Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1989, Síða 7

Faxi - 01.03.1989, Síða 7
hann yngstur allra söngstjóra lands- ins. Fór mikið og gott orð af þessum karlakór tyrir fagran og fágaðan söng. Valtýr var kennari hér til árs- íns 1944 er hann gerðist skrifstofu- ntaður og gjaldkeri Rafveitu Kefla- víkur til ársins 1954. í því starfi vann hann ötullega að því að raflína frá Soginu fékkst lögð hingað suður, sem varð byggðarlaginu og raunar öllum Suðumesjum mikil lyfti- stöng. Hann var árið 1939 einn af stofnendum Málfundafélagsins Faxa og var hann fyrsti formaður þess. Hann var einnig fyrsti ritstjóri Maðsins Faxa, sem þá var helsti vettvangur bæjarbúa til umræðu um málefni byggðarlagsins. Þar hóf hann baráttu sína fyrir betra byggð- arlagi. Þar börðust þeir saman Val- fyr og öðlingurinn Ragnar Guðleifs- son, fyrsti heiðursborgari Keflavík- ur fyrir þeirri hugsjón að menn ynnu saman að uppbyggingu byggðarlagsins. Arið 1946, þegar umbrotatímar em hvað mestir í Keflavík, er Valtýr Guðjónsson kjörinn í hreppsnefnd Keflavíkur, sem fulltrúi Framsókn- arflokksins og síðar í bæjarstjóm og bæjarráð, þegar Keflavík öðlaðist bæjarréttindi. Arið 1946 var Byggingafélag verkamanna í Keflavík stofnað. Valtýr varð fyrsti formaður þess og framkvæmdastjóri um langt árabil. Var um þetta leyti mikil gróska í fé- laginu og byggðar 32 íbúðir, sem um þær mundir komu í góðar þarfir. híá fyrst og fremst þakka það dugn- aði Valtýs og áhuga fyrir hag og vel- ferð félagsins. Valtýr varð fyrsti forseti bæjarstjómar og gegndi því starfi þar til hann tók við bæjar- stjóraembættinu. Um það leyti var gatnakerfi bæjar- ins í afar slæmu ástandi. Malargöt- ur settu svip sinn á bæinn og Hafn- argatan, - aðalgata bæjarins, oft nefnd þúsund vatna gatan. Það var 1 bæjarstjóratíð Valtýs, sem hafist var handa við lagningu malbiks hér í bæ. Hann sýndi eldlegan áhuga við það verkefni, sem og annað, sem horfði til framfara á þeim ámm. Valtýr var einn af brautryðjendum bæjarins okkar. Hann hlífði sér hvergi við störf til almannaheilla. Hann var aðsópsmikill sveitar- stjómarmaður. Hann naut virðingar °g aðdáunar fylgismanna sinna. Andstæðingum sínum var hann harður í hom að taka og óvæginn á köflum, en hann var viðurkenndur dugnaðar og drengskaparmaður, oinbeittur og fylginn sér, einn þeirra, sem mestar kröfur gera til sjálfs sín. Valtýr er mikill unnandi fagurra lista. Sjálfur býr hann yfir rfkri og einlægri sköpunargáfu, þó hann hafi aldrei borið hana á torg. Fellur sú hneigð hans jafht til óbundins ríms og tóna. Það er sjálf- sagt flestum ljóst að störf að bæjar- málum á þeim umbrotatímum er Valtýr var í fomstu bæjarmála í Keflavík hafa ekki verið átakalaus. Á þeim ámm var Keflavík að kasta af sér kápu smáþorpsins og klæðast fötum stórhuga kaupstaðar, — hvar bjartsýni og atorka er í fyrirrúmi. Valtýr Guðjónsson var í bæjarstjóm til ársins 1974. Hann gegndi íjölda annarra trúnaðarstarfa í þágu bæjarins. 1 Rafveitunefnd var hann frá 1944 til ársins 1958. Formaður nefhdarinnar var hann 1944—1954. Hann átti sæti í byggingamefnd um árabil. Er Valtýr lét af störfum bæjarstjóra árið 1958 varð hann for- stjóri Dráttarbrautar Keflavíkur til ársins 1962. Hann starfaði við fast- eienasölu oe bókhald árin 1963 til 1964. Útibússtjóri Samvinnubankans í Keflavík varð hann árið 1965 og árið 1979 tók hann við starfi reiknings- lialdara hjá Fjölbrautaskóla Suður- nesja til 1. september 1987, er hann hætti fyrir aldurssakir. Ótalið er að Valtýr starfaði lengi í Rótarýklúbbi Keflavíkur og gegndi þar trúnaðar- störfum. Hann var og varaþingmað- ur Framsóknarflokksins í Reykja- neskjördæmi í nokkur kjörtímabil og átti sæti á Alþingi um tíma. Valtýr var og endurskoðandi reikn- inga Landshafnar Keflavíkur í ára- tugi. Hann var skipaður í Vamar- málanefnd árið 1971 og var í nefnd- inni til 1988. Hann var fyrsti maður- inn sunnan Straums, sem átti sæti í Vamarmálanefnd. Hér er aðeins lauslega farið yfir það helsta í fé- lagsmálastarfi