Fréttablaðið - 03.05.2011, Qupperneq 36
3. maí 2011 ÞRIÐJUDAGUR24 24
menning@frettabladid.is
Handbók um íslensku
heitir nýtt uppsláttarrit
um íslenskt mál. Jóhannes
B. Sigtryggsson, ritstjóri
bókarinnar, segir bókina
einkum hugsaða sem hag-
nýtt rit fyrir þá sem fást við
skriftir.
Handbók um íslensku er uppslátt-
ar- og yfirlitsrit sem geymir traust-
ar leiðbeiningar um málnotkun,
stafsetningu, ritun og ritgerðasmíð.
Bókin er víðfeðmari og ítarlegri en
margar sambærilegar bækur.
Jóhannes B. Sigtryggsson, rit-
stjóri bókarinnar og verkefnisstjóri
hjá Árnastofnun, segir mikla vinnu
hafa verið lagða í að safna saman á
einn stað álitamálum um málnotk-
un sem erfitt geti verið að finna
annars staðar.
„Það er gömul hugmynd að gefa
út ítarlegra uppsláttarrit en gefið
hefur verið út hingað til,“ segir
Jóhannes. „Við leituðum víða
fanga; efnið byggist meðal ann-
ars á ráðgjafarstarfi málræktar-
sviðs stofnunarinnar og ritreglum
Íslenskrar málnefndar. En þetta er
ekki heildarrit um málfræði heldur
lögðum við okkur eftir því að safna
saman dæmum sem við höfum rek-
ist á að fólk hefur lent í vandræð-
um með.“
Undirbúningur að ritinu hófst
2007 en það var skrifað að mestu
leyti 2009 og 2010.
„Við vonuðumst jafnvel til að
geta gefið bókina út síðastliðið
haust, en það hljóp snurða á þráð-
inn eins og vill gerast með ný verk,
þannig að það frestaðist.“
Jóhannes segir margt það
sama vefjast fyrir þeim sem tala
íslensku nú og áður fyrr.
„Fólk flaskar í sjálfu sér á sömu
hlutum og áður, beygingum ákveð-
inna orða, rithætti og þess háttar.
Við erum til dæmis með langan
kafla um fornöfn sem margir virð-
ast eiga erfitt með að beygja. Þessi
bók gegnir því eins konar stöðlun-
arhlutverki.“
Meðal höfunda efnis í bókinni
eru margir helstu fræðimenn
Háskóla Íslands á sviði íslenskrar
tungu, sem skrifa yfirlitskafla um
ýmis svið íslenskunnar.
„Við reyndum að velja svið sem
við teljum að fólk hafi hugsanlega
áhuga á og horfðum vítt yfir svið-
ið. Það er til dæmis einn kafli um
raddbeitingu, sem fer í sjálfu sér
aðeins út fyrir grunnefnissvið bók-
arinnar, það er ritað mál, en okkur
þótti engu að síður gagnlegt að
hafa með.“
Forlagið gefur Handbók um
íslensku út en í ritnefnd voru Ari
Páll Kristinsson, Guðrún Kvaran
og Gunnlaugur Ingólfsson.
bergsteinn@frettabladid.is
Góð vísa aldrei of oft kveðin
Árni Guðjónsson er í hópi þeirra
sem útskrifast úr tónsmíðadeild
Listaháskólans í ár. Lokaverk
hans er hljóð- og myndræn inn-
setning. „Áhorfendur leggjast einn
í einu inn í tjald, horfa og hlusta
á mynd- og hljóðverk,“ segir Árni
sem hefur bæði fengist við mynd-
list og tónlist í sínu námi. „Ég var
á myndlistarbraut í Fjölbrauta-
skólanum í Garðabæ og er í námi
í djasspíanóleik við Tónlistarskóla
FÍH,“ segir Árni sem reyndar lauk
einnig námi í klassískum píanóleik
frá Tónlistarskóla Garðabæjar
árið 2008, sama ár og hann útskrif-
aðist sem stúdent.
Árni segist hafa samið mynd- og
hljóðhluta útskriftarverksins síns
samhliða og hann hafi beitt aðferð
tónsmíða er hann samdi myndhlut-
ann. „Það er samið í formfræði
tónlistar, það er í því ákveðinn
kontrapunktur.“
Verkið verður sýnt í Kaffistof-
unni á Hverfisgötu 42 á miðviku-
dag og fimmtudag frá 12 til 18.
Listamaðurinn missir þó sjálf-
ur af sýningunni því hann fór til
New York í gær. „Ég er að spila
með hljómsveitinni Of Monsters
and Men á tónleikunum þarna úti.
Það er allt að gerast í þessari viku,
svo hef ég ekkert að gera í næstu
viku,“ segir Árni hress.
Innsetning fyrir einn
JÓHANNES B. SIGTRYGGSSON Höfundar handbókarinnar lögðu sig fram við að finna dæmi sem margir hafa lent í vandræðum
með, svo sem beygingar, rithátt og fornöfn, og safna þeim saman á einn stað. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HANDVERKSKAFFI Í GERÐUBERGI Þórunn Elísabet Sveinsdóttir segir gestum söguna af því þegar
karlinn hitti krókódílinn í handverkskaffi í Gerðubergi á morgun klukkan 20. Við frásögnina notast Þórunn við pappír
sem hún brýtur, beyglar og rífur. Eftir því sem sögunni vindur fram kemur í ljós hvernig hafa má gleði af einföldum
pappírsverkum. Gestum býðst síðan að reyna sig undir leiðsögn Þórunnar Elísabetar.
ÁRNI
GUÐJÓNSSON