Faxi - 01.01.1988, Side 12
MINNING
Elfar Þór Jónsson
matsveinn
f. 18. janúar 1957 —
Náð sé með ykkur og friður frá
Guði foður og Drottni Jesú Kristi.
Amen.
Þessi stund hér í kirkjunni er
helguð minningu tveggja sjó-
manna er fórust með bátnum
Bergþóri KE 5 frá Keflavík, 8. jan-
úar sl. Þrír af 5 manna áhöfn
björguðust giftusamlega. Annar
mannanna er fórst var úr Kefla-
vík, hinn úr Njarðvíkum. Sorgin
hefur varpað skugga á þessar tvær
byggðir undanfarnar vikur. Allir
sem eitthvað láta sig varða líðan
annarra skynja djúpa sorg að-
standenda, sem eiga um sárt að
binda.
Okkar fámenna þjóð hefur
margan ungan manninn misst við
skyldustörf á hafi úti og ekki að-
eins vinir og vandamenn standa
þá þétt saman. Við syngjum hér á
eftir . . . „þegar hendir sorg við
sjóinn, syrgir, tregar þjóðin öll“
(Sálmur 497).
Já, það er gott að vera ekki einn
með sorg sína, finna áþreifanlega
að sú sára sameiginlega reynsla,
að missa kæran ástvin, færir okk-
ur nær hvert öðru. Öðrum þykir
vænt um okkur. Það sýnir hlýtt
handtak, tárvot augu, nærvera
þeirra. En jafnframt er okkur ljós
þörfin fyrir aðra og máttugri hugg-
un er leiðir okkur um harmsins
nótt.
Hvar getum við fundið sorg okk-
ar samastað, og leið úr myrkri, ef
ekki í kirkjunni, frammi fýrir aug-
liti þess Guðs, sem mun þerra
hvert tár og sefa hjarta okkar, hjá
honum sem einn hefur orð ljóss og
lífs, orð upprisunnar.
Eg hóf þessi orð mín með litlu
ávarpi sem byijaði á orðinu náð.
Náð Guðs. Það er sama og misk-
unn hans og fyrirgefhing. Og við
sungum líka áðan ,,Ó, þá náð að
eiga Jesú, einkavin í hverri
þraut.“ Saga Krists segir okkur að
sá Guð sem hann birtir sé okkur
d. 8. janúar 1988
svo nærri, að andvarinn nær helst
að lýsa því. Svo nærri er Guð
manninum og maðurinn Guði.
Það er þessi nálægð hans, sem við
nú treystum á þegar við minnumst
sjómannanna sem við svo sárt
söknum. í einum Davíðssálmin-
um lesum við:
Drottinn er nálœguröllum þeim
sem ákalla hann. Öllum sem
ákalla hannn í einlœgni. Hann
uppfyllir ósk þeirra, er óttast
hann, og hrópþeirra heyrir hann
oghjálparþeim. (Ds. 145:18-19.)
Guð er ekki fjarlægur Guð. Þar
sem sorgin var þar var Jesús jafn-
an nærri. Hann gladdist með glöð-
um og syrgði með sorgmæddum.
Eitt stysta vers Biblíunnar er að-
eins þijú orð: Þá grét Jesús. Það
var við dánarbeð góðs vinar. Hann
heyrði ákall vina sinna, tók þátt í
sorg þeirra og táraðist. En hann
var líka kominn til þess að hjálpa,
mæla fram máttugt orð lífsins.
Á sama hátt setjum við nú, vinir
Jesú, allt okkar traust á að Guð
hafi heyrt áköll okkar, hróp okkar
til hans um náð hans, hróp sem
voru borin fram í hljóðri bæn hins
skerandi hjarta. Sálmurinn gamli
segir að þegar við áköllum af ein-
lægni séum við rétt hjá Guði og
Guð nálægur okkur. Með tárvot-
um augum okkar og trega eigum
við aðeins þessa einu von, að
herra lífs og dauða hafi verið nærri
þegar ástvinir hurfu í öldur hafs-
ins. Að þeir séu nú umvafðir nær-
veru hans, já að þeir hafi fundið
þann hlýja andblæ hans leika um
sig, sem er nær en nokkurt okkar
órar fyrir og fundið að samfélagið
hjá honum er kærleiksríkara en
mannlegt hjarta fær numið hér á
jörðu. Þeir hafa verið kallaðir inn
til þess samfélags sem hefst við
upprisu inn til eilífs lífs. Það er
samfélagið við Jesúm Kristhinn
krossfesta og upprisna Drottin
okkar og frelsara. Honum sé lof og
dýrð um aldir alda.
