Faxi

Årgang

Faxi - 01.01.1987, Side 7

Faxi - 01.01.1987, Side 7
hann þess að hafa með fyrri störf- um sínum unnið sér fádæma traust alþjóðar. Undir forystu Emils lagði þessi minnihluta- stjórn hans grunn að mesta stöð- ugleika tímabili í sögu íslenska lýðveldisins, þrátt fyrir meiri ut- anaðkomandi áföll en yfir okkur hafa gengið fyrr og síðar. Emil var svo stórhuga, að hann hlaut, sem stjórnmálamaður, að verða fyrst og fremst maður allrar þjóðarinn- ar. En þrátt fyrir þaö var það okk- ur Suðurnesjamönnum mikil gæfa, að hann var okkar þing- maður í mörg ár og sem slíkur þekkti hann manna best sínar skyldur, þótt hann hefði skömm á því, sem kallað er kjördæmapot. Sjálfsagaðan rétt okkar vildi hann tryggja og meðal mála, sem hann hafði forystu um má nefna Keflavíkurveginn, sem á sínum tíma hlaut nafnbótina „Ódáðar- hraun íslenskra vega“. Fyrstu til- löguna um að malbika eða steypa veginn flutti Emii á Alþingi 1955 ásamt Jörundi Brynjólfssyni. Árum saman var Suðurnesja- mönnum meinað að kaupa nýja fiskibáta, en fljótlega eftir að minnihlutastjórn Emils tók við 1958 var það bann afnumið og Suðurnesjamenn fengu sama rétt og aðrir landsmenn til bátakaupa. Næstu árin streymdu nýir bátar til Suðurnesja. l’annig mætti telja upp mörg mál stór og smá, sem Emil bar fram Suðurnesjum til heilla. Emil var lítillátur og barst ekki á þótt hann gegndi háum embætt- um. Gott dæmi þar um er, að þeg- ar hann flutti á Hrafnistu í Hafn- arílrði taldi hann sig í fyrsta sinn búa í ,,svítu“. Vinnudeilan 1955 í minningarþáttum sínum: Milli Washington og Moskva, segir Emil Jónsson frá störfum sínum í sáttanefnd í vinnudeilunni 1955 milli verkamanna og atvinnurek- enda. Verkföll höfðu staðið um það bil í mánuð í Reykjavík og Hafnar- firði og einnig hjá nokkrum félög- um úti á landi. Árferði árið áður hafði verið mjög gott, en þensla mikil í efna- hagskerflnu og skortur á vinnu- afli. Afkoma útflutningsatvinnu- veganna var hins vegar ekki góð, svo grípa þurfti til sérstakra ráð- stafana til þess að forðast stöðvun togaraflotans. Atvinnurekendur töldu sig því ekki geta orðið við kröfum verkalýðsfélaganna, en hin mikla eftirspurn eftir vinnu- afli leiddi til þess, að verkalýðsfé- lögin stóðu fast á kröfum sínum. Var um þetta þrefað og þjarkað í sáttanefnd í margar vikur, bæði nætur og daga. Báðir aðilar slök- uðu þó nokkuð til, en það reyndist ekki nóg, eftir var að lokum 4% bil, sem reyndist óbrúanlegt, þ.e. verkalýðsfélögin kröfðust 4% hærra kaups en atvinnurekendur gátu fallist á og hvorugur aðili vildi hnikra nokkru til og þá stóð allt fast. Mér var þá ljóst, skrifar Emil, að deilan myndi tæpast eða alls ekki verða leyst með frekari tilslökun af hálfu aðila. Annað- hvort yrði bilið milli aðila að verða brúað af utanaðkomandi aðila að mestu eða öllu leyti, eða ríkis- stjórn yrði að grípa til örþrifaráða, eins og gerðardómslaga, eða ein- hvers því um líks. Fór ég þá að velta fyrir mér hvaðan slík utan- aðkomandi aðstoð gæti hugsan- lega komið. Duttu mér þá í hug atvinnuleysistryggingarnar. Eng- ar slíkar tryggingar voru þá til hér á landi, eins og í nágrannalöndun- um, þær mundu áreiðanlega koma hér eins og þar. Ef nú hægt væri að slá tvær flugur í einu höggi, að leysa vinnudeiluna með því að stofna til atvinnuleysis- trygginga, væri mikið unnið fyrir