Faxi - 01.01.1987, Síða 10
Valgcrdur Guðmundsdöttir jrá
Klöpp giftist Dagbjarti Einarssyni
frá Garðshúsum og eignaðist með
honum 9 börn. Dóttir þeirra
Valbjört býr í Bandaríkjunum en d
myndinni eru, standandi frá
vinstri: Bryndís, Margrét, Guðrún,
Einar, Guðmundur og Jóhanna.
á síðustu áratugum
Elstu menn minnast þess, að í
byggðum Suðumesja vom heima-
menn sárafáir, aðeins örfá hundr-
uð og á vertíðum urðu vermenn
jafnvel fleíri en skráðir íbúar.
Algengt var að vermenn réðu
heim til sín kaupakonur úr röðum
heimasæta og úr því varð stund-
um hjónaband. Sumar festu sér
röska sveitapilta og gerðu þá að
sjómönnum í heimabyggð. Allur
gangur var á þessu og mikil dreif-
ing inn og út á við. Þegar frá líður
slitna því oft tengsl milli kunn-
ingja og jafnvel náins ættfólks.
Hér er gott dæmi um þetta:
Guðjón Kristórfersson, Háaleiti
1 í Keflavík, stakk að mér mynd af
afa sínum, Bjarna Jónssyni frá
Melbæ í Grindavík, en Bjami
flutti til Vestmannaeyja til Þór-
kötlu dóttir sinnar er hann varð
ekkjumaður.
Jón Jónsson, faðir Bjama, og
kona hans Valgerður Guðmunds-
dóttir bjuggu í Þórkötlustöðum
um og eftir 1860. Þau eignuðust 3
dætur og 3 syni. Út af þeim eru
komnir stórir ættbálkar sem átt
hafa leiðir og búsetu um allt land
raunar sumt líka erlendis.
Eins og dður er frá sagt eru afkomendur Guðmundar Jónssonar i KIöpp, sá œttleggur sem fœrt he/ur Jóni á Þórkötlu-
stöðum flesta afkomendur. A þesssari mynd er Árni Guðmundsson á Tbigi ásamt konu sinni Ingveldi Þorkelsdóttur,
meðbörnin. Aftari röðfrá vinstri: Margrét, DagmarMaría, Þorke/J, Jón, Ármann, Guðmundur, Laufey. Sitjandi: Unn-
ur, hjnnin ÁmiogIngveldurog Vilborg. TVo drengi misstuþau hjónin ífrumbernsku, þá Inga Ármann og VilborgMagn-
ús. Ámi varformaðurogútgerðarmaður íáratugi. Hann varafburðagóðurbassasöngvari. Þau hjón voru bœðiglœsileg
og skörtuðu gjarnan sínu bestu þegar þau fóru afbœ og vöktu því athygli. Árni er nú 95 ára, vistmaður á Hrafnistu
í Hafnarfirði. Þrátt fyrir háan aldur er reisn yfir Áma, karlmannlegur og hlýr viðmóti. Ingveldur var frá Þorbjarnar-
stöðum á Hraunum. Hún dó áríð 1970.