Faxi - 01.12.1982, Blaðsíða 49
Sveindis Skúladóttirblása affullum krafti. Hanna L Jóhannsdóttirog Georg M. Baldursson.
Starfsemin hófst svo um miðjan
september 1981. Á milli 50 og 60
nemendur sóttu um skólavist,
krakkar voru spenntir að reyna
þetta eins og gengur, hópurinn
þynntist svolítið er leið á veturinn
sem er eðlilegt og er skólaári lauk
voru tæplega 40 nemendur við
skólann. Ljóst var í vor, að ef skól-
inn ætti að geta starfað áfram og
aukið hljóðfærakost yrði að halda
enn betur á fjármálunum.
Enn var reynt að fá skólastjóra á
staðinn, þar sem það gefur auga
leið að ferðakostnaður hlýtur að
vera töluverður liður þegar skóla-
stjóri þarf að koma, skulum við
segja 3 og upp í 5 ferðir í viku á
staðinn, en það tókst ekki núfrek-
aren fyrrasinnið.
Mitt aðalstarf hefur verið ein-
söngskennsla við Tónlistarskól-
ann í Njarðvík. Þegar ekki tókst
betur til með að fá skólastjóra á
staðinn, ákvað ég að minnka starf
mitt í Njarðvík og sótti um starfið
hér. Með mér kenna við skólann
Ágústa Þórólfsdóttir, Ríkharður
Friðriksson og Hilmar Þórðarson.
Kennslugreinar eru:
Málmblástur, gítar, píanó, blokk-
flauta (alt og sópranflauta) ein-
söngur auk tónfræði, og erum við
öll mjög ánægð með árang urinn af
okkar starfi.
Foreldrar hér halda mjög vel að
börnum sínum við hljóðfæranám-
ið og tónfundir eru haldnir einu
sinni í mánuði, opnir aðstandend-
um nemenda, þar sem þeir geta
rætt við kennara um börn sín, og
fylgst með framförum þeirra.
Og að lokum Ragnheiður?
Já, ég hefði ekki getað ímyndað
mér, áður en ég fór að starfa að
uppbyggingu þessa skóla að það
yrði eins ánægjulegt og það hefur
verið, þar kemur náttúrulega það
til að við þetta hefur verið áhuga-
samt fólk með mér og svo það að
efniviöurinn, nemendurnir eru
mjög efnilegir margir hverjir og
eiga áreiðanlega sumir þeirra eftir
að gera garðinn frægan.
Ég vil nota tækifærið hér og
koma þökkum til þriggja félags-
samtaka í hreppnum, þ.e.a.s.
Ungmennafélagsins Þróttar,
Kvenfélagsins Fjólu og Lions-
manna í Keili fyrir rausnarlega
fjárupphæð er þau sameinuðust
um að gefa skólanum í s.l. mánuði
og sem gera mun okkur kleift að
auka hljóðfærakost skólans á
næstunni. Þetta framtak þeirra
sýnir best að skólinn á góða að og
fólk bindur vonir við það starf sem
þar fer fram.
Við þökkum Ragnheiði kærlega
fyrir spjallið og óskum þessari
ungu stofnun allra heilla.
J.T.
Sundlaug
Heitir pottar - Gufubað - Sólbekkir - Vatnsnudd
SUNDHÖLL KEFLAVÍKUR
SÍM11145
FAXI - ?.29