vinnandi fólk í landinu. Það var ekki mikill tími til að vera með vangaveltur eða afla sér- fræðilegra upplýsinga, því vinnu- deiluna þurfti að leysa sem allra fyrst, hún hafði þegar staðið alltof lengi. Mér fannst að vel mætti hugsa sér að 4% af tekjum hinna tryggðu myndu nægja fyrir sæmi- legum bótagreiðslum til atvinnu- lausra, þó að atvinnuleysi væri nokkurt, en það er venjulegabæði staðbundið og tímabundið, en það voru einmitt 4% sem vantaði til að ná endum saman í deilunni. Og þó að þessi 4% kæmu ekki sem bein kauphækkun, þá nyti fólk hennar þó óbeinlínis, sem at- vinnuleysisbóta. Þar sem hér yrði um að ræða greiðslu til verkafólks í launadeilu, kom ekki til greina, að það yrði látið greiða neitt sjálft í þessu skyni, en það vissi ég þó að var gert erlendis, að verkafólk- ið — hinir tryggðu — greiddu nokk- uð af kostnaðinum. Fannst mér ekki ósanngjarnt að atvinnurekendur greiddu 1% eða % af kostnaðinum, sveitarsjóður sömu upphæð og ríkissjóður 2% eða helming. Sáttanefnd tók þessu vel og taldi rétt að reyna þetta. Þar kom að báðir deiluaðilar og ríkisstjórn- in féllust á að leysa deiluna á þennan hátt. Verkamenn fengu 10% grunnkaupshækkun auk nokkurra fríðinda. Ahugi Emils Jónssonar á endurbótum Keflavíkur vegar Þegar Keflavíkurvegur hafði verið steyptur frá Hafnarílrði suð- ur að Straumi, vildi þáverandi samgöngumálaráðherra, Ingólfur Jónsson, láta malbika veginn frá Straumi til Keflavíkur. Um þetta leyti, kl. 9 að morgni, hringir Emil Jónsson til mín og spyr mig, hvort við í bæjarstjórn Kéflavíkur höfum nokkuð rætt um framhald Keflavíkurvegar eða gert samþykktir þar um. Hann segist spyrja um þetta vegna þess, að Ingólfur Jónsson ráðherra vilji nú láta malbika framhald vegar- ins til Keflavíkur. Ég segi Emil að bæjarstjórn Keflavíkur hafi rætt um framhald Keflavíkurvegar og komi þar ekkert til greina annað en að vegurinn verði steyptur. Bréf frá bæjarstjórn til ríkisstjórn- ar liggi fyrir. Emil biður mig að senda sér þetta bréf og þurfi það að berast fyrir kl. 3 í dag. Ég hringdi í einn bflstjórann okkar hjá Sérleyfisbifreiðunum og bað hann að koma bréfinu til Emils, eins fljótt og hann gæti. Ég hringdi til Emils seinni hluta dagsins og spurði hann tíðinda. Hann vildi ekkert segja mér í sím- ann, en vildi að ég kæmi og talaði við sig. Það gerði ég fljótlega og þá sagði hann mér, að þegar málið hefði verið tekið fyrir, hefði Ing- ólfur eindregið mælt með því að vegurinn suður yrði malbikaður. Emii sagðist eindregið hafa mælt því gegn. Það væri hafin lagning steinsteypts vegar og því ætti að halda áfram suður til Keflavíkur. Um þetta var þráttað nokkuð, þar til Bjarni Benediktsson sagði: ,,Þar sem þið getið ekki komið ykkur saman um þetta, þá steyp- um við veginn alla leið suður til Keflavíkur," og þar með leystist þetta mál á farsælan hátt. Kona Emils var Guðtlnna Sig- urðardóttir frá Kolsholti í Flóa. Hún er dáin fyrir nokkrum ár- um. Böm þeirra em þessi: Ragnar, arkitekt, Reykjavík; Vilborg, bú- sett í Bandaríkjunum; Jón raf- virki, Hafnarfirði; Sigurður Gunnar, viðskiptafræðingur, Hafnarflrði; Sighvatur Birgir, sóknarprestur, Ásum Skaftár- tungum og Guðrún, hjúkrunar- kona, Hafnarflrði. Minning um góðan dreng mun lengi lifa. Ólafur Björnsson Ragnar Guðleifsson. FAXI 7

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.