Faxi - 01.01.1987, Qupperneq 9
Fró vinstri: Kristrún Helgadóttir 1. forseti, Helga Jónsdóttir, Ásdís Jóhannsdóttir,
Svana Runólfsdóttir, Fjóla Sigurbjömsdóttir, Guðrún Björgvinsdóttir, Gudlaug
Jóhannsdóttir, Harpa Iwvaldsdóttir, MargrxSt Jakobsdóttir nóvemndi forseti. A
myndina vantar Sigrúnu Ámadóttur.
GLÆSILEGUR
AFMÆLISFUNDUR
Tíu ára aimæli Inner-Wheel klúbbsins í Keflavik
veldanna ræddust við í Reykja-
vík. Og nú eftir þann fund, er og
verður enn meir ltnúið á af hálfu
jarðarbúa, að þeir sem ráða örlög-
um okkar og tilvist stígi raunhæf
skref í afvopnunar- og friðarátt.
Það fór hryllingur um margan
hug, þegar fyrsta kjarnasprengjan
féll. Þó var þá styrjöld og enginn
óvanur válegum tíðindum. Arin
liðu. Kjarnorka í ffiðsamlegum
tilgangi, segja menn. Og þegja um
þá staðreynd, að hvert kjarnorku-
ver hleður upp banvænum efn-
um, sem eyðast ekki um aldir. Og
slysið f Chernobyl hefur sett oss
hljóða, gert oss ljóst, að hættan
stafar ekki af tækninni sjálfri,
heldur af mannlegum mistökum.
Við stöndum frammi fyrir há-
tækniháska. Því ægir sú tilhugs-
un, að tæknin gæti útrýmt öllu lífi
á jörðinni á snöggu augabragði.
Sá kvíði myndi óbærilegur, ef
ekki væri vonin. Hún bjarmar í
myrkrinu, þrátt fyrir allt. Þess
vegna er baráttan fyrir friði köllun
og hugsjón.
Rótarý vekur vonir fæddra
barna og óborinna í þróunarlönd-
unum, þar sem næstu tvo áratug-
ina, allt til ársins 2005 á aldaraf-
mæli rótarýhreyfmgarinnar,
verða hundruðir milljóna barna
bólusett gegn lömunarveiki,
berklum og öðrum skæðum sjúk-
dómum. POLIO-PLUS heitir
þetta mikla rótarýverkefni, sem
unnið er í náinni samvinnu við
stofnanir Sameinuðu Þjóðanna.
Stefnt er að því að alþjóðahreyfing
Rótarýs ljái þessu verkefni 120
milljón dollara framlag. Einnig við
íslensldr rótarýmenn ætlum að
vera með.
Og aftur segi ég: ... Nýtt rótarý-
ár er byrjað. Tökum því opnum
örmum. Og meðal verkefna okkar
er að brydda upp á einhverju nýju
í starfseminni, hver í sínum
klúbbi og í rótarýumdæminu í
heild, því að það er alltaf betra að
gera eitthvað óskipulega en að
gera ekkert skipulega.
Oft er spurt: Hvernig á góður
rótarýfundur að vera? Eitt fátæk-
legt svar:
Hann má gjarna bera virðulegan
blæ formfestu við fundarsetningu
og hlýlega kynningu gesta. En
síðan yfirbragð gleði, viðræna og
kímni. Fundarefni á helst að vera
fjölbreytilegt frá fundi til fundar.
Og þar geta rótarýfélagarnir lagt
ótrúlega mikið fram sjálfir. For-
seti á líka að fylgjast með merkis-
dögum rótarýfélaga, frama
þeirra, stöðuhækkun eða viður-
kenningu og minnast þess á rótrý-
fundi, — gera fundina vinalega.
I rótarýklúbbi á einnig að gera
sér dagamun: Jólafund, sumar-
ferð, haustferð, sona- og dætra-
fund, árshátíð, heimsókn til
annars rótarýklúbbs. Svo eitthvað
sé nefnt.
Rótarýfélagar, virðulegir gestir.
Við hjónin höfum undanfarnar
vikur heimsótt rótarýklúbbana
sem ijarst eru höfuðborgarsvæð-
inu: Norðurland, Austfirði, Vest-
urland, Vestfirði, Vestmannaeyj-
ar. Og aldrei sem fyrr hef ég sann-
færst um hvað eyjan vor er rík og
gjöful, þrátt fyrir kletta sína, fljót,
sanda, fjöll og öræfi. Ævintýra-
heimur lykur um gestinn. En
mest er þó um vert, mannlífið,
fólkið sem ræktár landið, sækir
sjóinn og myndar íslensku lífs-
keðjuna. TVímælalaust á það skil-
ið sömu þjónustu og íbúar ann-
arra landshluta. Það á sinn hlut af
auði íslands.
Herra forseti.
Einn af hornsteinum rótarý-
starfseminnar er mannleg sam-
skipti kunningja og vina.
Mestur ritsnillingur íslenskrar
tungu, Snorri Sturluson, segir svo
í Skáldskaparmálum: , .Hvernig
skal kenna manninn? Hann skal
kenna við verk sín, — það er hann
veitir eða þiggur eða gerir“.
