Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1982, Blaðsíða 31

Faxi - 01.12.1982, Blaðsíða 31
Sæunn Bjarnadóttirog maðurhennar Reginbaldur Vilhjálmsson. hug, eins og til mín væri hrópaö í gegnum storminn, síðustu orö Flygenrings: „Ég treysti ykkur aö gera það sem þiö getiö. “ — „Jæja, látiö þiö kistuna þá koma upp í herrans nafni.“ Þaö var gert, kistan var rétt upp og við skorðuðum hana stjórn- borðsmegin milli lestarlúgunnar og lunningar og fyllti hún næstum alveg í þaö bil. Ég tók seglið af gafflinum og breiddi þaö eins vel yfir og hægt var. Því næst kvödd- um við mennina úr landi. Þeir báöu okkur alls velfamaðar og lensuðu í land, en viö héldum á staö móti veöri og vindi og ferðinni er heitið til Reykjavíkur. Eftir aö báturinn er farinn í land og menn þeir, sem á honum voru, og mesta umstangið viö aö ganga frá sjúkrakistunni er liöiö hjá, tek ég eftir því aö fleiri höföu komið út með bátnum en þeir sem í land fóru. Það voru tvær konur og tveir karlmenn: Oddný Guömundsdótt- ir Ijósmóðir og Jarþrúöur Árna- dóttir úr Garðinum, maður, sem ég ekki þekkti og Bjarni Jónsson maður Guðveigar Eiríksdóttur, en það var veika konan, sem var í sjúkrakistunni. Stefán Sigurfinnsson var skipstjóh i umræddri sjóferd. Símon Kristjánsson, sem var vélstjóri i umræddri sjóferð, varð síðar vel þekktur hafnsögumaöur í Hafnarfirði. Mér fannst ekkert athugavert við komu þessa fólks, því það var alvanalegt, þegar sjóferð féll til Reykjavíkur, að fleiri eða færri far- þegar fengju að vera meö. Eins og áöur er vikið að, var ekkert afdrep uppi á Víkingi, svo ekki var um annað aö ræöa en kúldra konunum niöur í lúkar. Hann var lítill, aðeins 2 hvílur, en konurnar treystust ekki til að kom- ast upp í þær, heldur hreiðraði ég um þær á gólfinu og breiddi undir þær segldruslu, því gólfið varekki tiltækilegt að leggjast niður á þaö. Ég sagöi þeim aö liggja þétt sam- an, svo þær nytu hlýju hvor af ann- arri, en lúkarinn var óupphitaður og uppganginum varö aö loka alveg, vegna ágjafar. Um karl- mennina hugsaöi ég minna; Bjarni var kápulaus en Simon gat lánaö honum stuttkápu. Ég sagöi honum að fara niður í vélarrúm þó þröngt væri, því þar væri þó hlýtt. Um hinn manninn hugsaði ég minna, enda var hann í kápu og hélt sig mikið uppi þangað til honum var orðið kalt. Tróð hann sér þá líka niður í vélarrúm. Símon gætti vél- arinnar af stakri alúð svo fyrir hana kom ekkert, enda reiö allt á því. Ég stóð í vélarrúmsgatinu svo rúm- lega höfuðið stóð upp fyrir, og stýrði. Við sáum fljótt eftir að komiö var af stað, að ekki mundi vit í því aö taka stefnu beint á Reykjavík, bár- an var svo kröpp og mikil, og ágjöfin að því skapi, því veðrið fór heldur versnandi, svo við afréöum aö taka stefnu á Álftanes, og reyna aö komast til Hafnarfjarðar. Þannig lá stefnan betur við bár- unni. Símon hugsaöi um vélina, en ég reyndi aö verja bátinn áföll- um. Viö erum ekki búnir aö stíma mjög lengi þegar ég vek máls á því viö Bjarna, aö fara upp og vita hvernig konunni líöi. Honum tekst að komast til hennar og líta undir seglið, kemur að vörmu spori aftur til mín og segir: „Nú er ekki gott í efni, konan er að eiga barn, og hún er í heilum buxum.“ „Hvað er þetta, maður," svara ég snöggt, „farðu undir eins og skerðu utan af henni buxurnar." Mér er í minni hvaö Bjarni færð- ist í herðarnar, þegar hann var aö opna sjálfskeiðing meö tömun- um, með fingrunum gat hann það ekki, hann var svo loppinn. Og í munninum varð hann svo að bera hnífinn til að geta haldið sér með höndunum þegar báturinn hentist til. Hann fer samt og framkvæmir það, sem fyrir hann var lagt, og kemur að því búnu niður í vélar- rúm. Eftir nokkra stund bendi ég Bjarna á að fara og vita um kon- una, - sem hann og gerir. Þegar hann kemur aftur eftir litla stund, spyr ég hann aö hvernig konunni líði. Hann segir að konan segi að sér líöi bærilega, og haldi að hún sé búin að eiga barnið. Ég svara því til, að eins og hann sjái getum við ekkert gert í þessu veðri, viö verðum að treysta Guði, að hann leiði þetta allt til góðra lykta. Nú fer ég að skilja, í hvaða til- gangi Oddný Ijósmóöir var höfö með í ferðinni, - og Jarþrúður, sem var mjög nærfærin við veika og þá einnig sængurkonut, hún hefur átt að vera nokkurs konar vara-ljósmóðir. Það hefur líklega verið happ að ég vissi ekki hvernig stóð á fyrir konunni. Hefði ég vitað hvernig ástatt var hefði ég aldrei lagt upp að flytja hana, og síst í þessu veðri. Hér var ekkert hægt að gera -einsogástóð, núvarþaönáttúr- an, sem tók í taumana. Viö vorum stödd út á sjó í stormi og húöar- ágjöf. Þetta varö alveg aö hafa sinn gang, eins og náttúran ráö- stafaði því. Geta má nærri hvernig konunni hefur liðið undir seglinu þegar bárurnar skullu á því. Við höldum áfram eins og hægt Verktakastarf sem i - Vélaleiga Höfum ávallt með litlum fyrirvara til þjónustu fyrir yður afkastamiklar vinnuvélar, svo sem: Jarðýtur með riftönnum, D7E, D7F og D8H Hjólaskóflur Vökvagröfur, 12 til 52 tonn Vörubíla (grjótvagna) 10 til 25 tonn Kranabíla- Dráttarbíla Flutningavagna allt að 60 tonnum Stóra vatnsflutningavagna Borvagna, víbróvaltara, loftpressur o.fl. Önnumst alls konar jarðvinnu, svo sem sprengingar og efnisflutninga í tima- og ákvæðisvinnu. Höfum á að skipa sérhæfðum mönnum. Ellert Skúlason hf. Skrifstofa sími 3580 Áhaldahús Ellerts, Sjávargötu 4, Njarðvík, sími 2515. FAXI - 211
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.