Þetta skulu vera okkur hugg-
unarorð á þessari sorgarstundu.
Æviatriði
Elfar Þór var aðeins þrítugur að
aldri. Hann fæddist í Njarðvíkum
18. janúar 1957 sonur hjónanna
Jóns Þ. Sigurjónssonar sem fædd-
ur er í Njarðvíkum en upp alinn í
Landeyjum og Rósu Amgrímu
Amgrímsdóttur frá Akureyri. Elf-
ar var fjórði í röð 6 bama þeirra
hjóna. Hin em Amar, Sigurður,
Guðbjörg Magnea, Svanhildur og
Halldór, sem öll búa hér í Keflavík
og Njarðvík.
Elfar gekk í skóla í heimabyggð
sinni, en var jafnframt tvo vetur í
Hlíðardalsskóla. Eins og svo
margur unglingurinn stundaði
hann íþróttir af kappi og heillaði
körfuknattleikur hann og náði
hann góðum árangri með UMFN
en þar var hann virkur félagi.
Að loknu gagnfræðaprófi fór
hann að vinna, bæði við almenna
verkamannavinnu, m.a. hjá Ellert
Skúlasyni, síðar hjá Amari bróð-
ur sínum við smíðar. 1 þrjú ár vann
hann við vörubílaakstur hjá Fisk-
verkun R.A. Péturssonar í Njarð-
vík. En sjórinn heillaði hann. Um
tíma vom þeir feðgar saman á
bátnum Ólafi og seinna vom þeir
Sigurður bróðir hans saman tveir
með lítinn bát.
1983 stofnaði hann heimili í
Keflavík, með eftirlifandi sambýl-
iskonu sinni, Halldóm Grétars-
dóttur. Hún er fædd 2. júní 1957,
dóttir hjónanna Grétars Gíslason-
ar og Sveinbjargar Kristinsdóttur.
Fósturfaðir hennar er Sigurbergur
Guðmundsson. Grétarfaðirhenn-
ar fórst á báti sínum fýrir tæpum
30 ámm á svipuðum slóðum og
Bergþór fórst. Elfar fagnaði því
mjög er hann fékk pláss á Berg-
þóri rétt eftir áramótin og hafði að-
eins farið í þrjár ferðir með honum
er hinn örlagaríki dagur rann upp.
Þau Halldóra áttu saman einn
son, Jón Þór sem er 4ra ára og hjá
þeim var líka Sveinbjörg Júlía 11
ára, dóttir Halldóm. Áður en leið-
ir þeirra Halldóru lágu saman, átti
Elfar eina dóttur, Svövu nú 9 ára,
sem býr hjá móður sinni og ömmu
í Reykjavík. Böm vom hænd að
honum og hann hafði mikið yndi
af að umgangast þau. Það lýsir
meir en mörg orð hvem mann
hann hafði að geyma. Halldóra og
Elfar vom flutt að Tlinguvegi 10 í
Njarðvíkum, þar sem þau höfðu
nýlega fest kaup á íbúð.
Hans er sárt saknað af öllum
sem hann þekktu. Ásta mágkona
hans gat ekki verið hér viðstödd,
en hún dvelur nú á sjúkrahúsinu
hér. Ég flyt hér sérstakar kveðjur
hennar.
Guð blessi minningar ykkar
allra um hann.
Við biðjum algóðan Guð að
styrkja og leiða um ókomna daga,
unnustu hans, böm, foreldra, afa
og ömmu, systkini og fjölskyldur
þeirra, vini hans og vandamenn
alla, nær og fjær.
Guðs blessun fýlgi minningunni
um góðan dreng, Elfar Þór Jóns-
son. Hann hvíli í faðmi hins eilífa
föður.
Drottinn við áköllum þig, heyr
bænir okkar, lát okkur finna ná-
lægð þína og kærleika. í Jesú
nafni. Amen.
Sr. Þorvaldur Karl Helgason,
sóknarprestur í Njarðvík
FAXI