Fréttablaðið - 19.04.2011, Qupperneq 38
19. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR30
folk@frettabladid.is
„Við áttum æðislega daga í Köben.
Ég átti reyndar pantað borð á
Hard Rock Café en komst ekki.
Svo var Tívolíið lokað en Strik-
ið stóð fyrir sínu,“ segir Ragnar
Ísleifur Bragason listamaður.
Þremur meðlimum Leikhúss
listamanna var boðið til Kaup-
mannahafnar á dögunum til að
taka þátt í sýningu Kristjáns
Ingimarssonar fjöllistamanns.
Sýningin ber heitið Fools of the
World Unite og fjallar um það
að finna fíflið innra með sér,
sleppa því lausu og gera sig að
fífli. Ingibjörg Magna dóttir,
Ragnar Ísleifur Bragason og
Snorri Ásmundsson dvöldu í viku
í Kaupmannahöfn og unnu með
Kristjáni. Hann gaf þeim lausan
tauminn í spuna og leyfði þeim að
taka þátt í síðustu fjórum sýning-
unum á verkinu. „Við fengum að
taka þátt í þessari uppreisn hans.
Honum finnst eitthvað bogið við
samfélagið og vill að fólk finni
fíflið inni í sér og sleppi því
lausu,“ segir Ragnar.
Ragnar flutti meðal annars ljóð
sitt sem hann og Kristján snöruðu
yfir á dönsku. „Þetta var frekar
persónulegt ljóð. Daninn vissi
ekki hvernig hann ætti að bregð-
ast við þessum íslenska rauðhaus
og fór bara að hlæja að mér. Ég
kunni alveg að meta það og þetta
var skemmtilega vandræðalegt.“
Næstsíðasta skemmtikvöld
Leikhúss listamanna verður í
Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld
klukkan 21. Á dagskránni eru
nokkrir gjörningar, til að mynda
frá Ásdísi Sif Gunnarsdóttur,
Ingibjörgu Magnadóttur og Söru
Björnsdóttur en kynnir er sem
fyrr Ármann Reynisson vinjettu-
höfundur. Þá treður Pittsburgh-
búinn Nathan Hall upp með
bjölluspili og söng og Ragnar
flytur áðurnefnt ljóð sitt. - hdm
Tróðu upp í Kaupmannahöfn
Á SVIÐINU Í KAUPMANNAHÖFN Kristján Ingimarsson og Ragnar Ísleifur Bragason í
sýningunni Fools of the World Unite í Kaupmannahöfn.
80
Það var skammt stórra högga á milli á tón-
listarhátíðinni Coachella um helgina
enda er hún ein sú stærsta sinnar teg-
undar. Gestir hátíðarinnar dilluðu sér í 30
stiga hita og sól við tóna frá hljómsveit-
um á borð við The Strokes, The National,
Kings of Leon, Arcade Fire, Mumford and
Sons, Robyn og Kanye West. Hilton-systurn-
ar, Kelly Osbourne, Katy Perry, Rihanna,
Diane Kruger og David Hasselhoff lögðu
leið sína í eyðimörkina fyrir utan Los Ange-
les til að njóta tónlistarveislunnar.
LÍFVERÐIR voru fyrir utan karókíbar í Sao Paulo þegar
Bono og félagar í U2 sungu þar og skemmtu sér eftir tónleika
í borginni. Fótboltamaðurinn Ronaldo hinn digri skemmti sér
með bandinu og stóð skemmtunin yfir til fimm um nóttina.
Tónlistarveisla
í eyðimörkinni
HEITT Julian
Casablancas,
forsprakki hljóm-
sveitarinnar
The Strokes, var
hress á bak við
hljóðnemann.
BROSANDI
Kelly
Osbourne
skemmti sér
mjög vel í
þvögunni.
Í GULLI Florence
Welch, söngkona
sveitarinnar
Florence and the
Machine, var smart
í gullstuttbuxum og
blúnduslá.
NORDICPHOTOS/GETTY
SÍTT PILS Leik-
konan Diane
Kruger naut
ljúfra tóna
klædd í sítt pils
og með hatt.
SUMARLEGAR SYSTUR
Nicky og Paris Hilton
láta sig sjaldan vanta
á mannfögnuði og
virtust í miklu stuði.
ÍSLANDSVINKONA
Hin sænska Robyn fer
gjarnan ótroðnar slóðir
í fatavali og er oftar
en ekki undir áhrifum
tíunda áratugarins eins
og á tónleikum sínum
á Coachella.
Í DÖMUSKYRTU
Kanye West
tróð upp á
sunnudags-
kvöldinu og
vakti athygli
fyrir að klæðast
skyrtu úr
sumarlínu
kvenfatamerk-
isins Celine.
ÁHORFANDI Aldrei þessu
vant var Rihanna meðal
áhorfenda og tók sig vel út í
gallastuttbuxum með hatt.
Vodafone IS 3G 10:32
Dýrð í Apphæðum!
Fermingartilboð í öllum verslunum
Stórsnjallir símar á frábæru verði auk úrvals
framúrskarandi fermingargjafa.
Prófaðu nýjustu tæknina og sjáðu framtíðina með
þínum eigin augum. Láttu ekki app úr hendi sleppa.
Nokia C5- 03
3.333 kr.
á mán. í 12 mán.
Fullt verð: 39.990 kr.
200 MB
á mán. fylgir
með í 6 mán.
2 miðar
í Sambíóin
fylgja
á meðan birgðir endast
F
í
t
o
n
/
S
Í
A