Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1982, Blaðsíða 58

Faxi - 01.12.1982, Blaðsíða 58
... ámað heilla ... ámaðheilla... ámað heilla ... ámað heilla...á) HJÓNIN GUÐRÚN OG GUÐMUNDUR ÁBALA Á þessu ári urðu hjónin á Bala i Miðneshreppi 80 ára. Afþví tilefni brá ég mér suður að Bala og ræddi við þau um ættir þeirra og uppruna. Þegarkomið erað Bala, má sjá að húsmóðirin hefur ekki setið auðum höndum. Heimilið er prýtt blómum og fagurri handa- vinnu. Guðrún Guðmundsdóttir er fædd 12.7.1902 að Akrahóli i Hvalsneshverfi. Móðir hennar, Sigurbjörg Torfadóttir var fædd að Kirkjuvogi, Höfnum. Faðir hennar, Guðmundur Þorsteins- son var fæddur að Akurhúsum í Garði. Afþessu má sjá að Guðrún er hreinræktaður Suðumesja- maður. Tíu ára gömul fór Guðrún að vinna fyrir sér og þá sem snún- ingastúlka að Utla-Hólmií Leiru, til Ingibjargar Ófeigsdóttur og Sig- urðar Þóroddssonar. Árið 1916 fór hún suður að Bala sem vinnu- kona. Þar liggja leiðir þeirra Guð- rúnar og Guðmundar saman. Guðmundur Guðmundsson er fæddur 30.10.1902 að Hrauni i Grindavik. Þarvoru foreldrarhans i húsmennsku. Seinna fluttu þau að Hrauntúni i Grindavík og bjuggu þar þurrabúi þar til móðir hans lést árið 1914. Foreldrar hans voru Guðmundur Loftsson frá Klasbarði i Landeyjum og Guðlaug Sveinsdóttirfrá Gislakoti undir Eyjafjöllum. Bæði ættuð úr Ftangárvallasýslu. Eftir lát móður sinnar fór Guð- mundur til föðursystur sinnar, Helgu Loftsdóttur og Daða Jóns- sonar, manns hennarsem bjuggu að Bala. Arið 1925 giftustþau Guðrún og Gumundur og hófu búskap aó Bala. Árið 1935 fluttust þau til Keflavíkur vegna þess að engin útgerð átti að vera frá Stafnesi þann vetur. En sjómennska var aðal vinna Guðmundar að vetrin- um. Hann réði sig sem landmann á mótorbátinn Ólaf Magnússon. Ekki höndluðu þau hamingjuna við að flytjast til Keflavíkur. Á fyrsta mánuði misstu þau bestu kúna sína. Á gamlársdag var haldin jólatrésskemmtun fyrir börn i Ung- mennafélagshúsinu og fór Guð- rún með börnin sín þangað. Var hún ný farin heim með yngribö. n- in, en tvö hin eldri voru á skemmt- uninni þegar jólatréð sem varljós- um prýtt, féll. Á sama augnabliki var húsið alelda. Létust þar níu manns og margir brenndust illa. Þama misstu þau hjónin næst elsta barn sitt, Sólveigu Helgu, sjö ára. Þessi atburður er þeim ávallt ofarlega í huga og eflaust öllum Keflvíkingum sem hann muna. Vorið 1936 fluttu þau hjónin aftur suður að Bala og þar hafa þau búið síðan. Þau hafa eignast átta börn og eru sjö þeirra á lífi. Allt mannvæn- leg börn, sem hafa komið sér vel áfram í lífinu. Þau eru: Guðmund- ur Kristmann f. 1925, Sólveig Helga f. 1928, Guðmundur Lofts- sonf. 1929, Sigurður Bjarnason f. 1931, Sigurbjörg f. 1934, Guð- laug Helga f. 1937, Sigrún Guðný f. 1938, Sólmundur fíúnarf. 1943. Barnabörn þeirra Guðrúnar og Guðmundar eru orðin tuttugu og sjö og barnabarnabörnin fjórtán. Áður fyrr bjuggu Balahþnin stór- búi á mælikvarða Suðumesja. En eftir þvi sem árin færðust yfir þau hefur búskapurinn dregist saman. Guðmundur hefur ávallt haft áhuga á félagsmálum og sér- stakan áhuga hefur hann sýnt málefnum kirkjunnar. Hann hefur verið í sóknarnefnd Hvalsnes- sóknar í tugi ára og formaður í mörg ár. Nú er hann meðhjálpari og kirkjuhaldari Hvalsneskirkju. Balahjónin geta horft til baka með ánægju yfir ævistarfið. Kæru hjón, ég óska ykkur og fjöl- skyldu ykkar til hamingju með þessi timamót og vona að við megum njóta starfa ykkar i mörg ár enn. Halldóra Thorlacius Auglýsing um umferð t Keflavík Að fengnum tillögum bæjarstjórnar Keflavíkurog samkvæmtheimild í 65. gr. umferðarlaga nr. 40/1968, eru hérsettar eftirgreindar reglur um umferð í Keflavík: Biðskylda samkvæmt3. mgr. 48. gr. umferðarlaga verðurframvegisá Skólavegi við Flugvallarveg, andstætt þvísem nú er. Bannað er aó stöðva ökutæki eða leggja þeim á Skólavegi að norðan- veróu á kaflanum milli Hafnargötu og Suóurgötu. Bannaó er að stöðva ökutæki eða leggja þeim beggja vegna Skóla- vegará kaflanum milli Suðurgötu og Sólvallagötu. Bannað er aó leggja ökutæki á Skólavegi að norðanverðu á kaflanum milli Sólvallagötu og Hringbrautar. Hafnargötu milli Flugvallarvegar og Faxabrautar hefur nú verið skiptí tvær akreinar, þegar ekið er til norðurs, og er framúrakstur því heimill á þessum kafla. Reglur þessar taka þegar gildi. Lögreglustjórinn í Keflavík, 2. nóvember 1982. Jón Eysteinsson FAXI-238
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.