Faxi - 01.01.1988, Side 28
Ægir Sigurðsson, áfangastjóri
Yfirlit um starf haustannar
Gestir - heimamenn —
í því yfirliti um starf haustannar
sem hér fer á eftir ber eiim atburð
hæst, en það er að sjálfsögðu vígsla
viðbyggingarinnar. Hún fór fram við
hátíðlega athöfn sem hófst með
ræðuhöldum verktakans og skóla-
meistarans. En þar sem enn vantar
samkomusal fóru þeir að líkt og
páfinn í RÓM, stigu fram á svalir á
2. hæð hins nýreista austurenda og
ávörpuðu gesti og heimamenn sem
stóðu þétt á planinu fyrir neðan. Að
ræðuhöldum loknum var öllum
boðið inn í piparkökur og kaffi, eftir
útivistina, svo og til að skoða dýrð-
ina.
Vinna við viðbygginguna hófst í
apríl. Um miðjan júlí var húsið full-
reist og frágangi öllum á vígslu-
degi, þann 7. september.
í viðbyggingunni eru 7 kennslu-
stofur bjartar og rúmgóðar. Þar af
eru tvær sérstofur, önnur fyrir bók-
færslu en hin fyrir teiknifræði.
Anddyri skólans var flutt yfir í við-
bygginguna og er nú gengið inn af
Faxabraut í stað Sunnubrautar.
Jafnframt þessu voru gerðar breyt-
ingar á lóð skólans svo að nú er öll
aðkoma að skólanum allt önnur og
skemmtilegri. Og þegar inn er kom-
ið blasir við bjart og rúmgott and-
dyri. Aðstaða nemenda til setu og
dægrarstyttingar í frímínútum og
millitímum batnaði verulega með
tilkomu setustofanna á 1. og 2. hæð
austurendans. Áður hafði aðstaða
þeirra verið, vægast sagt, afar bág-
borin. Síðast en ekki síst þá stækk-
aði kennarastofan verulega og
vinnuaðstaða kennara er orðin vel
frambærileg.
Með þessari viðbyggingu rættist
langþráður draumur um að geta
hýst á einum stað alla bóknáms-
kennsluna og losnað þar með við
hvimleiðar gönguíerðir í rysjóttum
veðrum í útskot hinna ýmsu bygg-
inga í nágrenninu.
Samhiiða þessu voru gerðar mikl-
ar breytingar á eldri hluta bók-
námshússins. Skrifstofur skólans
voru stækkaðar og færðar í nútíma-
legra horf. Bókasafnið var flutt upp
á 2. hæð þar sem það fékk loksins
viðunandi rými og alla möguleika á
frekari útþenslu.
Auk þessa var skólinn málaður að
innan jafnt sem utan og hefur aldrei
litið eins vel út og á þessari haust-
önn.
Ekki var látið við það sitja að bæta
aðeins bóknámsaðstöðuna heldur
var ráðist í róttækar endurbætur á
verknámsaðstöðu málm- og hár-
snyrtiiðna. ,,Hárið“ var fluttniðurí
bóknámshúsið og þar var innréttuð
kennslustofa með þarfir þess í
huga. Aðstaða kennara og nemenda
batnaði mjög við þessa flutninga
bæði vegna aukins rýmis og að auð-
veldara er að ná í, Jifandi hausa“ til
æfinga.
Leigt var húsnæði að Iðavöllum 3
til suðukennslu en áður hafði sú
kennsla verið í enda vélstjómarsal-
ar. Við þennan flutning stækkaði
salurinn verulega. Það húsnæði,
þar sem , ,hárið“ hafði áður verið, var
tekið undir kennslu- og setustofu
fyrir verknámsnemendur.
Eftir ýmsar smá endurbætur svo
og málun á vélstjómar- og málm-
Undanfarin ár hefur sá háttur ver-
ið á, að fulltrúi nemenda komi hér
við skólaslit og geri lítillega grein
fyrir því helsta sem markvert gerð-
ist á nýafstaðinni önn.
Það sem mestan svip setti á þá önn
sem nú er að líða er án efa viðtaka
nýbyggingar bóknámshússins við
Sunnubraut og þær breytingar sem
gerðar vom á aðstöðu iðnnema í
verknámshúsi skólans á Iðavöllum.
Nemendur á bóknámsbrautum
þurfa nú t.d. ekki lengur að hlaupa
milli skólahúsa til þess að koma
ekki of seint í kennslustundir eins
og tíðkaðist er skólinn hafði á leigu
húsnæði í Holtaskóla, í Aðventista-
heimili og víðar.
En auk þess sem kennslustofur
vom nú allar undir sama þaki batn-
aði félagsaðstaða nemenda einnig
stórlega, en í nýbyggingunni em
tvær nýjar glæsilegar setustofur þar
sem nemendur geta sest niður eftir
erfiða tíma og öðlast andlega sálarró
fyrir þann næsta.
Auk setustofanna tveggja var
lestraraðstaða nemenda stækkuð og
bætt, aðstaða sérfélaga og stjómar
færð og stækkuð svo að dæmi séu
tekin. En ýmislegt fleira var gert á
önninni er frekar snýr að félagsmál-
um. Farið var í Þórsmörk og dvalið
þar yfir helgi, farið var á Sauðár-
krók og þar háð bæði íþrótta og
ræðukeppni. Þá var fyrsta umferð
Morfís haldin hér stuttu síðar og
iðnasölum má segja að báðir salimir
séu með þeim frambærilegustu í
framhaldsskólum landsins.
