Fréttablaðið - 03.05.2011, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 3. maí 2011 15
Í efnahagslegu tilliti eru fiskveið-ar frábrugðnar öðrum atvinnu-
greinum. Við rétt skilyrði er ekki
einungis um hefðbundinn hagnað
að ræða af útgerð heldur gefur
auðlindin af sér svo kallaðan auð-
lindaarð eða auðlindarentu. En til
þess að þessi arður myndist þurfa
að ríkja ströng skilyrði. Aðgang-
ur að auðlindinni þarf að vera tak-
markaður (til að hver sem er geti
ekki sótt í auðlindina), rétturinn
til að nýta hana þarf að vera því
sem næst varanlegur (til að hann
myndi verðmæti) og hann þarf að
vera framseljanlegur (til að hag-
kvæmar útgerðir geti keypt út
þær óhagkvæmu). Fiskihagfræð-
ingar hafa metið að auðlindaarð-
urinn af íslensku fiskveiðunum
geti numið allt að 30% til 40% af
heildaraflaverðmæti. Það myndi
jafngilda um 40 til 55 milljörðum
ef horft er til aflaverðmætis síð-
asta árs. Það er því eftir miklu að
slægjast fyrir alla Íslendinga að
arðinum sé ekki sóað. Sá auðlinda-
arður sem nú er í fiskveiðum við
Ísland skiptist milli útgerða, sjó-
manna (vegna hlutaskiptakerfis-
ins) og ríkisins í nokkuð jöfnum
hlutum.
Auðlind sem allir þjóðfélags-
þegnar hafa jafnan rétt til að
nýta er dæmd til að vera ofnotuð
ef afrakstur hennar er nægilega
eftirsóknarverður – auðlindarent-
unni er sóað. Sóunin felst í að of
margir sjómenn munu fjárfesta í
of miklum fjármunum í viðleitni
sinni við að ná til sín auðlinda-
rentunni. Þetta er það sem kallað
hefur verið sorgarsaga almenn-
inganna. Þannig verður sjálfstor-
tíming í raun það sem allir keppa
að. Hver útgerðarmaður hugs-
ar aðeins um eigin hag. Frelsi í
almenningum leiðir því að lokum
tortímingu yfir alla þátttakend-
ur. Þetta er bitur reynsla okkar
Íslendingar sem við virðumst vera
tilbúnir til að endurtaka aftur og
aftur. Spyrjið þá sem voru í króka-
markskerfinu. Spyrjið þá sem
voru í sóknarmarkinu. Spyrjið þá
sem nú stunda strandveiðar.
Árið 1983 var Svarta skýrsl-
an alræmda gefin út af Hafrann-
sóknastofnun. Skýrslan greindi
frá því að ástandi fiskistofna við
Ísland væri þannig háttað, vegna
ofveiði og rányrkju, að ekki mætti
svo við búa. Íslendingar gætu ekki
að óbreyttu búist við því að sjávar-
útvegur yrði undirstöðu atvinnu-
vegur þjóðarinnar til framtíðar.
Nú voru góð ráð dýr. Til að komast
hjá ofveiði, offjárfestingu í fiski-
skipum og sóun fiskveiðiarðsins
þurfti að koma á fiskveiðistjór-
nunarkerfi sem tekur á vanda
almenninga.
Fyrir réttum hundrað árum
gerði Daninn Jens Warming
merka uppgötvun þegar hann
skoðaði álagildruveiðar í Dan-
mörku. Innsæi Warmings byggð-
ist á að þar sem fiskimenn þurftu
ekki að greiða fyrir aðgang að
fiskimiðunum gátu þeir nýtt ála-
stofnana án tillits til afraksturs-
getu þeirra og þannig á endanum
ofnýtt þá, offjárfest í búnaði til
veiðanna og eytt fiskveiðiarðin-
um. Þessa uppgötvun nýttu Íslend-
ingar sér árið 1984 þegar kvóta-
kerfið var innleitt í fiskveiðar hér
við land.
Í stað þess að greiða fyrir
aðgang að fiskimiðunum eins
og Warming lagði til var tekin
ákvörðun um að þeim sem hefð-
bundið hefðu stundað fiskveiðar
við Ísland yrði úthlutað einka-
rétti til að nýta fiskiauðlindina.
Var sú leið sennilega farin þar
sem öll útgerð á Íslandi var á
hausnum vegna offjárfestingar
og ekkert svigrúm til að greiða
fyrir afnotin. Jafnframt ríkti
mjög takmarkaður skilningur á
hugtakinu auðlindaarður á þeim
tíma eins og sést á því að enginn
gerði þá alvarlegar athugasemd-
ir við fyrirkomulagið. Árið 1990
var framsal á kvótum lögleitt
með atkvæðum vinstrimanna en
mótatkvæðum Sjálfstæðisflokks-
ins á Alþingi. Það voru mistök hjá
sjálfstæðismönnum. Þess má geta
að einkaleyfi til veiða með fram-
sali – kvótakerfi – er jafngilt því
að heimta aðgangsgjald af fiski-
mönnum líkt og Warming lagði
til. Munurinn felst í hver fær upp-
haflegu auðlindarentuna.
Með því að gera kvótann fram-
seljanlegan var skilyrðum til að
innheimta auðlindarentuna full-
nægt. Þetta gerðist þó ekki í einni
svipan. Ferlið úr óhagkvæmu
fyrirkomulagi yfir í hagkvæmt
tók mörg ár og alls óvíst að því
sé lokið. Þetta var efnahagslega
sársaukafullt fyrir marga ein-
staklinga, fyrirtæki og jafnvel
byggðarlög þótt flutninga kvót-
ans frá sumum byggðum yfir til
annarra megi þó fremur rekja til
tækniframfara en kvótakerfis-
ins eins og ég mun víkja að síðar.
