Faxi - 01.01.1988, Síða 5
adarmannafélagid í Reykjavík
gaf iít Iðnsögu íslands í tveim
bindum 1943. Flest er þar vel
unnið en aðeins fjallað um fáar
iðngreinar, mest um trésmíði en
ekkert er á rafmagn minnst svo
dœmi séu nefnd. Fátt segir frá
20. öld og að sjálfsögðu er þar
ekkert frá síðasta aldarhelm-
ingi — mesta atvinnubyltingar-
skeiði íslandssögunnar.“
Höfundurinn, Sumarliði Ragnar
Isleifsson, lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1974,
nam síðan plötu- og ketilsmíði' í
Landssmiðjunni í Reykjavík og lauk
sveinsprófi 1979. Sumarliði hóf
síðan sagnfræðinám við Háskóla
íslands og lauk þaðan B.A.-prófi
1984 og cand.mag.-prófi 1986. Bók
þessi er að stofni kandidatsritgerð
og mun Sumarliði vera fyrsti
iðnaðarmaður hérlendis sem slíkt
verk hefur samið um iðngrein sína.
Bókin fjallar um eina af elstu iðn-
greinum íslendinga, jámsmíði.
Meginefni ritsins er saga málmiðn-
aðar á íslandi á 19. öld og fyrri hluta
20. aldar. Fjallað er um verklag,
vinnubrögð, verkfæri og vélar og
rakin þróun þessarar merku iðn-
greinar.
Menntun málmiönaðarmanna og
öflun þekkingar erlendis frá em
gerð góð skil. Við sögu koma flest
helstu fyrirtæki í jámsmíði, smá og
stór, upphaf þeirra og þróun. Öll er
þessi frásögn snar þáttur af at-
vinnusögu þjóðarinnar og lífi fólks í
landinu.
unni: Meðal annars er unnið að út-
gáfu tveggja binda af Safni til Iðn-
sögu íslendinga. Handrit af ullar-
vinnslusögunni, ULL VERÐUR
GULL getur farið í prentsmiðju um
næstu mánaðamót. Lokið er klipp-
ingu myndbands sem fylgja skal
bókinni og gætu bæði bók og mynd-
band komið út í vor. Ullarvinnslu-
sagan verður tölusett sem II. bindi
ritraðarinnar en saga bifvélavirkj-
unar, eftir Asgeir Sigurgestsson,
verður III. bindi. ULL VERÐUR
GULL nær til nútímans en saga bif-
vélavirkjunar aðeins til 1937. Síðara
bindi þeirrar sögu er vel á veg kom-
ið. Gerð hefur verið áætlun um
myndband er sýni framvindu í iðn-
greininni til þess árs en taka er ekki
hafin. Aformað er að vinna það verk
í apríl. Sú bók, ásamt myndbandi,
ætti að geta komið út í haust -
væntanlega í september.
Heita má að fullgert sé handrit
Lýðs Bjömssonar að steinsteypu-
sögu.
Helgi Guðmundsson lýkur rit-
smíð um sögu veiðafæragerðar í
sumar.
Iðnsaga Austurlands, eftir Smára
Geirsson, er í miðjum klíðum.
Eins og fram hefur komið er lön-
saga Austurlands í smíðum hjá
Smára Gestssyni, hinum snjalla
söguritara í Neskaupstað. Áhuga-
vert hefði verið fyrir Suðurnesja-
menn að sameinast um að hafin
verði söguritun um Iðnsögu Suður-
nesja áður en fennir í sporin.
SVERRIR
HERMANNSSON
JÓN
BÖÐVARSSON
SUMARLIÐI
ÍSLEIFSSON
Bókin er skrifuð á lipran og lífleg-
an hátt og í henni er að finna kvæði
um jámsmíðar eftir nokkur höfuð-
skáld íslenzkrar ljóðagerðar, skrá
yfir fyrirtæki í málmiðnaði og á
áttunda tug ljósmynda prýða bók-
ina. Meðal mynda er málverk af
eldsmiðju eftir Suðumesjamanninn
Oskar Jónsson, listamann og þús-
undþjalasmið. Loks er fróðlegur og
skemmtilegur kafli um Orðtök
funnin frá jámsmíði eftir Halldór
Halldórsson, fyrrverandi prófessor.
Með prentun fyrsta bindis í ritröð
urn Iðnsögu íslendinga hefur rit-
stjórinn, Jón Böðvarsson, tekið í
sína þjónustu kvikmyndafyrirtæk-
m, því að gert hefur verið mynd-
band tengt efni bókarinnar er sýnir
hvernig vinnubrögð í jámsmíði hafa
breyst úr handverki í nútíma tölvu-
vinnslu.
I mörg horn er að líta hjá Iðnsög-
Jón Böðvarsson, ritstjóri Iðnsögu
íslendinga, er Suðumesjamönnum
að góðu kunnur. Hann lauk
cand.mag.-prófi í íslenskum
fræðum frá Háskóla íslands 1964.
Hann var fyrsti íslenskukennari
Menntaskólans við Hamrahlíð 1966
og starfaði þar í áratug var síðan
skólameistari við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja frá stofnun hans 1976 til
ársloka 1984.
Iðnsaga íslendinga er sjálfstæð
stofnun - tengd Þjóðskjalasafni -
undir beinni stjórn menntamálaráð-
herra. Ritstjóri ákveður efnisval í
SAFNI TIL IÐNSÖGU ÍSLEND-
INGA í samráði við höfunda sem
hann velur til þess að semja ritin.
Útgáfutilhögun er samákvörðun rit-
stjóra og Hins íslenska bókmennta-
félags, sem er útgefandi rita frá Iðn-
sögu íslendinga.
Eyþór Þórðarson.
Óskar Jónsson, fœddist á Seyðisfirði 1910. Hann nam rennismíði í vélsmiðjunni Hamri (Reykjavík 1924—1928. Aðþvf loknu hófhann vélstjómamám
og lauk prófi frá rafmagnsdeild Vélsköla íslands 1936. Starfandi vélstjóri var hann lengi stðan víða um land og á sjó. Alla starfsœvi sína var Óskar
að afla sér mcnntunar og sötti fiölda námskciða við menntastofnanir hérlendis og erlendis. 1943 hófhann kennslustörf og stundaði þau ásamt vélsmfði
(aldarþriðjung cn varð fastráðinn vélstjórnarkennari við Fjölbrautasköla Suðurnesja 1976 og var þar i fullu starfi til sjötugs. Frístundamálari hcfur
Óskarveriðíáratugi, haldiðsjálfstœðarmálverkasýningarogtckiðþáut isamsýningum. Málverkiðsem hérer Ijösmyndaðsýnirvel handbragðÓskars
- og hejur eihnig menningarsögulcgt gildi. Óskar málar efiir minni eldsmiðjuna gömlu i Hamri þar sem hann lœrði járnsmiðaiðn.