Faxi - 01.12.1982, Blaðsíða 39
Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík.
Afgreiðsla: Hafnargöfu 79, sími 1114.
Ritstjóri: Jón Tómasson.
Blaðstjóm: Jón Tómasson, Ragnar Guðleifsson,
Kristján A. Jónsson.
Hönnun, setning og umbrot:
Leturval sf.
Filmu-og plötugerð:
Litróf
Prentun og bókband:
PrentstofaG. Benediktssonar
öðrum bæjarstjórnum gott og fagurt fordæmi,
og hafi hún ævarandi heiður og þökk fyrir.
Án velvilja, hjálpar og styrktar þeirra aðila,
sem ég hefi hér nefnt, án þess að tilgreina
nokkurn einstakan með nafni, nema bæjar-
stjórnina, væri hin nýja kirkja, sem hér er risin,
ekki orðin að veruleika nú í dag, —og það er í
senn undarleg og skemmtilegtilviljun, aðhægt
var að tengja saman vígsludag nýju og gömlu
kirkjunnar, sem gegnt hefur helgu þjónustu
hlutverki sínu í þessari sókn, jafnt á hátíðar- og
gleðistundum sem sorgar- og saknaðardögum
í 73 ár, og það sýnir, meðal annars, að kirkjan
er, þrátt fyrir allt, lifandi stofnun, sem hver kyn-
slóðin af annarri gengur inn í og viðheldur, þótt
ár og aldir líði. En ég verð að segja, að þaö
hefur, að flestu leyti, verið mjög ánægjulegt að
vinna að og fylgjast með þessari byggingar-
framkvæmd.
Þetta hefur allt, einhvern veginn, eins og
komið af sjálfu sér, og furðanlega vel greiðst úr
hverjum vanda.
Byggingarnefnd tók strax þá ákvörðun að
forðast í lengstu lög allar lántökur, en láta ávallt
vinna jafnóðum fyrir allt handbært fé. Þannig
þokaðist verkið áfram, stig af stigi, frá ári til árs.
Margt hefur raunar orðið mun dýrara, en við í
upphafi reiknuðum með, sumtjafnveltvisvartil
þrisvar sinnum dýrara, en þrátt fyrir það hefur
verið vel til alls vandað, og ekki höndum kastað
til eins eða neins, og ég hygg að kirkjan öll beri
þess vitni, að utan sem innan,ekki hvaðsíztað
innan.
Um öll verk mannanna má að sjálfsögðu
deila, og er deilt. Svo er og um þessa kirkju,
hvað ytra útlit áhrærir. En engan hefi ég hitt, er
inn í hana hefur komið, sem ekki hefur lokið
lofsorði á fyrirkomulag hennar hið innra og allt
það, er þar blasir viö augum. En eigi skal um
þetta fjölyrt, heldur lagt undir dóm eins og sér-
hvers, er í dag hefurtekið þátt i vígslu þessarar
nýju kirkju, en það er von mín og trú, að áðuren
langt um líður megi Grindvíkingar verða bæði
ánægðir með og stoltir af sinni nýju sóknar-
kirkju.
En nú verð ég að fara að stytta mál mitt. En
áður en ég segi hér mitt síðasta orð, vil ég færa
biskupi okkar, herra Pétri Sigurgeirssyni inni-
legustu þakkir okkar allra fyrir helga vígsluat-
höfn, og orð þau, er hann í sambandi við hana
flutti okkur í hinni nývígðu kirkju. Og þó að það
hefði vissulega verið okkur kærkomið, að það
hefði verið eitt síðasta meiriháttar embættis-
verk forvera hans í biskupsdómi, að vígja
þessa kirkju, eins og við vonuðum um tíma, en
ekki gat þó staðist, þá er mér, persónulega,
það mikið fagnaðarefni að það skuli þó hafa
fallið í hlut míns gamla, góða vinar, bekkjar- og
deildarbróður að vinna þetta verk, og það því
fremur sem ég hygg að þetta sé hans fyrsta
meiriháttar kirkjuvígsla, sem hann framkvæmir
i tiltölulega nýlegum biskupsdómi sínum. Ég
veit að hann vill, eins og reyndar sérhver annar
góður biskup, veg kirkjunnar sem mestan, og
fyrir því samfagnar hann innilega þeim söfnuði,
hvort heldur hann er stór eða lítill, er vinnur það
afrek að koma sér upp nýrri kirkju, þegar sú
gamla dugir ekki lengur eða fullnægir ekki
framar kröfum tímans. Já, við þökkum biskupi
fyrir kornu hans hingað í dag, fyrir helga vígslu-
athöfn hinnar nýju kirkju á miklum hátíðardegi
þessa safnaðar, og biðjum honum blessunar
og náðar Guðs í veglegu og vandasömu starfi í
þágu kristni, lands og þjóðar, og árnum hon-
um, konuhans ogfjölskyldu heillaog farsældar
um alla framtíð.
Ég þakka einnig prófasti, séra Braga Frið-
rikssyni, og viöstöddum prestum fyrir þátttöku í
helgri athöfn og fyrir þann þátt, sem þeir hafa
átt í því að gera þennan dag okkur minnis-
stæðan og hátíðlegan, svo ogöllumöðrum, er í
vígsluathöfninni tóku þátt.
Já, það er okkur mikið fagnaðarefni, að hafa
eignast hér nýja, stóra og vandaða kirkju, en
þá skulum við líka minnast þess, að kirkjan er
ekki bara húsið sjálft, skrautlegt og vandað,
stórt eða lítið, gjört af manna höndum, heldur
er hún eða á að vera lifandi samfélag allra
þeirra, er játa Jesúm Krist, sem hinn eina
sanna Drottin og Frelsara allra manna, og þess
vegna eiga allir að vera eitt í honum, og því
segir Páll postuli í Galatabréfinu: „Hérerekki
Gyðingur né grískur, hér er ekki þræll né frjáls
maður, hér er ekki karl né kona, því að þér eruð
allir einn maöur í samfélaginu við Krist
Jesúm.“ Þetta er gagnorð en raunsæ lýsing á
hinni lifandi kirkju, og kirkjan sú ert þú og ég og
við öll, er Krist játum sem Drottin og Guð, og
hús hans elskum, virðum og rækjum, hvenær
sem klukkurnar kalla til lofgjörðar, þakkar og
bænar, og þvi segir svo í víðkunnum sálmi um
kirkjuna:
TILKYNNING
Keflavík - Njarðvík - Grindavík
Gullbringusýsla
Samkvæmt lögum nr. 46/1977 og reglugerð
nr. 16/1978, er hverjum og einum óheimilt aó
seija skotelda eða annað þeim skyltnema hafa
til þess leyfi lögreglustjóra.
Þeir sem hyggja á sölu framangreinds varn-
ings, sendi umsóknirsínar tilyfirlögregluþjóns í
Keflavík, eigi siðar en 20. desember 1982. Aó
öðrum kosti veróa umsóknir ekki teknar til
greina.
Umsóknareyðublöó fást hjá yfirlögregluþjóni á
lögreglustöóinni í Keflavík.
Lögreglustjórinn í Gullbringusýslu
Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík
og Njarðvík
Brunavarnir Suðurnesja
íbúar Vogum og
Vatnsleysuströnd
Allt í hátíðarmatinn fáið þið hjáokkur.
Allt til skreytinga og mikið úrval af kert-
um.
Eflum eigin verslun, verslum heima.
VOGABÆR - Vogum
Sími6516
Bensín, olíur og
smávörur
Bensínsöluskáli Vogabæjar
Opinfrá kl. 9 til 22
Sími 6631
FAXI-219