. Þetta mál fellur því í sama vítahring
og frammistöðukvíði. Karlmönnum sem finnst þeir vera með lítið
typpi en eru raunverulega í meðalstærð, finnst þeir oft lifa verra kyn-
lífi í samanburði við þá sem eru með stærra typpi. Séu kynlífsfélag-
ar þessara „meðal“-manna aftur á móti spurðir út í kynlífsánægju þá
gefa þeir fátt út á stærðina og segja hana skipta litlu sem engu máli.
Fyrst kynlífsfélagar segja stærðina ekki skipta máli, af hverju er hún
þá svona mikilvæg? Nú myndu margir benda á klámið og segja að tröll-
vaxnir bellir brengli hugmyndir ungra manna. Fyrr á öldum voru menn
sáttari við sig því samanburðurinn var ekki órak-
aður í nærmynd á fjörutíu tommu skjá. Enn aðrir
myndu jafnvel segja þetta vera kynlífstækjum að
kenna því risavaxnir titrarar séu óraunhæf sam-
keppni fyrir meðal-liminn. Þessi rök falla um sjálf
sig því vinsælustu titrararnir eru hvorki stórir né
gildir og eiga því fátt sameiginlegt með útliti eða
notkun hins venjulega lims.
Ég hef einstaklega gaman af því hvernig nútíma-
fólk vill gjarnan klína öllum heimsins vandamálum
á klám. Af öllu illu sem má mögulega rekja til kláms þá er typpastærð-
ardýrkun tæplega eitt af því. Typpi í klámmyndum eru stór því það er
praktískt fyrir myndavélina sem vill sýna sem mest af kynfærum. Þá
eru flestir neytendur kláms karlmenn og þeir vilja sjá stór typpi, það
er svona karlmennskudæmi.
Rannsókn á uppruna typpaaðdáunar leiddi mig til upphafs siðmenn-
ingar þar sem karlmenn gengu um hálfnaktir og dýrkuðu liminn sem
hálfgerðan guð. Þá má gjarnan sjá helgistyttur með risavaxin kynfæri
til að undirstrika mikilvægi þeirra sem heilags líkamshluta. Saman-
burður milli manna var því algengur og var það mönnum til tekna að
vera stærri en samkeppnisaðilinn. Það virðist því á einhvern hátt inn-
byggt í karlmenn að bera lim sinn saman við lim annarra karla og al-
gerlega ótengt kynferðislegu notagildi limsins.
Í ljósi þessa, og vegna hinna óteljandi vefsíðna um tæki og tól sem
stækka typpið, fann ég mig knúna til að hrekja þessar mýtur í fyrir-
lestraröð sem vonandi róar óöruggt karlmannshjartað. Typpi er ekki
hægt að stækka og líkamsímynd sem hangir á typpastærð einni saman
er líkleg til standa á veikum grunni. Þú ert með fingur og tungu sem
ber að nota. Hitt er bara aukaatriði og stærðin skiptir því ekki máli.
Á uppleið:
Litagleði! Daginn er farið
að lengja og þótt veturinn
sé enn ekki fyrir bí er í góðu
lagi að festa kaup á nokkr-
um flíkum í skærum
litum. Litagleðin færir
okkur aðeins nær vor-
inu.
Skíðaferð-
ir! Hví ekki að
skella sér norð-
ur í land í svolitla
skíðaferð og njóta
þess að stunda
vetrar íþróttirnar á
meðan færi gefst?
Sólgleraugu!
Sólin er farin að
láta til sín taka
aftur, ekki gleyma
sólgleraugunum
næst þegar farið er
út.
Á niðurleið:
Myrkur! Nú kveðj-
um við stutta daga
og langar nætur.
Myrkrið er á und-
anhaldi og vorið er í
loftinu.
Pestir! Flensur og
veikindi eru á nið-
urleið. Birgið ykkur
upp af vítamínum
og hlakkið til veik-
indalausra daga.
Símablaður á almannafæri!
Það er leiðinlegt að verða óviljandi
þátttakandi í samtali á milli tveggja
ókunnugra einstaklinga. Hafið
í huga að þið
eruð ekki ein í
heiminum þegar
þið talið í síma
á almanna-
færi.
572 3400
Sólgleraugu fylgja með öllum
keyptum gallabuxum.
Firði, Hafnarfirði • Sími 572 3400