Fréttablaðið - 12.04.2011, Qupperneq 22
12. APRÍL 2011 ÞRIÐJUDAGUR
Gúmmívinnustofan er eitt elsta
starfandi hjólbarðaverkstæði
á höfuðborgarsvæðinu,“ segir
Sturla Pétursson, eigandi
Gúmmívinnustofunnar í
Skipholti 35.
„Verkstæðið var stofnað í kring-
um 1960 og hefur verið í eigu sömu
fjölskyldu allar götur síðan. Það
var afi konunnar minnar, Halldór
Björnsson, sem stofnaði verkstæð-
ið og fjölskyldan hefur alltaf haldið
utan um reksturinn. Síðustu átta ár
hefur verkstæðið svo verið í okkar
eigu.“
Sturla segir megináhersluna
lagða á góða þjónustu enda eigi
Gúmmívinnustofan marga trygga
viðskipavini sem ekki geti hugs-
að sér að leita annað. „Við leggj-
um áherslu á að fólk fái góða þjón-
ustu og að sjálfsögðu góða hjól-
barða,“ segir hann. „Við erum með
hjólbarða frá þekktum og góðum
merkjum eins og Michelin, Good-
year og fleirum, auk ódýrari hjól-
barða sem eru mjög góðir og end-
ast vel. Enda erum við farnir að
nota slagorðið: Öryggi bílsins bygg-
ist á góðum hjólbörðum, sem vísar
til mikilvægis þess að menn séu á
dekkjum með gott grip og hafi rétt-
an loftþrýsting í þeim. Með því end-
ast hjólbarðar lengur og það verð-
ur minni bensíneyðsla. Við förum
vandlega yfir slík atriði hér á
Gúmmívinnustofunni og leggjum
mikla áherslu á að bílar séu rétt
jafnvægisstilltir og allt í topplagi.
Einnig erum við með Pólar-raf-
geymaþjónustu.“
Sturla hefur sex starfsmenn í
vinnu á Gúmmívinnustofunni, auk
þess að vinna þar sjálfur, og segir
þar samankomna mikla þekkingu
og reynslu enda hafi verkstæðið
verið í fremstu röð í rúm fimmtíu
ár. „Sjálfur er ég búinn að vinna
hérna í tuttugu og fimm ár og hef
gríðarlega reynslu af meðferð og
sölu hjólbarða. Það hafa í gegnum
árin skapast góð tengsl við okkar
föstu viðskiptavini, sem upp til
hópa eru mjög skemmtilegt fólk
sem við höfum ánægju af að þjóna
sem allra best og við tökum líka
mjög vel á móti nýjum viðskipta-
vinum.“
Góð þjónusta aðalatriðið
„Öryggi bílsins byggist á góðum hjólbörðum,” segir Sturla Pétursson, eigandi
Gúmmívinnustofunnar í Skipholti 35, sem hér er fyrir miðju ásamt starfsmönnum
sínum. MYND/GVA
„Max1 veitir faglega ráðgjöf
við val á dekkjum út frá þörf-
um hvers og eins,“ segir Sigur-
jón Árni Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Max1. Max1 sinnir ýmis-
konar hraðþjónustu og er tilvalið
að fá sérfræðinga þar til að fara
yfir slit og loftþrýsting eða víxla
dekkjum til að nýta þau sem best.
Sigurjón segir ábyrgð fylgja
því að velja dekk. „Bíll verður að
hafa grip við sem flestar aðstæð-
ur, við stýringu, hemlun, hlið-
arátak og spyrnu svo eitthvað sé
nefnt og enn fremur verða dekk
að vera hljóðlát og hagkvæm með
tilliti til eldsneytiseyðslu og end-
ingar,“ segir Sigurjón.
Að sögn Sigurjóns er ekki víst
að liggi í augum uppi hvaða dekk
geti verið hagstæðust en sérfræð-
ingar Max1 geti hjálpað viðskipta-
vinum að komast að því hvað henti
best.
„Vegir eru orðnir mjög slitn-
ir og miklar vatnsrásir víða. Þá
getur fólk lent í því að þótt dekk
sé með réttri mynsturdýpt geta
samt komið upp þær aðstæður að
bíll fljóti ofan á vatni. Það eina
sem losar vatn við slíkar aðstæð-
ur er mynstur með góðar vatns-
raufar,“ segir Sigurjón.
„Eitt þarf fólk að skoða sér-
staklega og það er hemlunarvega-
lengd dekkjanna. Það er nefnilega
mikill gæðamunur á dekkjum.
Hágæðadekk eins og Nokian sem
eru úr vandaðri gúmmíblöndu
geta haft miklu styttri hemlun-
arvegalengd en óþekkt dekkja-
merki. Í nýlegri könnun var dekk
frá slíkum framleiðanda með 70%
lengri hemlunarvegalengd en
Nokian H-dekkið sem hefur verið
valið besta dekkið hjá European
Automobile Association. Í könn-
un hjá ADAC stöðvaðist bíll með
Nokian H dekki því 40 metrum
fyrr á blautum vegi.“
Fagmenn lesa í dekkin
Sigurjón Árni Ólafsson er framkvæmdastjóri Max1 þar sem viðskiptavinir fá
persónulega ráðgjöf við val á dekkjum. MYND/ANTON
Max1 skiptir þig öllu í dag
Max1 skiptir um dekk
Max1 skiptir um bremsur
Max1 skiptir um olíu
Max1 skiptir um rafgeyma
Max1 skiptir um dempara
Max1 skiptir um perur
Max1 skiptir um þurrkublöð
og rúðuvökva
Nýttu þér vaxtal
aust lán í allt að
12 mánuði frá V
isa eða Masterc
ard
eða 10% staðgr
eiðsluafslátt