Fréttablaðið - 02.07.2011, Blaðsíða 10
2. júlí 2011 LAUGARDAGUR10
Á VÉLHJÓLI UM FLÓÐAVATNIÐ Þrátt
fyrir monsúnflóð á götum borgarinnar
Lahore í Pakistan fór þessi blaðasali
allra sinna ferða á vélhjóli.
NORDICPHOTOS/AFP
SAMFÉLAGSMÁL Tilkynningum til
barnaverndarnefnda fækkaði
um 13 prósent fyrstu þrjá mán-
uði ársins 2011, borið saman við
sama tíma í fyrra. Þetta kemur
fram í frétt á vef Barnaverndar-
stofu.
Fjöldi tilkynninga í ár var
2.148 fyrstu þrjá mánuði ársins,
en var 2.466 fyrstu þrjá mán-
uði ársins 2010. Flestar tilkynn-
ingar bárust vegna áhættuhegð-
unar barna, eða um 44 prósent.
Rúm 30 prósent tilkynninga
voru vegna vanrækslu á börn-
um. Tæpur fjórðungur barst
vegna ofbeldis gegn barni.
Umsóknum um meðferðar-
heimili fækkaði úr 48 í 28 á milli
ára, en umsóknum um fóstur-
heimili fyrir börn fjölgaði úr 31
í 46 á umræddu tímabili.
- sv
Nýjar upplýsingar frá BVS:
Tilkynningum
fækkar um 13%
Umhverfis landið
Vilja opna hótel í gömlu
bókasafni
AKRANES Stefnt er á að opna hótel
í gamla bókasafnshúsinu á Akranesi
á næstunni. Frá þessu er greint á vef
Skessuhorns.
Breytingar á deiliskipulagi á
lóðinni eru nú í ferli. Bókasafn
Akraness var áður í húsinu en
hefur nú flust í verslunarmiðstöð við
Dalbraut. Teikningar gera ráð fyrir við-
byggingu bæði vestan og austan við
húsið auk nýrrar hæðar og bílakjall-
ara. Það er félagið Skarðseyri ehf.
sem á húsið.
Deiliskipulagstillaga hefur verið
auglýst og er hægt að gera athuga-
semdir við hana til 2. ágúst.
Átak gert vegna katta plágu
FLJÓTSDALSHÉRAÐ Bæjarstjórn Fljóts-
dalshéraðs hefur hafið átak vegna kattaplágu
á svæðinu. Átak verður gert í að fylgja eftir
samþykktum
sveitarfélagsins
um hunda- og
kattahald.
Íbúi á Fljóts-
dalshéraði hafði
sent bréf þar sem
kvartað er undan
kattaplágu sem herji á hverfin í bænum.
Kettir geri þarfir sínar í görðum og opnum
bílum. Ástandið hafi verið slæmt í langan
tíma og ekkert hafi verið að gert.
Samþykktir sveitarfélagsins kveða á um að
eigendum katta beri að sjá um að kettir þeirra
valdi ekki ónæði, óþrifnaði eða óhollustu.
Vísindamenn kanna
Tjörneslög
HÚSAVÍK Jarðvísindamenn frá
Yale-háskóla í Bandaríkjunum gera
þessa dagana athuganir á Tjörnes-
lögunum við Hallbjarnarstaði.
Hópurinn starfar í Þekk-
ingarsetrinu á Húsavík og hefur
nýtt sér vinnuaðstöðu og aðstoð
Náttúrustofu Norðausturlands og
Þekkingarnets Þingeyinga. Hluti
hópsins kom einnig í fyrrasumar
en hópurinn mun nú dvelja í viku
við rannsóknir í samstarfi við Nátt-
úrufræðistofnun Íslands. Vísinda-
menn og nemendur við háskólann
eru í hópnum.
Gæti þurft að senda Herjólf utan
VESTMANNAEYJAR Mögulegt er að Herjólfur verði
sendur úr landi í slipp í haust. Ekki er laust pláss í
slippnum á Akureyri í septem-
ber, þegar áætlað er að skipið
fari í reglubundið viðhald.
Eyjafréttir greina frá þessu
og haft er eftir Kristínu Sigur-
björnsdóttur hjá Vegagerðinni
að verið sé að leita tilboða í
verkið. Beðið sé eftir tilboðum til að sjá hvort hag-
kvæmara sé að senda skipið til útlanda. Um tvo sólar-
hringa taki að sigla skipinu til Danmerkur.
Herjólfur þarf að fara í slipp á tveggja ára fresti.
Vilja 36 milljarða fjárfest-
ingu í Búlandsvirkjun
SKAFTÁRHREPPUR Suðurorka ehf. vill fjár-
festa fyrir um 36 milljarða króna í Búlands-
virkjun í Skaftártungu ef til þess fást leyfi.
Virkjunin myndi veita Skaftá neðan við
Hólaskjól í göngum inn á Þorvaldsaura, í fall-
göng til stöðvarhúss í Réttarfelli og um göng
í farveg Skaftár við Búland. Þetta kemur fram
á vef Sunnlenska. Raforkuvinnsla gæti hafist
árið 2018.
Stækka aflþynnu verksmiðju
AKUREYRI Forsvarsmenn aflþynnuverk-
smiðju Becromal í Krossanesi vilja stækka
verksmiðjuna og auka framleiðslugetu um 50
prósent á næstu árum.
Skipulagsnefnd Akureyrar hefur heimilað fyrirtækinu að leggja fram
breytingartillögu á deiliskipulagi vegna þessa. Einnig á að skoða hvort hægt
sé að færa Krossanesbraut vegna stækkunarinnar.
Eyþór Arnalds, einn forsvarsmannanna, segir í samtali við Vikudag að
tökum hafi verið náð á mengunarvandamálum sem upp komst um í vetur.
Hann segir verksmiðjuna nú starfa í sátt við umhverfið.
ALLIR SAMAN NÚ
TIL GÓÐS
HLAUPUM
... og ef við hlaupum
fjórir saman ...
Það er lítið mál að
hlaupa tíu kílómetra ...
... þá náum við
heilu maraþoni ...