Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1982, Blaðsíða 38

Faxi - 01.12.1982, Blaðsíða 38
Gríndavikursöfnuður við vigsluguðþjónustuna. VÍGSLA GRINDA VÍKURKIRKJ U Framhald af bis. 184 Ragnars Emilssonar arkitekts. Á þeim sama fundi var kosin byggingarnefnd og voru þeir sömu kosnir og höföu veriö í undirbúnings- nefndinni. Síöar var svo Almennu verkfræöistofunni í Reykjavík faliö aö sjá um burðarþolsteikningar ásamt miðstöðvar-, vatns- og frárennslisteikn- ingum. Daði Ágústsson hjá Rafhönnun tók aö sér að sjá um rafmagnsteikningar ásamt vali á Ijósabúnaöi. Við réöum Guðmund ívarsson trésmíöameistara til aö taka aö sér trésmíðina ásamt aö hafa yfirumsjón meö verkinu. Þaö var svo 5. nóvember 1972 aö tekin var fyrsta skóflustungan viö hátíölega athöfn. Hana tók þáverandi sóknarnefndarformaöur Einar Kr. Einarsson fyrrverandi skólastjóri. Kirkjukórinn söng sálminn „Kirkjan er oss kristnum móðir“. Síöan flutti sóknarpresturinn séra Jón Árni Sigurðsson hugvekju og aö end- ingu söng kirkjukórinn sálminn „Geföu aö móðurmálið mitt“, eftir Hallgrím Pétursson. Heldur fóru framkvæmdir rólega af staö enda litlir peningar til aö byggja fyrir. Þaö voru víst 75.000 gamlar krónur í sjóöi þegar byrjaö var. Þó var þetta sama haust grafiö fyrir húsinu og slegiö upþ mótum fyrir sökklum, en ekki var hægt aö steypa þá fyrir snjóum á því ári. Og var þaö ekki gert fyrr en vorið eftir. Svona hefur verkinu miöaö áfram, stundum hægt en með góðum sprettum á milli allt eftir því hvaö fjár- hagurinn og aörar aðstæður leyföu. Enda höfðum viö sett okkur það markmiö aö haga framkvæmdum eftir fjárhagnum en ekki stofna til skulda fyrr en þá á endasprettinum. Áriö 1976 náöum við svo þeim áfanga aö gera húsiö fokhelt. Og áfram var haldið og er nú svo komið að vígsla hefur fariö fram. Þaö hefur því tekið rétt um tíu ár aö koma kirkjunni í þaö horf sem hún er nú komin í og kostar hún í dag kr. 2.720.649,05. En hvaðan hafa okkur áskotnast allir þessir fjármunir? Ég vil nú skýra ykkur frá því. Þaö er þá fyrst: ------------------------------------------- Sálmur tileinkaður vigslu Grindavíkurkirkju. 7/7 þin vér hefjum hug og sál, ó, heyr þú barna þinna mál, vor hæsti Drottinn - himni frá, send hjálp og náð oss, jörðu á. Efl kirk'ju þina og kristni á jörð, lát koma frið og sáttar-gjörð en sundrung víkja og syndafár, slít fjötra hels og þerra tár. Þú er, ó Guð, vor eina von, af ást og náð þú gafst þinn son, til frelsis þeim, er frelsun þrá, þeim friður þinn hér veitast má. Lát tungu mína tigna þig, sem týndan hefur fundið mig. Þinn Helgur Andi hjálpi mér, í hlýðni og trú að fylgja þér. Lát hljóma skírt þitt heilagt orð, helga þú skírn og náðar-borð, Ó, komið, hlýðið kalli hér, þá Kristur segir: Fylgið mér. Jón Árni Sigurðsson sóknarprestur. ____________I___________________________7 Gjafir og áheit kr. 910.433,77 eða 33,46% Grindavikurbær hefur lagt fram kr. 800.000,00 eða 29,40% Sóknargjöldnematilbyggingarinnar kr. 660.010,57 eða 24,26% Lán, að upphæð kr. 324.000,00 eða 11,91% Vaxtatekjur eru kr. 26.204,71 eöa 0,97% Eða samtals kr. 2.720.649,05 eða 100,00% Ég vil geta þess að gjaldkerar hafa verið tveir á byggingartímanum. Fyrst var þaö Einar Kr. Einarsson ámeöan hann varformaðursóknar- nefndar en eftir aö hann lét af því embætti tók Guðbrandur Eiríksson við fjármálunum. Færi ég þeim innilegar þakkir fyrir góöa fjárvörslu. Ég vil nú skýra frá því hverjir þaö eru