Faxi - 01.01.1988, Page 7
10 AÐALFUNDUR
KtFLA, 1987
Guðfinnur Sigurvinsson, forseti Bœjarstjómar Keflavfkur og formadur SSS, fiytur skýrslu stjómar.
AÐALFUNDUR SSS
Fyrr í vetur hélt SSS — Samband Sveitarfélaga á Suðnrnesj-
um 10. aðalfund sinn. Þar sem hið sameiginlega starf sveitar-
félaganna fer sífellt vaxandi og tekur til æ fleiri þátta, þá
fannst Faxa forvitnilegt að birta frásögn af fundinum. Munum
við geta þeirra mála er helst var fjallað um og segja nokkuð
frá helstu ályktunum og samþykktum sem gerðar voru.
Aðalfundurinn var að þessu
sinni haldinn á Glóðinni í Keflavík
og voru fulltrúar alls 46 og skiptust
þeir þannig á milli sveitarfélaganna:
Sandgerði 8, Grindavík 7, Hafnar-
hreppur 4, Gerðahreppur 4, Kefla-
vfk 10, Njarðvík 8 og Vatnsleysu-
strandarhreppur 4. Þar að auki sat
fundinn starfsfólk SSS með fram-
kvæmdastjórann, Eirík Alexand-
ersson, í fararbroddi.
Allmargir gestir sátu aðalfundinn
m.a. vegna þeirra erinda er flutt
skyldu, því auk venjulegra aðal-
fundarstarfa voru mörg merk mál
tekinfyrir. Gestimirvoru: Sigurgeir
Sigurðsson, Ingólfur Aðalsteinsson,
Hjálmar Ámason, Jóhann Sveins-
son, Ingiþór Jónsson, Jóhann Ein-
varðsson, Geir Gunnarsson, Kjart-
an Jóhannsson, Ragnar K. Þor-
grímsson, Steingrímur Hermanns-
son, Níels Ámi Lund, Karl Guð-
mundsson, Láms Jónsson, Unnar
Stefánsson, Logi Þormóðsson, Þor-
valdur Ólafsson, Kristín Halldórs-
dóttir, Hreggviður Jónsson, Júlíus
Sólnes, Ólafur G. Einarsson.
'Auk þess frá fjölmidlum: Emil
Páll Jónsson og Páll Ketilsson (Vík-
urfréttir) Bjöm Blöndal (Morgun-
blaðið) Ellert Grétarsson (Reykja-
nesi) Þorgrímur Gestsson (útvarp-
ið) Halldór Levy (Reykjanes) Bjöm
Birgisson (Bæjarbót). Nokkrir gest-
anna fluttu ávarp, þar á meðal
Steingrímur Hermannsson, utan-
ríkisráðherra. I ræðu hans kom
fram, að til stæði að færa nokkuð af
því landi sem tilheyrði vamarliðinu
til sveitarfélaganna. í ávarpi Karls
Steinars Guðnasonar, alþingis-
manns, kom m.a. fram, að SSS
væm samtök sem víða væri vitnað
til og tekin til fyrirmyndar í sam-
starfi sveitarfélaga annars staðar á
landinu. Hann kom víða við í ávarpi
sínu en sagði að lokum að hann væri
þess fullviss að sameining myndi
takast með sveitarfélögunum á Suð-
umesjum, eyða yrði tortryggni, þó
er ástæða til að flýta sér hægt, en
samstaðan mun færa okkur nær
réttlætinu.
Skýrsla stjómar
Formaður SSS Guðfinnur Sigur-
vinsson flutti skýrslu stjómar, ítar-
lega og greinargóða sem dreift var á
fundinum. Þar kom m.a. fram að
þetta hefur verið óvenju annasamt
ár hjá SSS. Sem að stómm hluta má
rekja til nýrra samþykkta sem sam-
þykktar vom á síðasta aðalfundi og
einnig til þess, að samverkefnum
sveitarfélaganna fjölgar stöðugt. Til
marks um þetta aukna starf væm
bókaðir stjómarfundir 16 á árinu.
Starfslið skrifstofu SSS var óbreytt
frá fyrra ári. Formaður greindi ffá
hinum ýmsu málum sem stjómin
íjallaði um á síðasta ári s.s. að Fisk-
markaður Suðumesja er orðinn að
veruleika. Hugmyndir Þróunarfé-
lags íslands um stofnun fjárfesting-
arfélaga í kjördæmum landsins.
Stofnun útgerðarfélagsins Eldeyjar
sem lítur dagsins ljós nú alveg á
næstumi og er stofnað til að efla
sjávarútveg á Suðurnesjum og reisa
hann til vegs og virðingar á ný.
Námskeið og verkamannabústaði
og námskeið fyrir kjöma fulltrúa í
sveitarstjómum. Heimsókn sveitar-
stjómarmanna af Suðumesjum til
SSH og heimsókn alþingismanna til
sveitarstjóma á Suðumesjum. Nýjar
samþykktir SSS en helstu nýmæli
þeirra em í 7. og 8. grein um stofn-
un fjárhagsnefndar og launanefnd-
ar SSS og valdið hafa róttækum
breytingum. Tillaga endurskoðun-
amefndar um framhaldsaðgerðir í
sameiningarmálum og kosning sjö
manna undirbúningsnefndar.
Samþykkt síðasta aðalfundar sem
felur í sér að SSS taki að sér hlut-
verk héraðsnefnda samkvæmt nýj-
um sveitarstjómarlögum. Enn sem
komið er hefur héraðsnefnd hvergi
verið komið á fót. Málið hefur samt
þokast í rétta átt. Við bíðum því
átekta.
Samvinnunefhd um skipulagsmál
ásamt verkefnisstjóm hefur unnið
áfram að gerð svæðisskipulags Suð-
umesja á árinu, samkvæmt áætlun
þar að lútandi.
Formaður og framkvæmdastjóri
Sambands ísl. sveitarfélaga hafa
óskað eftir að stjóm SSS kannaði
hvort unnt væri að koma gjald-
heimtu á laggimar um næstu ára-
mót, þannig að sú gjaldheimta gæti
orðið fyrirmynd fyrir aðra lands-
menn. Stjóm SSS varð við þessari
áskomn og kaus í framhaldi af því
3ja manna gjaldheimtunefnd SSS
og stofnun Gjaldheimtu Suðumesja
nú komin á lokastig.
Á síðasta aðalfundi var samþykkt
að halda almennan fund sveitar-
stjómarmanna á Suðumesjum þar
sem vatnsmálin verði eina umræðu-
FAXI 7