Og til að gera gott enn betra varð
skólinn fyrir því happi að feðgamir
Kristján Guðmimdsson og sonur
hans Guðmundur, útgerðarmenn
frá Hellissandi, gáfu honum forláta
Wickman bátavél. Vélin var form-
lega vígð 4. desember að viðstödd-
um þeim feðgum.
Óskar Jónsson fyrmm kennari
skólans og faðir vélstjómarbrautar-
innar ræsti vélina að loknum nokkr-
um stuttum ávörpum. Þau einu
skilyrði fylgdu vélinni að hún yrði
nýtt í þágu sjómannastéttarinnar.
Vél þessi er ómetanlegt kennslu-
tæki og kann skólinn þeim feðgum
vann þar lið okkar glæsilegan sigur.
Þá var hér haldið pflukastmót
framhaldsskólanna og unnum við
það einnig svo að eitthvað sé nefnt.
En hér í dag er ekki ástæða til að
tíunda íþróttaafrek einstakra nem-
enda. Héðan er verið að brautskrá
nemendur, nemendur sem sumir
koma aftur og halda áfram, aðrir
hafa lokið sínu námi og enn aðrir
leita lengra til frekara náms. En það
er sama hvaða þrep það er sem stig-
ið er öll em þau eitt þrep upp á við
í lífsstiganum.
Við hverja brautskráningu hverfur
hluti nemenda úr skólanum okkar.
Það hefur sjaldan þótt góður siður
að fagna fólki þegar það er á fömm
en ég verð þó að viðurkenna að ég
fagna hér í dag. Ég fagna þeirra
sjálfra vegna og ég fagna einnig
vegna þess að um leið og einn hópur
unga flýgur burt úr hreiðrinu fer sá
næsti að reyna að klifra upp á hreið-
urbakkana, út á stökkpallinn og
gera sig tilbúinn til að fljúga við
fyrsta tækifæri.
Ég vil að lokum þakka ykkur sem
í dag emð að brautskrást fyrir
ánægjulegar samverustundir á und-
anfömum ámm og ég óska ykkur til
hamingju með þennan áfanga sem
þið nú hafið náð. En þó að þessum
skóla sé nú lokið og óvíst hvort ein-
hver annar venjulegur skóli tekur
við þá getur sá sem vill læra fundið
skóla alls staðar.
ÁVARP BÖÐVARS JÓNSSONAR,
FORMANNS N.F.S.
1987
hinar bestu þakkir fyrir höfðinglega
gjöf.
Segja má að skólinn sé nú loksins
kominn í það horf að geta tahst
nokkuð nútímalegur. Þó vantar enn
samkomusal því ekki viðrar alltaf
vel í þeim bláa sal sem minnst var á
hér áðan.
A önninni fór kennslan ffam á eft-
irfarandi stöðum: í bóknámshúsinu
við Sunnubraut, í verknámshúsinu
við Iðavelli 1 og í leiguhúsnæði við
Iðavelli 3 en þar er annars vegar
verknám rafiðna en hins vegar
suðudeildin sem áður var getið um.
Eitt útibú skólans er rétt að nefna til
viðbótar. En það er kennsluhús-
næði flugmálastjómar á Reykjavík-
urflugvelli en þar er flughðabraut til
húsa. Þetta er síðasti hópurinn sem
útskrifaður verður af framhalds-
skólastiginu því næsta haust mun
Háskóh íslands taka við þessari
uppffæðslu.
Húsnæðisnefnd SSS skilaði
skýrslu á önninni um húsnæðisþörf
skólans næstu áratugina. Enn er
þessi skýrsla til umræðu en hefur
ekki verið kunngerð opinberlega.
Af henni má þó ráða að enn vantar
skólann mikið húsnæði til þess að
geta sinnt þeim kröfum sem til
ffamhaldsskóla em gerðar, þrátt
fyrir viðbygginguna títtnefndu.
Á önninni gekk í gildi ný NÁMS-
SKRA handa ffamhaldsskólum sem
Menntamálaráðuneytið gekkst fyrir
að semja. Þar er lagður ákveðinn
grunnur sem allir ffamhaldsskólar
eiga að fara eftir. Ákveðið hefur ver-
ið að vinna upp úr NÁMS-
SKRÁNNI sameiginlegan NÁMS-
VÍSI (nánari útfærsla á náms-
skránni) með Fjölbrautaskólunum
á Vestur- og Suðurlandi, Fram-
haldsskólunum í Vestmannaeyjum
og Austurlandi. Gert er ráð fýrir að
þessi NÁMSVÍSIR komi út á næstu
vorönn.
Sem dæmi um breytingar sem
þessi nýja námsskrá hefur í för með
sér má nefna, að frá og með þessari
önn em einkunnir gefnar í tölustöf-
um (heilar tölur) í stað bókstafa.
Helgina 27.-29. nóvember var
haldið á vegum F.S. og K.S.Í. svo
nefnt B-námskeið fyrir þjálfara.
Mun þetta vera í fyrsta sinn sem
framhaldsskóh stendur fyrir slíku
námskeiði og einnig í fyrsta sinn
sem námskeið af þessum toga hefur
verið haldið á Suðumesjum.
Fulltrúar skólans hafa sótt fjöl-
margar ráðstefnur ognámskeið. Má
þar nefna ráðstefnu Iðnþróunarfé-
lags Suðumsja um atvinnuppbygg-
28 FAXI