Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1972, Page 63

Faxi - 01.12.1972, Page 63
SIGLT í augum íslendinga, reyndar allra Norðurlandaþjóðanna, hefur Miðjarðar- hafið löngum verið „ímynd hins enda- lausa bláma hafs og himins". Málarar víðsvegar að sækja þangað í stríðum straumum, horfa heillaðir á sterka liti láðs og lagar og reyna að festa þá á léreft sér til frægðar, en öðr- um til augnayndis. Skáldin koma þangað líka hvaðanæva, skrifa sögur og yrkja ljóð um fegurð hafsins, vaggandi pálma, borgirnar bað- aðar í hvítri sól, heillandi kvöld með lýsandi hálfmána, ljúfum söng og róm- antískum gítarleik lífsglaðra og léttlyndra Suðurlandabúa. Og Norðurlandabúinn verður ör og hrífst með. Þegar hann svo skýrir þessar tilfinn- ingar sínar á pappírnum, líkir hann þeim við ölvun og vín, og svo oft er þessi sam- líking endurtekin, að maður skyldi ætla að öll stig tilfinningahitans væru rnæld í ölvun og víni. Ég get heldur ekki neitað því, að allt frá því að ég fór að gera mér grein fyrir því, að heimurinn væri stærri en svo, að hann sæist úr einum bæjardyrum, greip útþráin mig strax mjög föstum tökum, og ég óskaði þess, að mér yxu sem fyrst þeir vængir, sem væru færir til þess að bera mig til óskalandanna og víðsýnis hins stóra heims. En lengi varð ég aðeins að láta mér nægja að lesa bækur þeirra ,sem ferðast höfðu, en sitja sjálfur urn kyrrt heima á hólmanum, sem flestunr unglingum þykir TIL SUDURS FRÁSOGN SIGURÐAR BRYNJÓLFSSSONAR svo þröngt meðan útþráin brennur þeim örast í brjósti, en þrá svo, eftir að fjöll hans eru horfin í haf fjarlægðarinnar, meira en þeir hefðu nokkru sinni getað látið sér detta í hug. í þessum drauma-ferðalögum mínum stefndi hugurinn ævinlega í eina átt, — í suður. Ég hafði aldrei neina tilhneigingu til þess að fylgja þeim Anrundsen og Vil- hjálmi Stefánssyni um ísbreiður norðurs- ins, en ég brauzt inn í myrkviði frum- skóganna með þeim Stanley og Living- stone. Með þeim barðist ég við gráðugar mannætur, sem ætluðu að gera úr mér veizlumat, og sá það á því, hvernig þær kyngdu munnvatninu, að þær mundu ekki einu sinni hafa biðlund til þess, að ég gæti orðið sómasamlega soðinn á ís- lenzkan mælikvarða. Ég naut líka með þeim ánægjunnar af kynningu vinveittra þjóðflokka. Ég dansaði villta negradansa kringum snark- andi bál, og fitlaði ástfanginn við kopar- hring í miðsnesi svartrar blómarósar, sem aldrei hafði sett skó á fætur sér eða ver- ið á hárgreiðslustofu, en hafði þó haldið sér til í kvöld nreð því að bera feiti bland- aða viðarkolaösku í andlit sitt, til þess að það fengi dekkri og hreinni lit. En með aldrinum urðu þessar ósk- ir og dagdraunrar raunhæfari, og hið fjar- stæðukennda síaðist burt, en eftir varð eðlileg útþá fulltíða nranns, að vísu blandin þeirri eftirvæntingu, sem henni nrun ætíð fylgja, þar til hún hefur orðið að veruleika. Og nornirnar urðu nrér náðugar, allt í einu og fyrirvaralaust, eins og þeirra kvað vera háttur. Ég þusti af stað nreð öllu því óðagoti, sem tvítugur nraður á yfir að ráða, og naut hverrar líðandi stundar í hraða tilbreytinganna nreð ó- skiptri ánægju. En nú var langt síðan, og aftur var ég á leið til suðursins. í þetta sinn dreynrdi nrig ekki unr frumskógalíf og villinrenn, ég vissi í höf- uðatriðunr hvers ég mátti vænta. Þó að eftirvæntingin brynni ekki með sanra hita og áður, þá naut ég ferðarinnar fyllilega, þrátt fyrir það, að ég varð að vinna 8 klukkustundir á sólarhring niðri í vélarrúnri skipsins, senr óneitanlega kostaði nrarga svitadropa og áhyggju- stundir, ekki sízt ef vísiiinn, senr sýndi gufuþrýstinginn, fór að færast niður fyrir rauða strikið. Þá var oft hörð barátta við hinar sex glóandi eldhítir, senr aldrei virt- ust fá nægju sína. Stundum kom það fyrir, að þessar áhyggjur fengu útrás í blótsyrðunr á nrörgum tungumálum. Eft- ir dálítinn tíma hafði íslenzka blótsyrðið „andskotinn" náð svo nrikilli hylli, að það heyrðist um þvert og endilangt vél- arrúnrið í ýmsunr tónbrigðunr og nreð öll- um mögulegunr og ónrögulegunr fram- burðarreglum. Það tækifæri virtist ekki vera til, sem það ætti ekki við. Donkeyinaðurinn, sem var málamað- ur nrikill, og öll orð vildi læra rétt, konr og fékk sérstakan tínra í íslenzkri franr- sagnarlist á þessu töfraorði, og borgaði með sams konar orðunr á spönsku og ítölsku. Það fór að heyrast ofandekks, þar sem hásetarnir voru við vinnu, og brytinn hætti að bölva á þýzku, nema því aðeins að hann væri ofsareiður, en tautaði nú sí og æ „andskotinn“ í svip- uðum tón og þegar börn gera gælur við húsdýr. Hann gekk jafnvel svo langt, að ávarpa nrig nreð þessu gælunafni, þegar hann vildi hlífa sér við að nefna nafn mitt, senr var honunr alltaf nokkuð erfitt í franrburði. Ég greip aúðvitað til gagnráðstafana og kallaði hann „Dviska“, og reyndi að segja það í nrjög tvíráðum og íbyggnunr tón. Hann vissi ekki hvað þetta rúss- neska orð þýddi, en hélt vitanlega að það væri sér að einhverju leyti til háð- ungar, og eftir að kokkurinn og nressa- strákurinn höfðu heyrt nrig ávarpa hann með þessu gælunafni og báðir rekið upp skellihlátur, þá gætti hann þess, að gefa ekki tilefni til að það væri viðhaft. Ann- ars nrá geta þess, að orðið dviska þýðir ekki neitt ljótt, ekki í öllunr tilfellunr að nrinnsta kosti, þáð þýðir senr sé stúlka., Svona liðu dagarnir, einn eftir annan, við vinnu og farmannaglettur, senr veittu lífi í tilbreytingarlausa daga langleiðar- innar, unrhverfið aðeins hinrinn og haf, F A X I — 235

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.