Faxi - 01.01.1988, Page 36
tekið við útibústjórastarfi við aðalbank-
ann, en í hans stað var ráðin Jóhanna
Reynisdóttir. Guðmundur hefur getið
sér góðs orðs í sínu starfi, og það er ekki
vafi á því, að Jóhanna mun einnig gera
það. Hún hefur starfað við bankann í
fjölda ára, nú síðast sem fulltrúi útibús-
stjóra. Hér er um nokkur tímamót að
ræða, því Jóhanna er fyrsta konan sem
ráðin er sem útibússtjóri hér syðra og
eru það góð tíðindi. Starfsfólk í bönkum
er að meirihluta til konur, og það er því
eðlilegt, að þær gegni þar æðstu ábyrgð-
arstörfum. Faxi vill óska Jóhönnu vel-
famaðar í hinu nýja starfi um leið og við
kveðjum Guðmund og þökkum honum
störf hans hér í Keflavík.
MENGUNAR VERÐUR VART
VIÐ VATNSBÓL.
Undanfarið hafa farið fram rannsóknir
umhverfis vatnsbólin í heiðinni ofan við
byggðina í Keflavík og Njarðvík. Fyrr í
vetur varð uppvíst um olíuleka úr göml-
um olíugeymi á flugvallarsvæðinu. Var
þá gripið til þess ráðs að fjarlægja jarð-
veg sem mengast hafði, en það dugði þó
ekki til og loka varð a.m.k. einni bor-
holu sem í notkun var. Um langan tíma
hafa farið fram umræður um það, hversu
viðkvæm vatnsból þessi em, sérstaklega
með tilliti til þeirrar starfsemi sem fram
fer við flugvöllinn. Nú em uppi ráða-
gerðir um að færa vatnsbólin að stað þar
sem minni hætta er á mengun. Þar sem
hér er um að ræða mjög kostnaðarsamt
verk, þá er líklegt, að sveitarfélögin fari
sameiginlega í þá framkvæmd.
DREYMT FYRIR AFLA
Fyrmm trúðu sjómenn mjög á drauma
sína og fóm eftir þeim. Ekki síst þeim
draumum, sem vom tengdir aflasæld.
Þetta var mjög algengt, allt fram á okkar
daga, jafnvel fram á tíma fisksjáa og
dýptarmæla.
Ami Þorsteinsson, skipstjóri í Kefla-
vík, var einn þessara manna. Hann var
lengi með báta fyrir Miðnes hf. í Sand-
gerði. Sennilega frá því nokkm fyrir
f939 og allt fram til 1947, e.t.v. eitthvað
lengur. Annar aðaleigandi Miðness hf.,
var Sveinn Jónsson. Ámi sagði mér, að
góður afli hefði aldrei bmgðist sér, ef
hann dreymdi Svein við skál. Ekkert
veit ég um drykkjuvenjur Sveins, þær
koma þessu í raun ekki við. Aðalmálið er
hið dulda inntak draumanna, sem Ámi
sagði að hefði orðið sér vísbending um
að góður afli væri í vændum.
Eftir að Ami hætti með báta, var hann
um árabil hafnsögumaður í Keflavík.
Síðast var hann við gangavörslu í fjöl-
brautaskólanum í Keflavík. Þar lágu
leiðir okkar saman. Stundum, ef færi
gafst, gaf ég mig á tal við hann. Röbbuð-
um við þá um liðna daga, einkum um
sjósókn. Hygg ég, að Ámi hefði haft frá
ýmsu að segja, hefði hann verið vand-
lega spurður:
Skúli Magnússon
Starfsmenn Gjaldheimtu Suöumesja.
Hauksdóttir og Asgeir Jónsson.
þar sem Gjaldheimtan hefur aðsetur
sitt. Starfsfólkið var í óða önn að koma
sér fyrir og í mörg hom var að líta. Við
Gjaldheimtuna starfa þau Ásgeir Jóns-
son, María Hauksdóttir og Guðbjörg
Jónsdóttir. Ásgeir er forstöðumaður fyr-
irtækisins. Þessa stund sem ég stóð við,
þá var nóg að gera við að taka á móti
greiðslum og að gefa ýmsar nauðsynleg-
ar upplýsingar. Allt var þetta gert með
hlýlegu viðmóti.
