Faxi

Volume

Faxi - 01.03.1989, Page 14

Faxi - 01.03.1989, Page 14
 Ses elja Guðmundsdóttir: Á gönguskíðum út á Strönd Það var dásamlegt vetrarveður og svo til frostlaust, óvenjulegur febrú- ardagur þetta árið og blíðan, trú- lega, lognið á undan storminum. Allt frá jólum höfðu verið miklir umhleypingar og hver lægðin af annarri þotið yfir landið með til- heyrandi látum. Gönguskíðin freistuðu mín þar sem þau stóðu skínandi í forstofu- hominu svo ég ákvað, um leið og ég nuddaði stímmar úr augunum, að bregða mér í skíðagöngu. Ætti ég að fara upp í Bláfjöll, af gömlum vana, þar sem útsýni er til allra átta, næg- ur snjór og endalaus víðáttan? Nei, það færi allt of langur tími í akstur þangað upp eftir. En upp í gegnum Afstapahraunið og upp á Höskuld- arvelli? Leiðin upp á Velli mælist um 9 km frá Kúagerði og að sjálf- sögðu þyrfti ég að ganga niður eftir aftur og það var of langt ef veður breyttist og ég ein á ferð. Að lokum ákvað ég að ganga inn á Strönd - bara inn á Strönd. Það var víst ekki svo oft sem hægt var að nota skíðin á heimaslóðum. Eg tók bakpokann og tróð ofan í hann hitabrúsa, nesti, regngalla og fleim, festi á mig skíðin og hélt svo af stað. Á leiðinni í gegnum Vogana mætti ég alskonar furðuvemm, lágum í loftinu, - tími öskupokanna var víst að mestu liðinn. Nú klæddust bömin grímubúningum á öskudag- inn, bönkuðu upp hjá fólki og sungu Atti Katti Nóva og fengu að launum gott í litlu munnana. Á stóra ljósaskiltinu við nýju þjón- ustumiðstöðina stóð nafnið Vogasel með rauðum stöfum á hvítum gmnni — fallegt nafn og vel við hæfi því í heiðinni okkar em margar seljarústir, Arahnúkssel, Vogasel, Bmnnastaðasel, Knarramessel, Gjásel, Fomasel, Auðasel og Flekku- víkursel. Á gönguferðum um heiðina hef ég oft undrast það hvað rústir sel- kofanna em margar, allt upp í sjö tættur hlið við hlið á litlum þýfðum grasbala. Mikið vildi ég geta skyggnst aftur í aldir og fylgst þann- ig með ferðum og störfum selfólks- ins. Það hafa verið götur frá bæj- unum upp í selin og trúlega á milli þeirra lika. Ég hef aðeins fundið eitt vatnsból í heiðinni og er það við Fomasel, í smá klapparholu. í jarðamatsbók frá árinu 1703 er vatnsskortur talinn til stór vand- ræða í öllum seljum í heiðinni og þar er nefnt að þurft hafi að flytja heim úr seli vegna vatnsleysis. Nú em seljaferðir liðin tíð í þeirri mynd sem var fyrmm en í Vogaseli 20. aldarinnar fá hreppsbúar alla al- menna þjónustu. Smáfólkið í furðufötunum sem ég mætti á leiðinni í gegnum þorpið var mér ókunnugt. Fyrir 10-15 ámm þekkti ég hvert andlit, bæði gamalt og ungt, en nú var ég löngu hætt að spyrja hverra manna þessi eða hinn væri. Gamalkunnug andlit vom flutt í ,,menninguna“ svokölluöu og önnur ókunnug komin í staðinn. Svona gengur lífið og oftast kemur maður í manns stað, þó ekki á Ströndinni. Ég gekk sem leið lá eftir snjó- og svellögöum Strandarveginum og við beygju þá sem í eina tíð var kölluð „slysabeygja" hélt ég upp á gamla þjóðveginn sem gerður var 1906-12 V og liggur rétt austan Djúpavogs og yfir í Breiðagerði. Vegurinn lagðist af þegar nýr vegur, nær ströndinni, var byggður um 1930. Ég hafði heyrt sögur um basl fólksins við að bera mjólkina þetta 2—3 km frá bæj- unum upp að veginum og skildi því vel kröfumar um nýjan veg nær byggðinni. Þá var efnt til samskota hjá bændunum á svæðinu en þau áttu að koma til móts við framlag hrepps- og sýslusjóðs og komst mál- ið í höfn eftir fjögurra ára baráttu. Það hafði hvesst af suðvestri og vindurinn blés í bakið á mér. Góða veðrið var rokið út í veður vind og mér var orðið kalt á rassinum. Snjór féll og skafrenningur smó um lautir og skominga. Það var þægilegt að renna sér undan vindinum en þó hvarflaði það að mér að snúa við því allt eins gat skolliö á vont veður. Satt að segja óx mér það í augum að berj- ast á móti snjókomu og stormi til baka suður í Voga, þótt leiðin væri tiltölulega stutt. > Ég lét slag standa og hélt áfram. Hugurinn reikaði frá nýja tímanum til gamla tímans um leið og hver hól- inn af öðrum var að baki. Það er gaman að þræða gamlar götur og velta fyrir sér högum, búnaöi og ferðalögum fólksins sem um þær fór. Fyrir nokkmm árum gekk ég hluta gömlu þjóðleiðarinnar til Suðumesja, frá Straumsvík og suð- ur í Kúagerði. Gatan var mjög djúp og greinileg og nokkuö vel vörðuð en þegar ég kom suður fyrir Kúa- 90 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.