Fréttablaðið - 12.04.2011, Qupperneq 19
● Mælið loftþrýsting reglulega.
Kjörþrýstingur hverrar bif-
reiðar er gefinn upp í hurð-
arfalsi eða handbók.
● Víxlið dekkjum. Leitið til fag-
manna með ráðleggingar um
hvernig best er að haga því.
● Látið jafnvægisstilla hjól-
barðana vor og haust.
● Látið athuga hvort hjólamilli-
bil bifreiðar sé rétt og einnig
hjólahalli því ef svo er ekki
getur það aukið slit á dekkj-
um gríðarlega.
● Leitið til fagmanna með val á
dekkjum og látið aðeins fag-
menn umfelga og gera við
hjólbarða.
Góð ráð frá
Degi á N1
N1 er ekki bara bensínstöðvar.
Það er umboðsaðili fyrir
dekk af gerðunum Michelin,
Cooper og Kumho, er með
átta hjólbarðaverkstæði
og útkallsþjónustu allan
sólarhringinn fyrir þá sem
eru á felgunni í orðsins fyllstu
merkingu.
„Michelin er eitt af okkar aðal-
merkjum í hjólbörðum,“ segir
Dagur Benónýsson, rekstrarstjóri
þjónustuverkstæða N1, og telur
Michelin afar endingargóð dekk
og orkusparandi. Hann tekur fram
að N1 sé líka með fleiri gæða-
merki eins og Kumho og Cooper og
útvegi allar stærðir af hjólbörðum,
á allt frá reiðhjólum upp í stærstu
vinnuvélar. „Við erum með algeng-
ustu stærðirnar á lager og rúm-
lega það,“ segir hann og bendir
líka á vefverslunina www.dekk.is.
Hjólbarðaverkstæði N1 eru
átta talsins, sex á höfuðborgar-
svæðinu, eitt á Akranesi og eitt í
Reykjanesbæ. Þau eru búin full-
komnustu tækjum sem völ er á og
má þar nefna færibönd sem bæta
verklag, minnka álag á starfsmenn
og auðvelda þeim vinnu. Við það
standa fjórir menn hverju sinni
sem allir gera sitt ákveðna verk
en geta skipst á til að gera vinn-
una fjölbreyttari. Hvert færiband
þjónar tveimur til þremur bílum í
einu. Slíkar græjur eru komnar á
þrjú verkstæði N1 en Dagur segir
þau verða komin á þau öll innan
tíðar.
„Við leggjum áherslu á að veita
góða og hraða þjónustu með topp
tækjabúnaði,“ segir Dagur um
vinnulagið á verkstæðunum og
hrósar sínum starfsmönnum í há-
stert. „Það er gríðarleg reynsla
innan okkar hóps. Sölustjórarnir
á verkstæðunum hafa starfað við
þessa grein frá fimm árum upp
í þrjátíu og átta og flestir þeirra
hafa sótt þjálfun hjá Michelin.“
Hann bætir því við að stefnt sé að
því að allir stjórar og lykilstarfs-
menn á verkstæðunum sæki slík
námskeið hjá Michelin.
Svokallað Dekkjahótel er eitt
af því sem felst í þjónustu N1. Það
þýðir að fólk getur geymt dekk-
in sín þar. Dagur segir það fyrir-
komulag njóta gríðarlegra vin-
sælda, ekki síst hjá fyrirtækj-
um. „Við erum með heildarlausnir
fyrir fyrirtæki í hjólbarðamálum.
Þau geyma dekkin hjá okkur, við
ráðleggjum þeim um bestu hugs-
anlegu nýtingu á þeim og eigum
mjög gott samstarf við mörg fyr-
irtæki,“ segir hann.
Útkallsþjónustan er meðal þess
sem N1 býður upp á. Síminn þar er
660 3350. Hún er til staðar allan
sólarhringinn á höfuðborgar-
svæðinu, Reykjanesi og Akranesi
og einnig er skroppið austur fyrir
fjall ef þörf krefur. Dagur segir
hana mikið notaða ef fólk lendir í
vandræðum á vegum úti.
Útkallsþjónustan hjá N1
er opin allan sólarhringinn
Sölustjórarnir Ásgeir Ásgeirsson, Fannar Pálsson, Kristján Hauksson, Bjarni H. Svavarsson, Arnar Tryggvason, Ásgrímur Resem-
hus og Einar Sveinbjörnsson, ásamt Degi rekstrarstjóra. MYND/GVA
Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000
Á ALLAR GERÐIR BIFREIÐA
SUMARDEKK OG FELGUR
N1 BÍLAÞJÓNUSTA
N1 BÍLAÞJÓNUSTA
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 8 - 18
OG LAUGARDAGA 9 - 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
FELLSMÚLA / ÆGISÍÐU / BÍLDSHÖFÐA / RÉTTARHÁLSI
LANGATANGA / REYKJAVÍKURVEGI
LANDSBYGGÐIN
GRÆNÁSBRAUT, REYKJANESBÆ / DALBRAUT, AKRANESI
Þriðjudagur 12. apríl 2011 | Kynning