LEIÐARÞING KJALARNES-
PRÓFASTSDÆMIS 1988
Hið árvissa leiðarþing Kjalamespró-
fastsdæmis var haldið að forgöngu pró-
fasts og héraðsnefndar í safnaðarheimil-
inu Kirkjuhvoli í Garðabæ, 24. janúar
8.1.
Prófastur, séra Bragi Friðriksson, setti
þingið með bænargjörð og stjómaði þvf
ásamt Helga K. Hjálmssyni, gjaldkera
héraðssjóðs, en hann lagði m.a. fram
fjárhagsáætlun sjóðsins fyrir 1988, sem
samþykkt var samhljóða.
Annað aðalmál þingsins var umræða
um gerðir Kirkjuþings árið 1987. Fram-
sögu um það mál höfðu kirkjuþings-
mennimir dr. Gunnar Kristjánsson á
Reynivöllum og Kristján Þorgeirsson,
kirkjuráðsmaður Mosfellsbæ.
í lok líflegra umræðna um þennan
dagskrárlið var eftirfamdi tillaga pró-
fasts samþykkt samhljóða:
,,Leiðarþing Kjalamesprófastsdæmis
Frá vinstri Guðbjörg Jónsdóttir, María
1988 samþykkir að fela héraðsnefnd að
efna til funda og leita umsagnar ákveð-
inna hópa innan prófastsdæmisins, t.d.
presta, organista, kennara, foreldra,
æskufólks, eldri borgara o.s.frv. um
efnið:
Hvemig má auka þátttöku fólks í
kirkjulegu starfi og hvað þarf að gerast
til að kirkjan geti sem best komið til
móts við þarfir fólks í boðun trúar og
þjónustu af ýmsu tagi.“
Hitt aðalmál þingsins bar yfirskriftina
Alþingi og þjóðkirkjan. Af því tilefni
bauð héraðsnefnd sérstaklega þing-
mönnum Reykjaneskjördæmis, kirkju-
málaráðherra og ráðuneytisstjóra hans
að sitja leiðarþingið.
Framsögumenn um þetta mál vom þau
Salome Þorkelsdóttir, alþingismaður,
Margrét Sveinsdóttir, safnaðarfulltrúi,
Jóhann Einvarðsson, alþingismaður og
séra Ólafur Oddur Jónsson.
í máli framsögumanna sem og annarra
ræðumanna, kom m.a. fram það álit, að
samstarfsnefnd Alþingis og kirkju gegni
mikilvægu hlutverki og efli samkennd
tveggja elstu stofhana þjóðarinnar.
NÝR ÚTIBÚSSTJÓRI í
VERZLUNARBANKANUM.
Fyrir stuttu urðu útibússtjóraskipti í
útibúi Verzlunarbankans í Keflavík.
Guðmundur Viborg sem hefur stýrt úti-
búinu um nokkurra ára skeið hefur nú
GJALDHEIMTA
SUÐURNESJA ER TEKIN TIL
STARFA.
Nú nýlega tók til starfa fyrirtæki sem
sveitarfélögin á Suðumesjum og ríkið
hafa sameiginlega stofnað. Þetta fyrir-
tæki er Gjaldheimta Suðumesja. Stofn-
un hennar fylgdi í kjölfar þeirra breyt-
inga, að nú hefur verið tekin upp stað-
greiðsla opinberra gjalda. Fyrst um sinn
mun Gjaldheimtan sjá um innheimtu og
móttöku staðgreiddra skatta, en sveitar-
félögin munu sjálf sjá um ógreidd eldri
gjöld og fasteignagjöld. Ekki er ólíklegt,
að Gjaldheimtan muni í framtíðinni sjá
um innheimtu allra opinberra gjalda á
Suðumesjum. Er enda mikið hagræði
falið í því. Gjaldheimtan sér sfðan um að
skila innkomnu fé til viðkomandi aðila,
fyrstu mánuðina eftir áætlun miðað við
innheimtu fyrra árs, en síðar meir jafn-
óðum og greiðslur berast.
Þar sem hér er um að ræða fyrirtæki
sem Suðumesjabúar munu mikil sam-
skipti eiga við í framtíðinni, þá lagði Faxi
leið sína að Gmndarstíg 23 í Njarðvík,
Grétar Magnússon fœr upplýsingar um
staðgreiðslu skatta.
36 FAXI