Faxi - 01.03.1989, Qupperneq 11
fríiðnaðarsvæði ætti t.a.m. ekki lík-
ur til að verða hér fyllilega sam-
keppnisfært vegna þeirra atriða sem
að ofan eru nefnd um skattfh'ðindi
og ódýrt vinnuafl svo og vegna
flutningsgetu og fjarlægða ffá
mörkuðum. Bent var á að vegna
lagaákvæða um fyrirtæki í sam-
keppnisiðnaði þurfi ekki að skapa
sérstakt fríiðnaðarsvæði, ísland sé
það í raun smbr. tollfríðindi til sam-
keppnisiðnaðar.
Nú mætti ætla af framansögðu að
tækifæri okkar í þessum samhengi
séu ekki mikil en það á þó aðeins
við hvað varðar hefðbundið fríiðn-
aðarsvæði.
Möguleikar okkar liggja í því að fá
erlenda útflutningsaðila til að setja
saman dýrar iðnaðarvörur sem eru
á leið til Evrópu, Ameríku eða til
Japans. Einnig má nefha möguleika
á þátttöku erlendra aðila í þeim
greinum þar sem hinir erlendu
markaðir krefjast sérstakrar með-
höndlunar á vörtmni og sérstök
gæði og má í þessu sambandi minna
á að Japanir hafa um langt árabil
haft gæðaeftirlitsmenn til að tryggja
að fá þá vöru sem markaðir þeirra
sækjast eftir.
Skapa þarfárlega 120-130
ný störf
Suðumesjamenn standa frammi
fýrir því að fjölga þarf störfum sem
nemur 120-130 ársverk. Thkist það
ekki má búast við að yngsta og táp-
mesta fólkið fari héðan af svæðinu.
bví verður að skipuleggja sameigin-
legt átak til að efla það atvinnuh'f
sem fyrir er og leggja drög að nýrri
atvinnustarfsemi.
Á ráðstefnimni kom fram sú til-
laga að frekara starf til að nýta þau
tækifæri sem flughöfnin býður upp
á, eða að fullreyna hver þau eru,
verði unnin af Atvinnuþróunarfé-
lagi Suðumesja í samstarfi við Sam-
band sveitarfélaga á Suðumesjum.
Við leggjum því til að tafarlaust
verði unnið að eftirfarandi:
a) Reynt að komast í samband við
japanska framleiðendur og
kaupendur til að kynna þeim
möguleika til að staðsetja hér
samsetningastarfsemi og starf-
semi tengdri gæðaeftirliti.
b) Athugaðir verði kostir þess að
skapa hér svonefnt „Fríbanka-
svæði“ sem gefur sérstakar
heimildir til fj ármagnsviðskipta
erlendra aðila hér á landi og
eignaraðildar þeirra.
c) Hvatt verði til lagasetningar sem
auka frelsi atvinnuhfs og sjóða
til að afla erlends langtímafjár-
magns og heimild veitt til er-
lendrar eignaraðildar, jafhvel
meirihlutaeignar í fyrirtækjum
hérlendis.
d) Hvatt verði til uppbyggingar
kæligeymslu í nágrenni við
Leifsstöð. Benda má á að hús-
næði er til leigu og/eða sölu á
mörgum stöðum á Suðumesjum
og er stór hluti þess í næsta ná-
grenni við stöðina.
e) íslenskum útflytjendum sjáv-
arafurða og fiskeldisafurða verði
kynntir hveijir möguleikar geta
verið fólgnir í að starffækja
flokkunar- og pökkunarstöðvar
við Flughöfnina t.d. til að þjóna
þeim vömtegimdum sem em
fluttar í breytilegu magni og eða
misjöfnum umbúðum.
Viðringarfyllst,
Keflavík, 3. mars 1989
S]álfseign<
Þar sem þú getur ekki haett að drekka, af hverju kemur þú þér þá
ekki upp bar heima hjá þér? Vertu eini viðskiptavinurinn, og þá þarft
þú ekki að kaupa þér vcitingaleyfi. Nú, láttu konuna þína hafa
104.000 krónur svo að hún getj^kfeypt kassa af Read Label Whisky.
Það eru 240 sjússar i kassanum. Kauptu svo allt þitt vin hjá konunni
þinni á 700 krónur sjússinn. Eftir tólf daga, þegar kassinn er búinn,
þá hefur konan þín 64.000 kr. til að leggja i bankann og 104.000
kr. til þess að hefja verslunina á ný.
Ef þú lifir í tiu ár og deyrð svo úr brennivínseitrun og hefur keypt
allt þitt brennivin hjá konunni þinni, þá á hún I banka kr. 19.466.000
(plús vextir). Nóg til að grafa þig með viðhöfn, ala upp börnin þin,
borga upp lánið af húsinu, giftast heiðvirðum manni og gleyma að
hún hafi nokkurn tima þekkt annan eins róna...
Verkalýs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis
Námskcuð
Sjálfsþekking — Sjálfsöryggi
Vitað er að andleg líðan og sjálfsöryggi
er mikilvægt fyrir einstaklinginn í starfi
og einkalífi. Tilgangur námskeiðsins er
að leiðbeina einstaklingum að meta
stöðu sína og kenna árangursríkrar að-
ferðir í samskiptum.
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum.
• Hvernig sérstæð reynsla einstaklingsins mótar hann.
• Hverjir eru helstu áhrifaþættir í samskiptum.
• Hvernig má greina og skilja fjölskyldutengsl.
• Hvernig ráða má við gagnrýni.
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum.
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi.
Leiðbeinendur eru sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal
Námskeiðið verður haldið á Víkinni
fjögur kvöld, dagana 17. og 18. maí og
22. og 23. maí n.k., ef næg þátttaka
fæst.
Innritun og nánari upplýsingar í síma
15777 frá kl. 9-16 alla virka daga til 9.
maí n.k. Notið þetta einstaka tækifæri.
Stjórnin
FAXI 87