Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1957, Blaðsíða 45

Faxi - 01.12.1957, Blaðsíða 45
F A X I 153 ------------------------~---------------------~~------------------- AUGLÝSING um aðsetursskipti Samkvæmt lögum nr. 73/1952 eru allir, sem skipta um aðsetur, hvort heldur er innan bæjarins, eða þeir hafa flutt ; til bæjarins til lengri eða skemmri dvalar, skyldir að til- ; kynna það innan 7 daga frá því að þeir höfðu aðseturs- 1; skipti, að viðlögðum sektum. Umráðamenn húsnæðis eru ábyrgir fyrir því, að tilkynn- ; ingarskyldu sé fullnægt. ! Skorað er á þá að tilkynna ávalt aðsetursskipti fólks, sem : sezt að í húsnæði á þeirra vegum, eða sjá um að það geri það ; sjálft. Aðseturstilkynnigar afhendast á skrifstofu Keflavík- urbæjar. Eyðublöð undir tilkynningar fást þar. ! Bœjarstjórinn í Keflavík Sambýlið og slysa- hættan Á öðrum stað hér í blaðinu er grein uin vegarkaflann milli Keflavíkur og flugvallarhliðið, drepið er þar á hin tíðu umferðarslys, sem þar hafa átt sér stað og bent á knýjandi þörf fyrir ýmsar um- bætur á þessum fjölfarna vegi, t. d. að vegurinn verði tafarlaust lýstur upp. Var einnig um þetta skrifað í síðasta blaði. Eiga greinar þessar fyllsta rétt á sér og verða vonandi til þess að ýta við þeim er sofa á verðinum. En þcgar svo þessir útsofnu forustumenn héraðsins og þjóðar- innar vakna og taka að kynna sér vanda- málin, sem við blasa og umræddar grein- ar fjalla um, þá ættu þeir að koma auga á önnur verkefni, því af nógu er að taka. T. d. væri ekki úr vegi, að athuga, hvort það samræmist ísl. umferðarlögum, að leyfa Ameríkönum, sem hér dvelja um stundarsakir, en eru vanir hægri handar akstri á sínum breiðu og góðu vegum, að aka hér með ofsa hraða á okkar illa gerðu og þröngu vegum, oft meira og minna undir áhrifum víns, að maður nú ekki taki dýpra í árinni. Hér á Suðurnesjaveginum hafa að undanförnu orðið slys með stuttu milli- bili, sem má rekja til framantalinna or- saka, cnda hefir sökin verið hjá hinum útlendu ökumönnum. Er nú furða þótt almenningur telji að ekki sé hægt að þola þetta lengur, og krefjist öryggis og ein- hvers réttlætis af þeim, er þessi mál heyra undir. Satt er það, að með öllu hugsanlegu móti er reynt að draga úr slysahættunni af völdum ísl. ökumanna og þess er rétt- látlega krafist, að þeir kunni að stjórna ökutækjum sínum, fylgi settum reglum í hvívetna og taki fyllsta tillit til gang- andi fólks og annarar umferðar, og um- fram allt annað, að þeir séu ávallt alls- gáðir við akstur. Aftur á móti verður þess enginn hér var, að amerískir öku- menn þurfi að ganga undir hæfnispróf, áður en þeim er hleypt inn á vegina, eða að þeim séu sett skilyrði um hámarks ökuhraða og bannað að aka undir áhrif- um víns. Þau tíðu slys, sem hér hafa orðið að undanförnu af völdum þessara manna, tala sínu máli, sem ekki verður á móti mælt. Krafa fólksins er því þessi: Ef varnarliðsmönnum hér á vellinum á að leyfast að stjórna ökutækjum á ísl. vegum, verður fyrst að kenna þeim ísl. ökureglur, að þeir t. d. viti um hámarks- ökuhraða á vegum liér og æfist í að víkja til vinstri. Einnig, að frá því sé tryggilega gengið, að þeir aki aldrei undir áhrifum víns. Amerískur maður, sem brýtur þessar reglur, eftir að hafa fengið að vita um þær, á aldrei framar að fá hér að stjórna bifreið utan flugvallarins. Þetta er eng- inn fjandskapur gagnvart varnarliðs- mönnum hér, heldur er það sjálfsögð varúðarráðstöfun lil verndar lífi okkar og limum. Ritstj. Afmælið'. Nonni litli hafði boðið Palla í afmælið sitt. En þegar Palli kom ekki á tilsettum tíma, hljóp Nonni heim til hans að vita hverju þetta sætti. Hann knúði dyra og faðir Palla opnaði fyrir honum. „Af hverju kemur Palli ekki í afmælið mitt?“ spurði Nonni. „Hann er veikur“, svaraði faðirinn. „Nú, — en hvar er þá tíkallinn?"

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.