Fréttablaðið - 02.07.2011, Page 47

Fréttablaðið - 02.07.2011, Page 47
fjölskyldan 5 Í góðra vina hópi Bakir á ÍA-vellinum með góðum vinum sínum í 4. flokki, þar sem margt er um afar efnilega leikmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG kuna g vill helst bara tala íslensku. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG að geta hjálpað. Ég hefði þó viljað vera búinn að lesa Kóraninn því íslamstrú er svo frábrugðin okkar og margt sem maður undrast í iðkun hennar. Þá er flóttafólkið blóð heitara en Íslendingar og með annað eðli og upplag. Af því leiðir að konurnar halda ekki endilega hóp- inn, heldur eru ýmist í sundur eða saman, enda með allt aðra menn- ingu en okkar,“ upplýsir Valdimar. „Manal leitar til mín í blíðu og stríðu og þau eru nánast orðin eins og viðbót við fjölskylduna. Mér þykir orðið vænt um krakk- ana, snýst mikið í kringum þá og er oft boðið til arabísks máls verðar, sem er svolítið öðruvísi en sá sem maður á að venjast en alveg afskap- lega ljúffengur,“ segir afi Valdimar kátur. - þlg Skilgreining á flóttamanni samkvæmt 44. grein laga um útlendinga: Flóttamaður telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, Flóttamaður telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúð- legri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalandsins. Sama gildir þegar um er að ræða ríkisfangslausan einstakling. HVERJIR ERU FLÓTTAMENN? Grunnur að góðri máltíð www.holta.is Royal bringur Kjúklingabringurnar frá Holtakjúklingi eru fersk og hrein afurð sem framleidd er af mikilli fagmennsku. Þær eru fáanlegar með tvennskonar kryddlegi - rósmarín og hvítlauk eða Texas - og henta bæði á grillið og í ofninn. Nú geta matgæðingar haft það ljómandi gott í sumar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.