Fréttablaðið - 03.05.2011, Page 32
3. maí 2011 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gísli Benóný Kristjánsson
fyrrverandi skrifstofustjóri,
Gullsmára 9, Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn
1. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sigurbjörg Jóhanna Þórðardóttir
Unnsteinn Þórður Gíslason
Magnús Gíslason
Kristján Gíslason Guðrún Benedikta Elíasdóttir
Gísli Örn Gíslason Birna Bjarnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkæru frænku okkar,
Maju J. Berg Jónsson
Hjúkrunarheimilinu Eir,
áður Skipasundi 75,
sem lést þriðjudaginn 19. apríl. Útför hefur farið fram í
kyrrþey. Sérstakar þakkir til starfsfólks á 2. hæð-norður
á Hjúkrunarheimilinu Eir.
Aðstandendur
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Gústafs Finnbogasonar
Skjólbraut 11a, Kópavogi.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Helga Júlíusdóttir
Finnbogi Már Gústafsson Edda Hlín Hallsdóttir
Lena María Gústafsdóttir Guðmundur Guðfinnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Valur
Sigurðsson
klæðskerameistari, áður til heimilis
að Skúlagötu 40,
lést á Hjúkrunarheimilinu Grund mánudaginn
25. apríl. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í
Reykjavík, fimmtudaginn 5. maí nk.
Halldóra Ó. Guðlaugsdóttir
Arnbjörg Guðmundsdóttir Ólafur Jón Sigurðsson
Elín Guðmundsdóttir
Sigríður Guðmundsdóttir Finn Sörensen
Óli Valur Guðmundsson Jan-Ola Hjelte
barnabörn og barnabarnabörn.
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við
andlát og útför eiginmanns míns,
föður, fósturföður, tengdaföður,
afa og langafa,
Kristjáns Ágústs
Flygenring
verkfræðings, Reykjavíkurvegi 39
(Tungu), Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk lyflækningadeildar
St. Jósefsspítala Hafnarfirði fyrir mjög góða umönnun.
Margrét D. Bjarnadóttir
Birna G. Flygenring Albert Baldursson
Garðar Flygenring
Erna Flygenring Pétur Þór Gunnarsson
Bjarni Sigurðsson Helga B. Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Magnúsar Jóhannesar
Stefánssonar
frá Akureyri, ketil- og plötusmiðs,
síðast til heimilis á Grænlandsleið 44,
Reykjavík,
sem andaðist hinn 14. mars.
Guðbjörg Reynisdóttir
Ólöf, Reynir, Stefán, Halldóra og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ágústa Þórhildur
Sigurðardóttir
Dælengi 17, Selfossi,
lést föstudaginn 29. apríl sl. Útförin fer fram frá
Selfosskirkju föstudaginn 6. maí nk. kl. 15.00.
Sigurður Guðmundsson
Guðmundur Sigurðsson
Ingvi Rafn Sigurðsson Laufey Kjartansdóttir
Sesselja Sigurðardóttir Örn Grétarsson
Sigurður Þór Sigurðsson Kristín Gunnarsdóttir
Óðinn Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sjöfn Gestsdóttir
áður til heimilis að Sólvallagötu 31,
lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk 29. apríl.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstu-
daginn 6. maí kl. 11.00.
Gestur Þorsteinsson Gunnvör Braga Björnsdóttir
Svava Þorsteinsdóttir Sigurgeir Guðmundsson
Ragnar Þorsteinsson Hólmfríður Kristjánsdóttir
Ársæll Þorsteinsson Katla Steinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Júlíus Reynir Ívarsson
frá Móbergi á Rauðasandi,
til heimilis að Fálkagötu 6, Reykjavík, sem lést
laugardaginn 23. apríl sl. verður jarðsunginn frá
Neskirkju föstudaginn 6. maí kl. 15.00.
Jóhanna Gunnlaugsdóttir
Haukur Júlíusson Ingibjörg Jónasdóttir
Gunnlaugur A. Júlíusson Sigrún Sveinsdóttir
Ingibjörg Júlíusdóttir Bragi Guðjónsson
Anna G. Júlíusdóttir Hjálmar Axelsson
afabörn og langafabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigríður Birna
Hallfreðsdóttir
Norðurbrú 6, Garðabæ, áður til
heimilis að Vallholti 19, Akranesi,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 30. apríl.
Útför auglýst síðar.