Og í engu kemur drengskapur
betur fram en því, hvernig menn
halda orð sín og fyrirætlanir, —
hvernig þær ávísanir greiðast, er
menn gefa á sjálfa sig. En lífið er
löngum snúið tveimur þáttum:
Fyrirætlunum og framkvæmd.
Markmið okkar á nýju rótarýári
geta og eiga að verða margs konar.
Hið fyrsta er félagsskapurinn,
kynnin, vináttan. Því að Rótarý
ert þú.Milljón menn í 22.000
rótarýklúbbum í 160 þjóðlönd-
um.
Og til okkar berast þessi skila-
boð frá MAT CAPARAS forseta
Rotary International: „Rotary
Brings Hope“. — „Rótarý vekur
vonir“.
Brauð handa hungruðum, vatn
til handa þyrstum, sjúkum betri
heilsa, börnum von og vissa um
lengri lífdaga og heilbrigðara líf.
Von um frið og kærleika manna
og þjóða í milli.
Vonin er framtíðarsýn. Það er
hún sem stjórnar móður og föður,
þegar þau leiða barn sitt fyrstu
sporin. Barnið er vanmáttugt í
hörðum heimi, þó að til þess sé
stofnað af ást og umhyggju.
Okkur dreymir um betri heim.
Menn vona að feigðarmerkin
þoki fyrir lífsins fyrirheitum.
Og vonin er góðum félagsskap
hið sama og birtan traustu húsi.
Án hennar væri dimmt og kalt,
þrátt fyrir alla tækni - þrátt fyrir
öll vísindi. Vonin eflir barnið í
manninum og beinir sjónum hans
til himins. Kannski er trúin, frels-
ið og vonin eitt og hið sama.
Félagskonur í þessum samtök-
um eru konur Rótarýmanna og
eru starfandi um allan heim þar
sem Rótarý fær að starfa. Hér í
Keflavík stofnuðu þær klúbbinn
fyrir 10 árum og héldu upp á af-
mælið á Glóðinni 20. janúar s.l.
Húsfyllir var, þar eð þær buðu
mönnum sínum og fleiri gestum
til afmælishófsins. Margrét
Jakobsdóttir, forseti klúbbsins
stjórnaði samkvæminu og flutti
skemmtilega ræðu en aðalræðu
kvöldsins flutti Kristrún Helga-
dóttir, fyrsti forseti klúbbsins.
Hún sagði sögu og tilgang Inner
Wheel, sem í stuttu máli er, að
styðja og stuðla að Rotary, sem
hefur að megin markmiðum að
efla kynni og vináttu, virða rétt
allra manna án tillits til litarhátt-
ar, stjórnmálaskoðana, trúar-
bragða eða búsetu og að treysta
þjónustuhugsjónina í daglegum
störfum — auk ýmissa hugsjóna,
verkefna sem til falla, eins og
Rótary vinnur nú að við útrým-
Kæru vinir og rótarýfélagar.
Innsti kjarni klúbbþjónustunn-
ar er mannleg samskipti.
Mennskur félagsandi, persónuleg
velvild er undirstaða árangursríks
samstarfs í Rótarý.
Þessi er ósk mín og von:
ad árið okkar framundan verði
eftirminnilegt í umdæminu og öll-
um rótarýklúbbunum í umdæmi
136,
ad þið athugið um stofnun þjón-
ustuklúbbanna Interact eða
Rotaract eða KARLS ÞRIÐJA,
ad rótarýstarfið hafi gleðilegt
yfirbragð því að þú þarft að
hlakka til rótarýfundarins þíns.
ingu kúabólusóttar, með því að öll
börn í heiminum verði bólusett
fyrir árið 2000. Heimaverkefni
eru líka stöðugt til staðar. í hófinu
fór fram öflugt skyndihappdrætti
með um 30 vinninga - þar á með-
al utanlandsferð fyrir einn.
Happdrættið skilaði kr. 70.500.-,
sem rennur óskipt til þroskahjálp-
ar á Suðurnesjum. En þann
félagsskap hafa Inner Wheel konur
hér stutt dyggilega.
Afmælishóf þetta var fyrir
margra hluta sakir hið ánægjuleg-
asta. María Guðmundsdóttir,
ágæt sópran söngkona söng nokk-
ur lög við undirleik Sólbjargar
Sveinsdóttur, tónlistarkennara.
Einnig spíluðu ljúfa dinner músík
lengi kvölds þeir Steinar Guð-
mundsson á píanó og Kjartan Már
Kjartansson, skólastjóri Tónlist-
arskólans í Keflavík á fiðlu. Kvöld-
stund til ánægju og sóma fyrir
Inner Wheel í Keflavík.
Félagar og vinir. Rótarý boðar
góðvilja, þjónustu, vináttu. Okk-
ar markmið, embættismanna
Rótarý, forseta, ritara, umdæmis-
stjóra, allra rótarýfélaga - mark-
miðið er að hlúa að starfinu, að
rótarýfundunum, — að félagar og
gestir finni sig notalega heima.
Varðveitum því samheldnina og
drenginaí sjálfum okkur. Komum
til rótarýfundanna með glöðum
huga - félagar félaga okkar, - og
minnumst þessa alla tíð: „að sá
sem vinur er, — mun vini finna.“
Ég óska ykkur velfamaðar í
starfi og einkalífi öllu.
J.T.
RtXl 9