Fréttablaðið - 02.07.2011, Blaðsíða 47
fjölskyldan 5
Í góðra vina hópi Bakir á ÍA-vellinum
með góðum vinum sínum í 4. flokki,
þar sem margt er um afar efnilega
leikmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
kuna
g vill helst bara tala íslensku. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
að geta hjálpað. Ég hefði þó viljað
vera búinn að lesa Kóraninn því
íslamstrú er svo frábrugðin okkar
og margt sem maður undrast í
iðkun hennar. Þá er flóttafólkið
blóð heitara en Íslendingar og með
annað eðli og upplag. Af því leiðir að
konurnar halda ekki endilega hóp-
inn, heldur eru ýmist í sundur eða
saman, enda með allt aðra menn-
ingu en okkar,“ upplýsir Valdimar.
„Manal leitar til mín í blíðu og
stríðu og þau eru nánast orðin
eins og viðbót við fjölskylduna.
Mér þykir orðið vænt um krakk-
ana, snýst mikið í kringum þá og er
oft boðið til arabísks máls verðar,
sem er svolítið öðruvísi en sá sem
maður á að venjast en alveg afskap-
lega ljúffengur,“ segir afi Valdimar
kátur. - þlg
Skilgreining á flóttamanni samkvæmt 44. grein
laga um útlendinga:
Flóttamaður telst vera útlendingur sem er utan
heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera
ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis,
aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna
stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki,
vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands;
eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands
þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna
slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna
slíks ótta hverfa aftur þangað,
Flóttamaður telst einnig útlendingur sem telst
ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr.
alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf
ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta
dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúð-
legri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði
hann sendur aftur til heimalandsins. Sama gildir
þegar um er að ræða ríkisfangslausan einstakling.
HVERJIR ERU FLÓTTAMENN?
Grunnur að góðri máltíð
www.holta.is
Royal bringur
Kjúklingabringurnar frá Holtakjúklingi eru fersk og hrein afurð sem framleidd
er af mikilli fagmennsku. Þær eru fáanlegar með tvennskonar kryddlegi -
rósmarín og hvítlauk eða Texas - og henta bæði á grillið og í ofninn.
Nú geta matgæðingar haft það ljómandi gott í sumar.