Valtýs. Hann hefur komið víða við og markað spor í sögu bæjarins, sem seint fymast. Valtýr er kvæntur æskuvinkonu sinni og sveitunga Eh'nu Þorkels- dóttur frá Álftá á Mýmm. Þau eiga þijú böm, sem öll búa hér í Kefla- vík. Áreiðanlegt er að velgengni Va.týs, starfsorka og dugnaður í þágu bæjarfélagsins hefur oft komið niður á heimili þeirra hjóna. Elín Þorkelsdóttir, konan að baki Valtýs hefur átt þýðingarmikinn þátt í störfum hans. Það er nú einu sinni svo að „maðurinn er ekki eyland“. Hafi hún bestu þakkir bæjarbúa. Bærinn okkar hefur á síðastliðn- um 40 ámm breyst ótrúlega mikið. Þeir, sem lagt hafa hönd að verki geta horft stoltir yfir farinn veg. Brautryðjendastarfið var vissulega erfitt. Það var gæfa Keflvíkinga að hafa átt trausta og dugmikla for- ystumenn við stjómvölinn. Valtýr Guðjónsson var brautryðjandi, sem barðist hart fyrir framfömm og heill bæjarfélagsins. Öll þau störf fyrir bæjarfélagið og samborgarana er vert og skylt að muna og þakka. Það er nú gert með því að allir bæj- arfulltrúar bera hér fram tillögu þá, sem hér liggur frammi um það að gera Valtý Guðjónsson að heiðurs- borgara Keflavíkurbæjar. Minnismerki um Sljána bláa Erlingur Jónsson, einn fremsti listamaður Keflavíkur í dag, hefur gert minnismerki um sjómanninn og þjóðsagnarpersónuna Stjána bláa. Ymsir aðilar stuðluðu að því, að verkið var unnið í brons og reist ofan við Keflavíkurhöfh, við Hafn- argötuna. Á síðasta sjómannadag var minnismerkið afhent Keflavík- urbæ, en nú hefur verið sett á stöpul þess áletruð plata ein mikil, þar sem stuttlega er sagt frá tilurð lista- verksins. Klukkan tvö var saman kominn nokkur fjöldi fólks við minnismerk- ið, því þar var mættur forseti ísl- ands, frú Vigdís Finnbogadóttir, og skyldi hún afhjúpa minnismerkið með hinni nýju áletrun. Sólin var nú komin hátt á loft og það sindraði á sléttan hafflötinn. Rétt utan við höfnina og innundir Stapanum voru nokkrar trillur við veiðar. Hafði loðna nýverið gengið inn Stakks- fjörðinn og fylgdi henni hinn ágæt- asti fiskur. Hajði reyndar allur marsmánuður vérðið hinn besti til sjósóknar, bæði nvað snerti gæftir og veiðar. Var það kærkomin breyt- ing frá rysjóttri tíð og aflaleysi vetr- arins fram að því. Athöfnin við minnismerkið hófst með því, að Guðfinnur Sigurvins- son, bæjarstjóri, bauð forseta ís- lands velkominn til Keflavíkur, en þetta mun vera fyrsta opinbera heimsókn frú Vigdísar til Keflavík- ur. Bað hann forsetann síðan að af- hjúpa verkið. Að því loknu flutti einn af afkomendum Stjána bláa, Karl Steinar Guðnason, ávarp. Fjöl- margir bæjarbúar voru viðstaddir athöfnina, m.a. baðir heiðursborg- arar bæjarins, þeir Ragnar Guðleifs- son og Valtýr Guðjónsson. Einnig var þar margt annarra gesta, ráð- herrar, alþingismenn og sveita- stjómarmenn víðs vegar að. Erling- ur Jónsson, höfúndur verksins, var einnig viðstaddur, en hann hefur dvalist í Noregi um nokkurra ára skeið. Minnisverkið er gullfallegt og á efalaust eftir að ylja mörgum um hjartarætur á ókomnum ámm. Afmœlishátíð í íþróttahúsi Keflavíkur Bæjarstjóm Keflavíkur bauð íbú- um bæjarins á hátíðarsamkomu kl. 15:00 í íþróttahúsinu. Um 1800 til 2000 gestir þáðu boðið til viðbótar þeim sem áður em nefndir. Hafði 900 stólum úr nærliggjandi skólum verið raðað í salinn og einnig sátu gestir á áhorfendapöllum. Fyrir af- mælið hafði bærinn látið smíða nýj- an, stóran hátíðarpall og upp höfðu verið sett góð hljómburðartæki. Var pallurinn íklæddur blómaskreyt- ingum sem gáfu umhverfinu hátíð- legan blæ. Var því aðstaða hin besta til þess að viöstaddir mættu njóta þess sem fram færi. Léttsveit Tón- listarskólans í Keflavík lék nokkur skemmtileg lög á meðan gestir vom að koma sér í sæti. Fmmflutt var af- mælislag eftir stjómanda sveitar- innar, Siguróla Geirsson. Sveitin lék síðan á milli atriða. Anna Margrét Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjómar, setti hátíðina Vöktu þau mikla hrifningu áheyrenda. FAXI 83

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.