Fréttablaðið - 02.07.2011, Blaðsíða 32
2. júlí 2011 LAUGARDAGUR4
Matreiðslumaður,
framreiðslumaður og nemar
Óskum eftir matreiðslumanni, faglærðum þjóni og
þjónanemum.
Um er að ræða 100% starf og unnið er á vöktum.
Almennar hæfniskröfur
• Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi
• Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
• Viðkomandi tali íslensku og ensku
• Snyrtilegur og stundvís.
Umsóknir skulu sendast á starf@grand.is
Grand Hótel Reykjavík er fjögurra stjörnu hótel sem
leggur mikinn metnað í faglega og góða þjónustu.
Grand Hótel Reykjavík - Sigtúni 38 - 105 Reykjavik - grand.is
HS Veitur hf Bæjarhrauni 14 220 Hafnarfirði
www.hsveitur.is hs@hs.is
HS Veitur hf óska eftir að ráða
rafvirkja / rafveituvirkja til starfa í
rafmagnsdeild fyrirtækisins í Hafnarfirði.
Helstu þættir starfsins eru:
- viðhald og viðgerðir í dreifikerfi, línum og götulögnum
- nýlagnir, tengingar og frágangur
Hæfniskröfur:
- sveinspróf í rafvirkjun eða rafveituvirkjun
- sjálfstæð vinnubrögð
- góð framkoma og lipurð í mannlegum samskiptum
Hægt er að sækja um á heimasíðu HS Veitna hf
www.hsveitur.is.
Einnig fást umsóknareyðublöð á skrifstofu. Frekari
upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma 422 5200.
Umsóknarfrestur er til og með 14. júlí 2011.
Hæfniskröfur
» Leiðtogahæfileikar
og stjórnunarreynsla
» Orka og vilji til krefjandi verka
» Góðir samskiptahæfileikar
» Góð reynsla af vöruþróun
og uppbyggingu sölustarfs
» Mikil greiningarhæfni
» Góður skilningur á fjármálamarkaði
» Góður skilningur á upplýsingatækni
» Menntun á háskólastigi
» Reynsla af viðkomandi starfssviði
Við leitum að öflugum
framkvæmdastjórum
Í kjölfar stefnu- og skipulagsbreytinga auglýsir Reiknistofa
bankanna hf. tvær nýjar framkvæmdastjórastöður. Framundan
eru spennandi verkefni sem miða að því að gera Reiknistofuna
að alhliða þjónustumiðstöð og fyrsta valkosti fyrirtækja á fjármála-
markaði, til að nútímavæða og hagræða í sínum tæknirekstri.
Sala og viðskiptaþróun er nýtt svið
innan RB sem er ætlað að efla tengsl
við viðskiptavini, styrkja ímynd
félagsins og ekki síst að efla
þjónustu framboðið með mótun nýrra
viðskiptatækifæra. Leitað er að
framsæknum leiðtoga til að byggja
upp sviðið, móta öfluga liðsheild og
breyta félaginu til að styrkja og efla
þjónustu þess. Framkvæmdastjóri
Sölu og viðskiptaþróunar er einn af
lykilstarfsmönnum félagsins, hann
þarf að vera framsækinn og traustur
leiðtogi og öðrum góð fyrirmynd.
Rekstrar- og öryggislausnir er nýtt
svið innan RB sem er ábyrgt fyrir
hönnun á tæknilegum innviðum
og rekstri þjónustulausna félagsins
sem sérsniðnar eru að þörfum
fjármálamarkaðar. Mikil áhersla
er lögð á rekstrar- og gagnaöryggi
þeirra og hagkvæman og skilvirkan
rekstur. Leitað er að framsæknum
leiðtoga til að leiða sviðið, en þar
starfa 50 manns. Honum er ætlað að
móta öfluga liðsheild og taka þátt í að
breyta félaginu með því að styrkja og
efla þjónustu þess. Framkvæmdastjóri
Rekstrar- og öryggislausna er einn
af lykilstarfsmönnum félagsins. Hann
þarf að vera framsækinn og traustur
leiðtogi og öðrum góð fyrirmynd. Upplýsingar veita :
Friðrik Þór Snorrason,
forstjóri Reiknistofunnar,
í síma 841 6000.
Guðbrandur Jónasson,
starfsmannastjóri,
í síma 896 3328.
Umsóknir ásamt kynningarbréfi
skal senda Guðbrandi Jónassyni,
gudbrandur@rb.is, fyrir 14. júlí nk.
Rekstrar- og öryggislausnir
» Vörustjórnun
» Kerfisþjónusta
» Gagnaþjónusta
» Net- og öryggisþjónusta
» Hýsingar- og rekstrarþjónusta
» Kortagerð og prentþjónusta
Framkvæmdastjóri Rekstrar- og öryggislausna
Sala og viðskiptaþróun
» Viðskiptaþróun
» Söluráðgjöf
» Viðskiptastýring
» Markaðsmál
Framkvæmdastjóri Sölu og viðskiptaþróunar
Hæfniskröfur
» Leiðtogahæfileikar
og stjórnunarreynsla
» Orka og vilji til krefjandi verka
» Góðir samskiptahæfileikar
» Góð reynsla af uppbyggingu
rekstrarþjónustu
» Mikil greiningarhæfni
» Ríkur skilningur á upplýsingatækni
» Góður skilningur á fjármálamarkaði
» Menntun á háskólastigi
» Reynsla af viðkomandi starfssviði