Faxi - 01.07.1984, Page 40
Ömefni með ströndinni
frá Básendum suður um
Ósabotna og Hafnir og
allt suður að Skarfasetri
á Reykjanesi
Frœðimennirnir sr. Jón Thorarensen og Guðmundur A. Finnbogason rœðast við.
Skúli Magnússon, landfógeti,
segir í sýslulýsingu sinni um Bás-
enda:
,, Verzlunarhöfnin Básendar er í
Stafneslandi. Þar er höfn 2 skipum
á milli lands og skerjagarðsins, en
þó hættuleg, einkum í véstan-
stormum, þegar hásjávað er.
Nokkur skip hafa farist þar, eink-
um fyrrum, enda var ekki siglt á
þessa höfn um hríð. Höfnin er því
eigi örugg, nema um hásumar og
með því að nota jámhringa þá,
sem reknir hafa verið bæði í kletta í
skerjagarðinum, og í jarðfasta
fjöruklettana. Eru þeir festir með
blýi, svo að hægt sé að binda skipin
í þá. í innra skipalæginu eru 4
jámhringar og 3 í hinu ytra. í fyrr-
nefndu skipalægi er dýpið 2 1/2
faðmur um fjöm, en 4 1/2 faður í
hinu síðamefnda. Pama hækkar
og lækkar í sjónum um 9 fet, þegar
stórstreymt er. Innsiglingin er
hættuleg, og verður að gefa nánar
gætur að siglingamerkjunum á
landi. Kringum hinar lágu klappir,
sem verzlunarhúsin standa á, er
allt þakið svörtum sandi, og era
aðstæður því illar til fiskverkun-
ar“.
Nokkra sunnar er Þórshöfn. Þar
er hin foma höfn verzlunarskipa á
síðari hluta 19. aldar. Samkvæmt
lýsingu Skúla fógeta, er leiðin 170
faðmar inn, en breidd 51 faðmur,
ef skip rista 6 fet. Þessi höfn var
notuð er Hansakaupmenn og
Þjóðverjar ráku verzlun hér, en
árið 1601 var síðasta verzlunarár
þeirra þar. Flest gátu 5 skonnortur
legið þar í einu, allar bundnar.
Þama var ætíð stillt inni, þó að
brim væri, því að skerjagarður að
framan hlífði.
Þarna í Þórshöfn gerðist sá at-
burður á árunum 1890-1895, að
útvegsbændur á Suðumesjum
komu þar saman til þess að ræða
fiskverð. Segja má að hér hafi ver-
ið eins konar upphaf íslenzkrar
kjarabaráttu sjómanna um fisk-
verð. Þama var mættur Ketill
dbrm. í Kotvogi með sonum sínum
og Salómon Björnsson frá Kirkju-
vogi, Einar Sveinbjömsson í Sand-
gerði, Jón Sveinbjömsson frá
Húsatóftum, Magnús Bergmann í
Fuglavík, og úr Grindavík Sæ-
mundur Jónsson og Tómas Guð-
mundsson.
Rétt austan við Þórshöfn er
Hvalvík og Hvalvíkurhólmi þar
ytra. Nokkru austar og innar er
komið að hinum gamalkunna og
merka stað Bárðarvör (sjá Ut-
nesjamenn), sem áður var stund-
um kölluð Prestatorfa, þegar
Hvalsnessprestar þjónuðu Kirkju-
vogssókn, en Hvalsnes var lagt
niður sem prestsetur árið 1811.
Fram til þess tíma var Bárðarvör
ferjustaður Hvalsnesspresta yfir
Osana í Kirkjuvogsvör, og þessa
leið notaði síra Hallgrímur Pét-
ursson stöðugt á áranum 1644-
1651, þegar hann þjónaði Kirkju-
vogskirkju frá Hvalsnesi. Eftir það
var Bárðarvör kölluð Grímsvör
um tíma, en það nafn hvarf fljótt
og frá síðustu aldamótum er óhætt
að segja, að vörin hafi aldrei verið
kölluð annað en Bárðarvör. Bárð-
arvör er smá vík, er skerst inn
norðan við Einbúa, sem er hár
hringmyndaður grashóll, og sést
víða að, bæði á landi og af sjó, og
er því mikið kennimerki sjósókn-
armanna.
Fyrir utan Bárðarvör er Hesta-
klettur (sjá Útnesjamenn), stór og
mikil klettaborg. Við austurhorn
Hestakletts var ætíð farið, þegar
ferjað var yfir Ósa. Á austurhorni
Hestakletta sitja ætíð dílaskarfar
og blaka vængjum til að þurrka
sig.
Nokkuð austur af Hestakletti er
Selsker, hættulegt sker. Það er
alltaf talið hættulegt að fara nærri
því. Þar drakknaði síra Ámi Hall-
varðsson og sjö manns með hon-
um 31. marz 1748.
Einbúi er eins konar löng eyja
frá norðri til suðurs og umflotin
sjó, en á fjöram má víða vaða yfir
rásina, sem umlykur hann, en strax
með aðfalli er það ekki hægt. Syðri
endinn heitir Vörðuhólmi. Við
suðurenda hans fellur sjór með út-
fallinu frá þessari löngu eyju, en
skammt frá er Runkhólmi, svo
þrengslin verða mikil með útfall-
inu í þessum þrönga ósi, og belj'
andinn ofsalegur, en stórsteinar,
strýtumyndaðir, hér og þar í botn-
inum, svo að þetta ér stórhættuleg-
ur staður fyrir báta.
Einu sinni fór ég niður þennan
ós, einn á tveggja manna fari. Eg
guerlain
ISSIMA línan erfyrir
konuna sem vill líta vel út
með lítilli fyrirhöfn.
Inniheldur fjögur árangurs-
rík efni.
Ilmur: villirós.
Apótek Keflavíkur
208-FAXI