sem tekið hafa að sér hin ýmsu verkefni byggingar- innar: Helgi Hjartarson sá um raflagnir. Jón Guðmundsson haföi umsjón meö pípulögnum. Haukur Guðjónsson tók aö sér málningarvinnu og dúklagningu. Ólafur Sigurðsson sá um múr- verk. Bekkirnir voru smíðaðir á trésmíðaverk- J stæöi Árna Guöjónssonar í Reykjavík. Tré- smíöaverkstæöið Geirinn í Hafnarfiröi smíðaöi altarið og prédikunarstólinn. Innihuröir eru frá verkstæöi Siguröar Elíassonar í Kópavogi. Úti- hurðir eru frá Hús og Innréttingar í Sandgeröi. Eyrinn á útihurðunum vann Þorkell Skúlason í Kópavogi. Allar aörar innréttingar eru frá tré- smíðaverkstæðinu Grindin hér í bæ. Teppin eru frá Friðrik Bertelsen í Reykjavík, og lögöu hans menn þau á gólfin. Gluggatjöldin eru frá versluninni Áklæöi og Gluggatjöld i Reykjavík. Og aö endingu er þaö svo altaristaflan sem gerö er af Odmansbræðrum í Þýskalandi eftir altaristöflunni úr gömlu kirkjunni sem Ásgrímur Jónsson listmálari málaöi. Ég vil svo þakka öllum þeim sem hafa unniö aö byggingunni fyrir vel unnin störf. Ég tel aö allir hafi reynt aö leggja sig fram um aö leysa öll þessi verkefni sem best af hendi. Ég vil sér- staklega þakka arkitektinum Ragnari Emils- syni fyrir hans mikla starf og góöu samvinnu. Því allt eru þetta hans hugmyndir hvernig kirkj- an lítur út. Ég vil jafnframt sérsaklega þakka Guömundi ívarssyni fyrir alla þá alúö og sam- viskusemi sem hann hefur sýnt þessu verki eins og reyndar öllum sínum verkum. Ég vil þakka sóknarnefnd fyrir gott samstarf og þá sérstaklega formanninum Svavari Árnasyni fyrir hans stóra hlut sem hann á í því aö náöst hefur sá árangur sem orðinn er. Ég vil einnig þakka meönefndarmönnum mínum innilega fyrir ánægjulegt samstarf, þar hefur aldrei skuggi falliö á. Ég vil svo aö endingu biöja góöan Guö að þetta kirkjuhús megi veröa til þess aö hér eflist kristin trú og þóttmikið safnaöarstarf. Þegar langþráöu - og mikilvægu marki er náö, er ekkert eðlilegra en að þeir, sem að því hafa keppt finni til nokkurs léttis, gleði og þakk- lætis.-----Svo er og um okkur flest, sem hér erum samankomin á hátíöarstund í tilefni af því, aö ný og rúmgóö kirkja errisin hér í bæ, og hefur nú verið vígö og Guði helguð. Á slíkri stundu væri vissulega vert margs aö minnast og margt að þakka, svo margt, aö ætti ég að nefna það allt og tilgreina alla þá, er þar hafa komið viö sögu til hjálpar og styrktar með ýmsu móti, myndi mér ekki til þess endast, þaö sem eftir er þessa dags. Og til þess aö veröa ekki óþoiandi og ófyrirgefanlega langoröur vel ég þann kostinn að spyröa þetta eins mikiö saman og mér er frekast unnt, og fer því ekki út í langa og nákvæma upptalningu allra þeirra fjöl- mörgu einstaklinga, félagasamtaka og fyrir- tækja hér í bæ, sem fært hafa kirkjunni eöa kirkjubyggingarsjóði stórhöföinglegar gjafir frá því aö byggingarframkvæmdirhófustfyrirtæp- um áratug. Ég vil aðeins geta þess aö auk allra þeirra einstaklinga, er fært hafa kirkjunni stórgjafir, sumir kannski af litlum efnum, þá hafa velflest félagasamtök og fyrirtæki hér í bæ komið mjög rausnarlega til liös við þetta málefni, og auk þessara aöila hefur bæjarstjórnin hér öll þessi ár sýnt málinu mjög svo lofsverðan skilning og ómetanlega fyrirgreiöslu, meiri og betri en ég hygg aö nokkur önnur bæjarstjórn á landinu hafi gjört, og hefur hún því, aöþessu leyti, gefið Sr. Jón Ámi Sigurðsson FAXI-218
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.