Fréttablaðið - 02.07.2011, Blaðsíða 54
2. júlí 2011 LAUGARDAGUR
Kisuvinir og velunnarar eru velkomnir í Kattholt að Stangar-
hyl 2 í dag milli klukkan 13 og 17 að fagna tvennum tímamót-
um: 20 ára afmælisári Kattholts og 35 ára afmæli Kattavina-
félags Íslands. Boðið verður upp á veitingar og útimarkaður
verður á stéttinni ef veður leyfir.
Kattholt er vistheimili fyrir ketti sem fundist hafa á ver-
gangi. Einnig er það hótel þar sem kettir dvelja meðan eig-
endurnir skreppa í ferðalög eða eru frá heimili sínu um tíma
af öðrum sökum. Um stjórnina sér Elín G. Folha með aðstoð
starfsfólks, tók við því embætti fyrir ári þegar Sigríður Heið-
berg féll frá. „Ég var búin að starfa hér í ellefu ár með Sigríði
og það var enginn annar til að taka við,“ segir hún.
Elín hefur bryddað upp á nýjungum í starfseminni svo sem
að opna Kattholt fyrir ungmennum sem vilja knúsa kisurnar
og veita þeim félagsskap svo þeim líði betur. „Ég er stundum
með tvo til þrjá krakka í sjálfboðavinnu við að vera með kis-
unum og leika við þær,“ segir hún. Kveðst líka vera að taka
herbergi í notkun þar sem fólk sem vill taka að sér kisur getur
verið með þeim í einrúmi til að kynnast þeim. Telur það betra
en að fólk velji kisur eftir útliti og eigi á hættu að þær stingi af
við fyrsta tækifæri. „Fólk kemur hingað með ýmsar vænting-
ar. Ein fjölskylda vildi bara gráan kött af því allt var í gráum
lit heima hjá henni og hún gekk mest í gráum fötum!“ segir
hún og bætir við: „En yfirleitt er það þannig að kettirnir velja
fólkið en ekki öfugt, segir hún. „Ef köttur brýst úr fangi mann-
eskju sem vill gæla við hann þá er hann ekki hennar köttur,
heldur bíður hann einhvers staðar annars staðar.“
Kattavinafélagið hóf strax við stofnun 1976 að taka til
geymslu heimilislausa ketti sem fundist höfðu á förnum vegi.
Formaður félagsins, Svanlaug Löve, veitti þeim mat, umönn-
un og húsaskjól í sérstöku herbergi á heimili sínu og ef henni
tókst ekki að koma ketti til eiganda eða finna honum annað
heimili þá fékk hún dýralækni til að svæfa hann. Þótt hús-
næðið sé mun rýmra nú kveðst Elín þurfa að láta svæfa ketti
í hverri einustu viku. „Það er svakaleg offramleiðsla á kött-
um,“ segir hún. „Margt fólk er að flýja landið sem hefur ekki
einu sinni efni á að láta svæfa köttinn sinn og skilur hann bara
eftir.“ Yfirleitt eru 80 til 90 kisur í Kattholti að sögn Elínar.
Reksturinn er fjármagnaður með styrkjum frá einstaklingum
og fyrirtæki hafa líka veitt ómetanlegan stuðning með því að
gefa kisunum fóður. „Reykjavíkurborg, Mosfellsbær og Sel-
tjarnarnes greiða sjö daga með hverjum ketti en Kópavog-
ur, Garðabær og Hafnarfjörður hafa skorast undan því,“ upp-
lýsir Elín og segir gesti á opnu húsi í dag munu hitta kisur í
heimilis leit sem allar eigi það sameiginlegt að vera yndislegar.
gun@frettabladid.is
KATTHOLT: Á 20 ÁRA AFMÆLI
Kettir velja fólk
Í KATTHOLTI Helga Vala Eysteinsdóttir sjálfboðaliði og Elín forstöðu-
kona gæla við kisurnar í Kattholti og leika við þær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Elísabet Alexandersdóttir
lést á lungnadeild A6 Landspítalanum við Fossvog
sunnudaginn 26. júní. Jarðsungið verður frá
Landakotskirkju miðvikudaginn 6. júlí kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jónas Klemens Jónasson
Eva Elísabet Jónasdóttir Þorsteinn Sverrisson
Sóley Alexandra Þorsteinsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæru
eiginkonu, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Dóru Möggu
Arinbjarnardóttur
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild B2
Landpítala Fossvogi fyrir einstaka hlýju og umönnun.