Kvótakerfið innleiddi hagkvæmni
í íslenskar fiskveiðar og sóun auð-
lindaarðsins var stöðvuð. Frétta-
flutningur af núllstillingu gengis
og gjaldþrota útgerðum hætti.
Í næstu grein mun ég fjalla um
nýliðun í fiskveiðum og hvort rétt-
lætanlegt sé að nota auðlindarent-
una til að mynda störf.
Sorgarsaga almenninganna
Fiskveiðistjórn –
Grein II
Tryggvi Þór
Herbertsson
prófessor í hagfræði og
alþingismaður
Auðlind sem allir þjóðfélagsþegnar hafa
jafnan rétt til að nýta er dæmd til að vera
ofnotuð ef afrakstur hennar er nægilega
eftirsóknarverður – auðlindarentunni er sóað.
AF NETINU
Styrkur eða mútur
Guðlaugur Þór Þórðarson alþingis-
maður fékk 25 milljónir í próf-
kjör sitt. Útvegaði þar á ofan tugi
milljóna frá bönkunum til Sjálfstæð-
isflokksins. Björn Valur Gíslason
alþingismaður kallar þetta mútur.
Peningavaldið borgi Guðlaugi fyrir
að gæta hagsmuna þess í pólitík-
inni. Mikið er til í þessu, þótt ekki sé
sjálfgefið, að styrkur feli í sér mútur.
En þetta eru svo háar upphæðir,
að óvenjulegar hljóta að teljast.
Eðlilegt er því, að grunsemdir vakni.
Fjármagn Guðlaugs hefur sérstöðu
og hlýtur því að sæta illu umtali. Ég
sé ekkert athugavert við, að Björn
Valur neiti að biðjast afsökunar.
jonas.is
Jónas Kristjánsson
Blóðbaði fagnað
Viðbrögð við dauða Osama Bin
Laden hafa stappað nærri sturlun.
Í árásinni létust fleiri en Bin Laden,
meðal annars kona sem var notuð
sem „skjöldur” eins og það er
orðað. Fyrir utan Hvíta húsið og
víðar í Bandaríkjunum safnast
risastórir hópar fólks saman og
öskra USA USA og fagna eins og
sigur hafi unnist á stærsta íþrótta-
viðburði sögunnar. Gleðiöskur, fána-
brjálæði og söngvar um yfirburði
Bandaríkjanna í heiminum. Með-
vitundarleysið er algjört. Sirkusinn
fullkomnaður.
Meira en eitt hundrað þúsund
manns hafa látið lífið í stríðum
sem Bandaríkjamenn stofnuðu til
eftir 11. september árið 2001. Það
staðfesta nýleg gögn frá Wikileaks,
sem áttu ekki að líta dagsins ljós.
40 fyrir hvern 1 sem féll í árásunum
á tvíburaturnana.
Væri ekki virðingarvert að sýna
eilítið önnur viðbrögð til minn-
ingar um alla þá sem látið hafa
lífið í kolbrjáluðu tafli valdabaráttu,
þjóðernishyggju og grimmdar
undanfarinn áratug. Þegar hópar
manna fagna dauða annarra manna
eins og brjálæðingar er eitthvað
mikið að. Alveg óháð trúarbrögðum,
litarhætti eða þjóðerni.
pressan.is/pressupennar
Sölvi Tryggvason
20% staðgreiðsla
Frá 1. janúar 2011 ber bönkum og öðrum fjármálastofnunum að reikna
og halda eftir 20% staðgreiðslu af vaxtatekjum og innleystum gengis-
hagnaði ársfjórðungslega. Sama gildir um arð sem greiddur er til eigenda
af eignarhlutum í félögum.
Athygli er vakin á breyttum reglum um úthlut aðan arð sem fer umfram
20% af skattalegu bókfærðu eigin fé viðkomandi félags í lok viðmiðunarárs
hjá þeim sem skylt er að reikna sér endurgjald vegna starfa í þágu félagsins.
Rafræn skil á fjármagnstekjuskatti
Nú er hægt að gera skil á fjármagnstekjuskatti á rafrænan hátt.
Farið er á þjónustusíðu ríkisskattstjóra, skattur.is, með kennitölu og aðallykli
eða skilalykli. Síðan er valið vefskil > staðgreiðsla fjármagnstekjuskatts
og opnast þá form útfyllingar. Fylgja þarf leiðbeiningum til enda og verður
þá til krafa í heimabanka gjaldanda. Hafi ekki verið um að ræða neinar skatt-
skyld ar greiðslur arðs og vaxtatekna á tímabilinu skal gera grein fyrir því.
Gjalddagar
Fjármagnstekjuskattur er 20% frá 1. janúar 2011.
Gjalddagar afdreginnar staðgreiðslu eru 20. apríl, 20. júlí og
20. október 2011 og 20. janúar 2012. Eindagi er 15 dögum síðar.
Gjalddagi afdreginnar staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts
á fyrsta ársfjórðungi 2011 er 20. apríl en eindagi er 5. maí.
Fjármagnstekjuskattur
Tímabilið 1. janúar - 31. mars
arctictrucks.is
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík
Sími 540 4900 | www.arctictrucks.is
DEKK
Mikið úrval
af jeppadekkjum
í stærðum 33-44”.
Ódýr og góð
þjónusta - lítil bið.
Kíktu í heimsókn!
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU