Faxi - 01.01.1988, Qupperneq 18
, j KIU SKAL KJÖKVKXr
FRÁSÖGN EGILS ÞORFINNSSONAR SKIPASMIÐS
KRISTJÁN A. JÓNSSON SKRÁÐI
Útlit og gæði báts
fer ekki alltaf saman
Ég hef nú ekki neina skrá yfir það
hve margir bátar hafa verið smíðaðir
eftir teikningum mínum, en þeir
eru eitthvað hátt í það að vera 200
talsins, að minnsta kosti ef ég tel
með kappróðrarbátana. Það voru
nú ekki miklir bátar. Þá fyrstu
þeirra teiknaði ég og byggði fyrir
sjómannadagsráð hér í Keflavík.
Þeir voru sexrónir, breiðir og borð-
lágir og þungir og því illa lagaðir til
að verða hraðskreið fley. En þeir
voru svo stöðugir að allir ræðaramir
gátu verið úti í öðm borðinu sam-
tímis. Eina trillu hef ég teiknað og
smíðað. Það er sú ljótasta fleyta sem
ég hef bara séð. En einkennilegt er,
að fyrir nokkram áram hringir til
mín maður frá Þorlákshöfn og segist
eiga trillubát sem ég hafi smíðað.
Það sem gerði það að verkum að
þessi trilla var gott sjóskip var ein-
faldlega það, að hún var hálfu öðra
fleti breiðari en nokkur súðbyrðing-
ur, sem ég hafði komist í tæri við og
SÍÐARI
Egill Þorfinsson, skipasmidameistari.
,,skábyrt“. Sá maður sem aðallega
fékkst við trillusmíði þessa í drátt-
arbrautinni var Guðjón heitinn
Klemensson, bátaformaður úr
Grindavík og vanur smábátum.
Hann sagði mér þegar sköpunarlag
bátsins lá fyrir að hann yrði ljótur
og hann sagði mér líka að báturinn
yrði góður í sjó að leggja.
HLUTI
,,Ofterþað gott
sem gamlir kveða“
Einhverju sinni var það að bátur
eftir teikningu frá mér fórst mjög
nýlegur. Skömmu síðar átti að fara
að smíða annan bát eftir sömu
teikningu. Því þvemeitaði ég og
lagði bann við því, hjá fiskveiöi-
sjóði, að teikningin yrði notuð.
Sagði þeim að þeir þyrftu að fá
henni eitthvað breytt og jafnframt
að ég vildi ekki gera það sjálfur, ein-
hver annar yrði að vinna það verk.
Teikningin mætti ekki vera eftir mig
ef menn vildu fá bát af svipaðri
gerð. Ég hafði ótrú á því að koma ná-
lægt þessu vegna þess sem á undan
var gengið.
Svo var teikningunni breytt og
smíðaður bátur, sem reyndist býsna
góður. Þetta og því líkt getur verið
voða viðkvæmt hjá mörgum. Ég get
sagt hér bara lítið dæmi um það hve
mikill græningi ég var, þegar ég var
að byrja að byggja minn fyrsta bát.
Það var búið að smíða bæði stefnin
og allt orðið tilbúið að reisa og nú
hvisast það út að ég ætli að leggja
kjölinn á mánudagsmorgni. Ég var
sko alveg grandalaus, þótti bara
heppilegt að byrja vikuna á þessu.
En það var bara ekkert annað, að nú
komu þeir þama til mín hver höfð-
inginn af öðrum. Þeirra á meðal
þessir gömlu skipasmiðir eins og
Þorsteinn Ámason t.d. Þeir tóku
mig á eintal og sögðu mér bara að
þetta væri sko ekki nokkurt vit. Það
þekktist hvergi annað en bátskjölur
væri lagður á laugardegi. Ég man
mjög vel eftir þessu og eins því að
við fóram að vinna við önnur verk-
efni fram að næsta laugardegi.
Þegar þama var komið hafði ég
verið nokkuð mörg ár í skipasmfð-
inni, en aldrei tekið mark á þessari
laugardagslukku sjómanna. Þó
verð ég að segja það, að aldrei var
byrjað á slætti heima nema á laugar-
degi. En ég tók það þannig að menn
gætu þá hvílt sig daginn eftir, svo
þeir fengju ekki slátturíg. Ekkert
annað taldi ég að lægi þar að baki.
Ég man eftir því að Albert Ólafsson
var meðal þeirra manna sem aftóku
að bátur þeirra væri tekinn niður úr
dráttarbrautinni fyrri part vikunn-
ar. Þannig var þeim almennt varið
þessum reynslumiklu og traustu
sjósóknuram.
Kynnin af
skipasmíðum í
grannlöndunum
Ég kynntist skipasmíðum töluvert
í Svíþjóð og einnig nokkuð bæði f
Danmörku og Þýskalandi, en sér-
staklega þó í Svíþjóð. Mjög mikið
hafði ég saman að sælda við Einar
Johansen í Djúpvík. Þeir feðgar
höfðu, þegar ég vissi síðast, smíðað
45 eða 46 báta fyrir íslendinga.
Sums staðar var nú staðið svipað að
smíðunum og hér heima og almennt
voru þessir menn ekki betri smiðir
en við.
En það sem raunverulega var
öðravísi og gerði gæfumuninn var
það, að þama úti var allt hægt að fá.
Héma heima varð hins vegar að
Nýtt á Þristinum
Matarbakkar í hádeginu.
Ókeypis heimsending.
Ódýr og góður heimilis-
matur - heitur réttur með súpu og mjólk.
icTVÍatStofaii
íistuíinn
Njarövík - Sími 13688
18 FAXI