Faxi - 01.01.1988, Qupperneq 39
Aðalfundur SSS
Kjartan Jóhannsson, alþingismaður, sér hér eitthvað áhugavert í gögnunum hjá Ingólfi Falssyni.
Framhald af bls. 9.
miklu aðstoö sem félagið hefur veitt
fyrirtækjum á Suðumesjum. Hann
skýrði frá námskeiðahaldi og verk-
efnum, sem em í gangi og em á döf-
inni. Hann skýrði frá umræðum um
formbreytingu á félaginu í hlutafé-
lag til að styrkja það. Hann skýrði
og frá hugmyndum um samruna
Iðnþróunarfélagsins og Athafnar hf.
Að lokum lýsti Þorvaldur sinni
framtíðarsýn þessa félags.
Láms Jónsson frá Þróunarfélagi
íslands h.f. Hann sagði m.a. í erindi
sínu að Þróunarfélagið hefði ákveð-
ið að hvetja til og aðstoða við að
koma á fót sjálfstæðum fjárfesting-
arfélögum í öllum kjördæmum
landsins. Slíkt félag ef til kæmi
starfaði á Suðumesjum sérstaklega
en ekki Reykjanesi öllu vegna sér-
stöðu byggðarinnar á Suðumesjum.
Tilgangur slíks félags er að virkja
athafnamenn á svæðinu til fram-
kvæmda í nýsköpun og efla arð-
bæra starfsemi, með útvegun láns-
fjár, með hlutafjárkaupum og með
rannsóknum. Þetta félag gæti einn-
ig hugsanlega spomað við fjárflótta
til höfuðborgarsvæðisins. Nú er
unnið að stofnun óformlegrar und-
irbúningsnefndar Fjárfestingarfé-
lags Suðumesja. Þessi merka nýj-
ung í atvinnumálum hér um slóðir
er undir Suðumesjamönnum sjálf-
um komið sagði Lárus að lokum.
Alyktanir fundarins.
Á aðalfundinum vora samþykktar
ályktanir um ýmis málefni. Við
birtum hér úrdrátt úr nokkmm
þeirra:
Atvinnumál. í ályktun um at-
vinnumál er fjallað um kvóta á fisk-
veiðum og mótmælt skiptingu kvóta
á suður- og norðursvæði. Það er
höfuðnauðsyn að hafa jafnrétti til
kvóta, ef útgerð á að halda áfram
hér á Suðumesjum. Fundurinn
fagnaði stofnun Fiskmarkaðar Suð-
umesja svo og fýrirhugaðri stofnun
útgerðarfélagsins Eldeyjar. Þá er í
ályktuninni fjallað um ferðamanna-
iðnað, fríiðnsvæði, fjárfestingarfé-
lag og fagnað uppbyggingu á sviði
fiskeldis.
Umhverfismál. í ályktuninni segir
m.a., að áfram skuli haldið skipu-
lagðri uppgræðslu á Reykjanes-
skaga. Einnig er lagt til, að lcomið
verði upp sameiginlegum skrúð-
ganM fyrir allt svæðið.
Ferðamál. Aðalfundurinn telur, að
með tilkomu nýrrar flugstöðvar hafi
opnast nýir möguleikar á sviði
ferðamála á svæðinu. Þar segir
einnig, að hlutverk sveitarfélaganna
byggist helst á því, að bæta aðstöðu
og stuðla að upplýsingamiðlun.
Fmmkvæði að öflugri þjónustu og
uppbyggingu mannvirkja verði að
koma frá hagsmunaaðilum í þessari
atvinnugrein. Fundurinn telur fulla
ástæðu til, að ráðinn verði ferða-
málafulltrúi fyrir sveitarfélögin og
að efla betri Ferðamálasamtök
Suðumesja.
íþrótta- og aeskulýðsmál. í
ályktuninni kemur fram ánægja
með þann árangur sem náðst hefur
í þessum málaflokki, en jafhframt
viðurkennt, að áhugi almennings sé
sífellt vaxandi. Tími sé kominn til
að huga að sameiginlegri byggingu
æfinga- og keppnishúsnæðis, því
enn vanti aðstöðu. Fundurinn hvet-
ur til aukinnar samvinnu sveitarfé-
laganna á þessu svæði.
Menntun - menning - listir.
Ályktun fundarins í þessum málum
er mjög merkileg, því þar koma
fram margar nýjar hugmyndir. Má
þar m.a. nefna sameiginlegan tón-
listarskóla, stofhun menningarsjóðs
og sameiginlegt safnahús. Þá var
jafnframt ályktað, að hugað verði að
svæðisútvarpi fyrir Suðumesin.
Samvinnu- og sameiningarmál.
Samþykkt var, að undirbúnings-
nefnd um sameiningu sveitarfélag-
anna skyldi starfa áfram. Skal hlut-
verk nefndarinnar vera m.a. að
kynna mál þetta fyrir almenningi á
Suðurnesjum, en jafnframt skila til-
lögum á maí á þessu ári um það
hvemig staðið skuli að framhalds-
aðgerðum í sameiningarmálum.
Undir lok fundarins var lýst til-
nefningu sveitarfélaganna í stjórn
SSS fýrir næsta ár og munu eftir-
taldir gegna því starfi:
Frá Keflavík:
Guðfinnur Sigurvinsson.
Vilhjálmur Ketilsson til vara.
Frá Njarðvík:
Eðvarð Bóasson.
Steindór Sigurðsson til vara.
Frá Grindavík:
Bjami Andrésson.
Halldór Ingvarsson til vara.
Frá Miðneshreppi:
Stefán Jón Bjamason.
Ólafur Gunnlaugsson til vara.
Frá Gerðahreppi:
Ellert Eiríksson.
Finnbogi Bjömsson til vara.
Frá Vatnsleysustrandahreppi:
Vilhjálmur Grímsson.
Ómar Jónsson til vara.
Frá Hafnarhreppi:
Björgvin Lúthersson.
Jóhann Sigurbeigsson til vara.
BREYTT
SÍMANÚMER
Frá og með 15. febrúar breytist
símanúmer Útvegsbankans.
Nýja símanúmerið er
1 55 55
ÚO
op
ÚTVEGSBANKIÍSLANDS
Keflavík.
FAXI 39