Faxi - 01.12.1957, Qupperneq 29
F A X I
137
Tónlistarskóli í Keflavik.
Sunnudaginn 17. nóvember var hinn nýi
tónlistarskóli Keflavíkur settur í barnaskól-
anum, en frá aðdraganda og stofnun þessa
skóla var sagt í síðasta tbl. Faxa, þar sem
einnig var sagt frá stofnun Tónlistarfélags
Keflavíkur. Viðstaddir við setningu skólans
voru væntanlegir kennarar hans, nemendur
og foreldrar þeirra, ásamt fréttamönnum,
bæjarstjórn og fieiri gestum. Skólasetningin
hófst með því, að formaður tónlistarfélags-
ins, frú Vigdís Jakobsdóttir, ávarpaði kenn-
ara, nemendur og gesti og bauð þá velkomna
til þessarar fyrstu skólasetningar. Ræddi
frúin nokkuð aðdragandann að stofnun tón-
listarfélagsins og sagði að höfuð markmið
þess hefði frá fyrstu tíð verið, að stofna hér
tónlistarskóla. Gat hún þess, að nú þegar
væru 33 nemendur innritaðir í skólann, sem
væri meira en búast hefði mátt við, en sýndi
hinsvegar glögglega, hversu hér væri mikil
og brýn þörf á slíkum skóla til þess að
létta kostnaðinn fyrir áhugasömum ungling-
um, sem ella hefðu þurft að sækja slika
tilsögn til Reykjavíkur. Hvatti frúin nem-
endur til þess að stunda skólann af kost-
gæfni. Næstur tók til máls Guðmundur Norð-
dahl, framkvæmdastjóri félagsins, en ekki
skólastjóri, eins og stóð í grein i síðasta
tölublaði Faxa. Lýsti hann tilhögun skólans
og skólareglum. Var þá sýnd kvikmynd, þar
sem aðalpersónan var frægur trompetleikari,
er sýndi tækni sína og afþurða leikni á hljóð-
færið. Þá tók til máls skólastjórinn, Ragnar
Björnsson, sem er ungur maður og einn af
efnilegustu tónlistarmönnum landsins. Er
hann nú t. d. stjórnandi karlakórsins Fóst-
bræður, hefir stjórnað óperettum í Þjóð-
leikhúsinu í forföllum dr. Urbancic og
einnig hefir hann stjórnað Symfóníuhljóm-
sveit íslands. Ræddi skólastjóri nokkuð um
stofnun skólans og tónlistarfélagsins og hvatti
nemendur til þess að stunda námið af kappi.
Lýsti hann síðan skólann settan. Við þetta
tækifæri tók bæjarstjórinn, Valtýr Guðjóns-
son, einnig til máls og ræddi um örar fram-
farir í Keflavík á sviði tónlistarinnar og
færði þakkir bæjarstjórnar þeim, er mest
hefðu að þeim unnið.
Happdrætti íþróttabandalags Keflavíkur
íþróttabandalag Keflavikur hefur nú starfað
í tæp tvö ár. Með tilkomu I. B. K. hafa allar
íþróttaiðkanir aukizt verulega hér í Kefla-
vík og hafa keflvískir íþróttamenn staðið sig
með mikilli prýði s.l. tvö ár.
Iþróttabandalag Keflavíkur hefur nú hug
á að færa enn út kvíamar, m. a. með því
að hefja kennslu í fleiri íþróttagreinum, og
einnig með því að ráða fastan þjálfara yfir
sumarmánuðina, en mest allt þjálfarastarf
fram að þessu hefur verið þegnskylduvinna.
Til þess að standa straum af þeim kostnaði,
sem af þessu leiðir, hefur Iþróttabandalag
Keflavíkur stofnað til happdrættis nú fyrir
jólin. Eru vinningar í happdrættinu alls 10
og verðmæti vinninga alls kr. 12.325,00.
Meðal vinninga eru:
1. Ferð til Kaupmannahafnar og heim aft-
ur fyrir tvo á fyrsta farrými.
2. Reiðhjól (úrvalsteg.).
3. Karlmannsarmbandsúr.
4. Kvenarmbandsúr.
5. Parkerpennasett.
Iþróttabandalag Keflavíkur heitir á alla
Keflvíkinga að bregðast vel við þegar sölu-
menn frá I. B. K. bjóða þeim miða. Með því
styrkja þeir gott málefni og stuðla að því, að
hér í Keflavík rísi upp tápmikið og dugandi
æskufólk, því engin tómstundariðja hæfir
æskunni betur en íþróttaiðkanir.
Dregið verður í happdrættinu á Þorláks-
messu.
(Frá f. B. K.).
+----------------------------+
HÚSMÆÐUR!
Beztu fáanlegar vörar bjóðum
við yður fyrir jólin, nú sem
endranær.
Svo sem:
ALLT í JÓLABAKSTURINN
Jólaóvextina
Jólaölið
Jólavindlana
Jólakonfektið
Jólasp'lin
Jóla skrautkerti í miklu úrvali
og margt fleira.
Á jólaborðið:
Urvals hangikjöt og
dilkakjöt allskonar.
Sendum heim.
Síminn er 456
Verzlunin
SIGGI & GUFFI
Túngötu 12,
Keflavík.
I
!
+——’>—■-——-------------------•+
!•■—■—
K 1 D D A B ÚÐ Frá Verkalýðs- og
Hafnargötu 27. Sjómannafélagi Keflavíkur
★
Höfum ávallt nýjan fisk, saltaðan 25 ára afmœlis
og frosinn. félagsins verður minnst
Einnig ýmsar niðursuðuvörur. með afmælishófi
28. des. n\.
★ Nánar auglýst síðar.
- SÍMI 733 - Keflavík, 30. nóv. 1957.
* STJÓRNIN