Sigurður Gestsson
Guðný Elíasdóttir Hörður Ingi Torfason
Grétar Páll Stefánsson Erla Sveinbjörnsdóttir
Kristín Þóra Sigurðardóttir Haraldur Ragnarsson
Salbjörg Sigurðardóttir Guðmundur Magnús
Halldórsson
Gestur Sigurðsson Íris Huld Guðmundsdóttir
Linda Sigurðardóttir Páll Jóhannes Aðalsteinsson
Axel Baldvinsson Halldóra Pétursdóttir
Björgvin Kristjánsson Sigríður Ingólfsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Torfi Þorkell Torfason
Þverholti 24, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
þriðjudaginn 28. júní. Útförin verður auglýst síðar.
Guðrún M. Torfadóttir Björn Sævar Einarsson
Ólafur D. S. Torfason Rósa S. Þórhallsdóttir
Ingigerður Torfadóttir Jón Óttarr Karlsson
Kristín Torfadóttir Gísli Sveinsson
Torfi Þ. Torfason María S. Reynisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa,
langafa og bróður,
Friðþjófs I. Strandberg
sjómanns, til heimilis að Melgerði 32,
Kópavogi,
sem lést á líknardeild Landspítalans 18. júní.
Starfsfólki á líknardeild Landspítalans viljum við
þakka einstaka umönnun og kærleiksríka framkomu.
Guðrún Magnúsdóttir Strandberg
Auður Strandberg
Magnús Strandberg Ingibjörg Bragadóttir
Birgir Strandberg
Sveinbjörn Strandberg Kristín Jónsdóttir
Agnar Strandberg Brynja Stefnisdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og bróðir.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar hjartkærs eiginmanns míns,
Þorsteins Sigurðssonar
Hjaltastaðahvammi,
Akrahreppi, Skagafirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalarheimili aldraðra,
Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki, fyrir einstaka
umönnun.
Sigríður Márusdóttir
Yndislegi drengurinn okkar, bróðir
og barnabarn,
Sindri Dagur Garðarsson
Jörundarholti 202, Akranesi,
lést á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins að morgni
24. júní. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðju daginn
5. júlí kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Minningarreikning nr. 552-14-601309 kt. 111177-5709.
Garðar Garðarsson Guðleif Hallgrímsdóttir
Guðmundur Gestur Garðarsson
Dagný Björk Garðarsdóttir
Hallgrímur Hafliðasson Sigurbjörg Þórðardóttir
Dagný Guðmundsdóttir
Elskulegur pabbi okkar, bróðir og
fyrrverandi eiginmaður,
Chus Barja
(Jesus Martinez Barja)
sem lést af slysförum mánudaginn 27. júní, verður jarð-
sunginn frá Víðistaðakirkju Hafnarfirði mánudaginn
4. júlí kl. 13. Hjartans þakkir til Haukafólks og okkar
stórkostlegu vina og ættingja fyrir stuðninginn.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast
hans er bent á björgunarsveitirnar.
Almar Barja Marta Hermannsdóttir
Emil Barja Auður Íris Ólafsdóttir
Ívar Alexander Barja
Javier Barja, Noemí Barja, Nanna Lovísa Zophoníasdóttir
Ástkær móðir mín, amma okkar
og systir,
Sigþrúður Pálsdóttir
– Sissú
myndlistarmaður,
Sörlaskjóli 42, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 30. júní.
Sunna Guðrún Eaton
Frosti Eaton, Freyja Eaton, Freyr Eaton
og Max Rúnarsson.
Hlöðver (Jack) Pálsson
Stefán Pálsson
Sesselja Pálsdóttir
Páll Arnór Pálsson
Signý Pálsdóttir
Þórunn Pálsdóttir
Anna Heiða Pálsdóttir
Ívar Pálsson
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Helga Símonardóttir
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
fimmtudaginn 16. júní. Útförin fer fram frá
Selfosskirkju mánudaginn 4. júlí kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Einar Rafn Ingvaldsson Katrín Jónína Gunnarsdóttir
Símon Grétar Ingvaldsson Hrafnhildur Scheving
Héðinn Smári Ingvaldsson Bjarney Ragnarsdóttir
Fanney Ósk Ingvaldsdóttir Geir Ómar Kristinsson
Hallgrímur Jón Ingvaldsson Kristbjörg Gunnarsdóttir
ömmubörn langömmubörn og langalangömmubörn.
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ragnhildur Oddný
Guðbjörnsdóttir
Hraunbæ 103, áður Hábæ 33,
sem andaðist í Holtsbúð 23. júní, verður jarðsett frá
Árbæjarkirkju þriðjudaginn 5. júlí kl. 13.00.
Jónína Haraldsdóttir Vilhjálmur Albertsson
Stefanía Haraldsdóttir Halldór Ármannsson
Sigurður Már Haraldsson Rósa Friðriksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.