Faxi - 01.01.1988, Síða 17
- Ræðupúlt, gefið af ættingjum Sig-
ríðar Júlíönu Magnúsdóttur og
Ama Magnússonar frá Landakoti.
- Kristalskanna og glas á altari frá
Kvenfélaginu Hvöt í Miðneshreppi.
- Þá bárust kirkjunni nýjar sálma-
bækur að gjöf, 100 að tölu.
Einnig bárust kirkjunni margar
rausnarlegar peningagjafir en allar
þessar gjafir eru hér enn aftur inni-
lega þakkaðar. Síðast en ekki síst er
ánægjulegt að geta þess að gjafir
voru einnig gefnar til byggingar
safnaðarheimilis í Sandgerði. Er sú
byggin löngu orðin tímabær, því áð
þörfin er orðin brýn þar sem að
mestur hluti safnaðarins býr nú í
töluverðri fjarlægt frá kirkjunni og
þarfnast áþreifanlega nærtækari og
rýmri aðstöðu fyrir safnaðarstarf-
semi sína.
Eins og áður gefur að skilja á
kirkjubyggingin á Hvalsnesi virðu-
legan sess í hugum sóknarbama
Hvalsnessóknar. Kirkjan er vissu-
lega tignarlegur minnisvarði um
fortíðina og minningar sem mega
aldrei gleymast. En hún er meira en
það, miklu meira. Hún er minnis-
varði um þau gildi sem aldrei fyrn-
ast. í hátíðarguðsþjónustunni var
ungbam borið til skímar. Sú skím
var einmitt táknræn áminning um
að þrátt fyrir hundrað árin, þá er
Hvalsneskirkja ekki eimmgis
minnismerki um lögnu liðna tíð.
Hún er ekki einungis safngripur
sem inniheldur dauða hluti sem
mölur og ryð eyða þegar tíminn
vinnur á þeim. Heldur er hún vett-
vangur fyrir lifandi starf og til-
beiðslu safnaðarins. í kirkjunni fel-
um við böm okkar og reyndar alla
okkar framtíð, Guði á vald. Hvals-
neskirkja hundrað ára minnir okk-
ur á þann Guð sem lætur okkur lífi
halda, þann sem veitir okkur styrk,
sama á hverju gengur, því hann ríkir
ffá eilífð til eilífðar. Kirkjan vitnar
um kærleiksríkan Guð sem gefur
okkur og bömum okkar bjarta
framtíðarsýn, þrátt fyrir allt sem á
gengur.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
Þetta hagtega smfðaða rœðupúlt gájú
œtting/ar Sigríðar JUlfönnu Magmís-
döttur og Áma Magnússonar frá
Landakoti.
Okkar aðal afgreiðsla er nú flutt í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar. Öll almenn bankaþjónusta innlend
sem erlend. Auk þess höfum við geymsluhólf og
næturhólf til leigu.
Opið kl. 9.15—16.00
LANDSBANKI ÍSLANDS
FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR
KEFLAVÍKURFLUGVELLI
BANKI ALLRA LAND SMANNA
FAXI 17