Símon Símonarson
Bryndís Símonardóttir Ásgeir Guðnason
Hallfreður Óttar Símonarson Laufey Ófeigsdóttir
Edda Símonardóttir Vésteinn Benediktsson
Björn Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
„Ég er dálítið hissa að vera orðin sextug, en finnst það bara
fínt,“ segir Kristín sem í dag heldur utan til Brussel á fund
jafnréttisnefndar EFTA og til að vera áheyrnarfulltrúi hjá
jafnréttisnefnd Evrópusambandsins. „Þar fer nú hljótt að ég
eigi stórafmæli, en kannski ég fari út að borða í kvöld og ekki
í kot vísað yfir besta mat heims í Brussel,“ segir Kristín sem
fæddist í Vestmannaeyjum 3. maí 1951, dóttir Friðmeyjar
Eyjólfsdóttur hjúkrunarfræðings og rithöfundarins Ása í Bæ.
Þeim varð fjögurra barna auðið en yngri bróðir Kristínar lést
í bílslysi 27 ára að aldri.
„Í minningunni er alltaf sól og blíða í Eyjum, og dásamlegt
að alast upp við sjó og fugl. Þegar við eldri systkinin kom-
umst á menntaskólaaldur flutti fjölskyldan til Reykjavíkur en
við söknuðum alltaf Eyja þótt enginn væri meiri Eyjamaður
en pabbi sem átti erfitt með þessa flutninga og fór öll sumur
á trillu með frændum sínum í Eyjum,“ segir Kristín sem átti
mörg góð afmæli í Vestmannaeyjum, ekki síst árið sem henn-
ar árgangur tók landspróf.
„Þá tókum við upp á að mæta í afmæli hvert hjá öðru og
halda veislur, sem varð til þess að styrkja vinaböndin enn
meir. Annars var ég óheppin að alltaf var hafinn próflestur í
kringum afmælið mitt og erfitt að slappa af yfir veisluhöldum
og í seinni tíð hef ég verið mjög löt við afmælishald,“ segir
Kristín sem fagnaði 50 árum sínum í Kosovo.
Eftir stúdentspróf lauk Kristín BA-prófi í bókmenntum og
sagnfræði og byrjaði því næst í meistaranámi.
„En sú prófgráða var ekki í höfn fyrr en 2002 því ýmislegt
tafði á árum áður eins og Kvennaframboðið og Kvennalist-
inn. Vitund mín um kvenréttindi vaknaði þegar mamma fór
að vinna þegar ég var 13 ára og áttaði mig á hve menntun var
mikilvæg og húsmæðralífið lítt eftirsóknarvert til lengdar,
enda gjörbreyttist mamma við að vera innan um annað fólk
en ekki sífellt bundin yfir börnum og búi,“ segir Kristín sem
gerðist virk í Rauðsokkuhreyfingunni eftir kvennafrídag-
inn 1975.
„Kvennabaráttan blundaði alltaf í mér og síðan hef ég ekki
snúið af þeirri braut. Skemmtilegustu æviárin voru í kringum
Kvennalistaævintýrið sem var merkilegt frumkvæði og bylt-
ingartilraun, en saman ruddum við mörgum hindrunum úr
vegi, breyttum hugarfari og unnum áfangasigra þótt margt
sé eftir enn, en ég er stolt yfir að hafa tekið þátt í þeirri bar-
áttu,“ segir Kristín sem einnig sat á Alþingi fyrir Kvenna-
listann á árunum 1991 til 1999.
„Það þótti mér góð reynsla, en í dag þykir mér sorglegt að
horfa upp á stöðu Alþingis og hvernig virðingin er að engu
orðin. Mér finnst þingmenn ekki taka nógu mikið mið af því
í hegðun sinni og orðræðu, og á Alþingi ríkir einhver götu-
strákaháttur sem ég kann mjög illa við,“ segir Kristín sem
sér ekki eftir neinu þegar hún lítur yfir farinn veg.
„Sumir halda að það hafi verið stefna hjá mér að vera ógift
og barnlaus, en ég hef ekki enn fundið þann eina rétta. Til að
fá það mesta út úr lífinu þarf maður að vera sáttur við sjálfan
sig og starf sitt, og mest um vert að rækta sambandið við fjöl-
skyldu og vini, sem eru það dýrmætasta í lífinu.“
thordis@frettabladid.is
KRISTÍN ÁSTGEIRSDÓTTIR: ER SEXTUG
Er dálítið hissa
SEXTÍU ÁRA Í DAG Kristín Ástgeirsdóttir fluttist til Akureyrar þegar hún
tók við stöðu framkvæmdastýru Jafnréttisstofu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI