Faxi

Årgang

Faxi - 01.03.1989, Side 38

Faxi - 01.03.1989, Side 38
Hús Gudmundar og Klöru að Faxabraut 32a, Heidarbýli til vinstri. norður að Skarði til Sigríðar ömmu sinnar, sem fóstraði hann fram að skólaaldri og mörg sumur eftir það. Frá Völlum fluttust þau Guð- mundur og Klara inn í Keflavíkur- kauptún og bjuggu í leiguhúsnæði hjá Runólfi Þórðarsyni að Suður- götu 19 (sfðar Suðuigötu 25) næstu fjögur árin, svo hluta úr ári hjá Jóni Guðmundssyni við Heiðarveg, en reistu sér þá lítið og snoturt ein- býlishús, þar sem nú er Faxabraut 32b, og nefndu Heiðarbýli. Reis það af grunni árið 1943 og stóð uppi f heiði langt frá þáverandi byggðum bólum í Keflavík. Fluttust hjónin inn í það fyrir hátíðina, sem haldin var á Þingvöllum árið 1944. Áður hafði Guðmundur reist útihús hjá Heiðarbýli, og voru þau hjón með kýr og hænsni fyrstu búskaparár sín þar og diýgðu tekjur sínar með því að selja mjólk og egg. Á Sauðárkróksárum sínum vann Guðmundur alla vinnu sem til féll, og var þá m.a. tvö sumur í sfld á Siglufirði ásamt konu sinni. Árið sem hann var á Völlum, leigði hann jörðina af hjónunum Valdimar Bjömssyni og Sigríði Ámadóttur, hafði þar nokkrar kýr og seldi mjólk, Sem hann keyrði á reiðhjóli heim til viðskiptavina sinna. Á fyrstu ámm sínum í Keflavík vann Guðmundur öll störf, sem til féllu, m.a. við skipavinnu og fiskverkun, lengst hjá Lofti Loftssyni eða af og til í þijú ár, en síðan um skeið í Hraðfrystihúsinu Jökli hf. Eftir að hann hætti í Jökli, fékk hann vinnu hjá Þórði Einarssyni húsasmíða- meistara og starfaði með honum að húsbyggingum og viðgerðum öðm hveiju næstu tvö ár. Seinna haustið, sem hann var hjá Þórði, vildi Þórður taka hann sem lærling, en var af ein- hveijum orsökum synjað um það af Iðnaðarmannafélaginu í Keflavík. Þetta sama haust sendi Þórður Guð- mund einhveiju sinni til þess að dytta að þaki á húsi Gunnars Sigur- finnssonar húsgagnabólstrara í Keflavík. Stóð þá svo á, að Gunnar vantaði laghentan mann til starfa, og réði hann Guðmund til sín um þriggja mánaða tíma að smíða dívangrindur. Tfeygðist svo úr sam- starfi þeirra, að Guðmundur vann hjá Gunnari í tvö ár eða lengur og nam hjá honum undirstöðuatriði húsgagnabólstrunar, en hóf þá sjálf- stæðan rekstur í iðninni og hafði af því lifibrauð sitt fram á elliár. Var hann um áratugaskeið eini starf- andi húsgagnabólstrarinn á Suður- nesjum og stofnsetti í Keflavík bólstrun þá, sem við hann er kennd og nú er rekin af Jóhanni syni hans, en þeir feðgar unnu saman að iðn- inni alla stund frá því að Jóhann komst til þrosk. Bólstraði Guð- mundur jöfnum höndum húsgögn, bílsæti, bátadýnur og -bekki og gerði einnig við mublur, sem þurftu lagfæringar með. Sá hann sjálfur um allar viðgerðir á tréverki, þar á meðal að pússa, bæsa og lakka pól- eraða fleti, en logsuðu og rafsuðu keypti hann út í þeim tilvikum, sem þörf var á slíku. Einnig smíðaði hann dívana lengi framan af, fyrst fjaðradívana, en síðar svampdívana eftir að plastsvampurinn kom til sögunnar. Þá seldi hann og útvegaði fólki hvers kyns vaming, sem að húsgagnabólstrun laut, s.s. áklæði, snúrur, svamp o.s.frv. Hafði Guð- mundui bólstrun sína fyrstu árin í skúr, sem hann hafði reist hjá Heið- arbýli. Klara kona Guðmundar vann með honum við fiskverkun hjá Lofti Loftssyni og í Hraðfrystihúsinu Jökli hf. á fyrstu árum þeirra í Keflavík, en starfaði síðan um íjög- urra ára skeið hjá Kaupfélagi Suð- umesja í Keflavík, fyrst á lager í aðalversluninni að Hafnaigötu 30, þá við afgreiðslu í útibúinu að Hafn- aigötu 62, sem Gunnar Jónsson veitti þá forstöðu, og loks við af- greiðslu í aðalversluninni að Hafn- aigötu 30. Eftir það réði hún sig til afgreiðslustarfa í Varðabúð að Hafhargötu 27 (síðar Hafnargötu 29), þar sem Þorvarður Arinbjam- a-son verslaði með vefnaðar- og pijónavörur o.fl. Vann hún þar hátt í ár eða allt til þess, að Þorvarður hætti kaupskap. Þá afgreiddi Klara yfir ár í útibúi Alþýðubrauðgerðar- innar í Keflavík, sem þá var til húsa sjávarmegin við Hafnargötu, milli Verslunar Ingimundar Jónssonar og Verslunarinnar Nonni og Bubbi, og var sambyggt þeirri fyrmefndu, en stóð andspænis húsi Ólafs Ingi- bergssonar. Eftir það vann hún lítið utan heimilis, en aðstoðaði mann sinn við bólstrunina eftir föngum. Þau Guðmundur og Klara bjuggu íHeiðarbýlinu 1943-65. Gerðuþau sér h'tinn garð sunnanvert við húsið, þar sem þau plöntuðu nokkmm tijám og blómum af ýmsu tagi, og varð þar fagurt um að litast, er fram liðu stundir. Árið 1955 byijaði Guð- mundur að grafa fyrir gmnni stein- húss þess, sem síðar reis að Faxa- braut 32a, tveggja hæða með risi. Unnu þau hjón bæði ötullega að byggingu þess, en langur tími leið, áður en húsið yrði fullbúið til ívem. Það var ekki fyrr en tíu ámm síðar, að hjónin fluttust úr Heiðarbýlinu í steinhúsið, en áður hafði Guð- mundur flutt bólstmn sína á neðri hæð þess. Bjuggu þau þar 1965-83. Guðmundur og Klara bám mjög sterkar taugar til Norðurlands og hefðu bæði kosið að Ufa þar allan sinn aldur, þótt örlögin höguðu því á annan veg. Um áramótin 1980-1981 settist Guðmundur í helgan stein, og svo er það í febrúarmánuði 1983, að gömlu hjónin taka sig upp og flytja búferlum norður á Sauðárkrók eftir 45 ára vem syðra. Bjuggu þau fyrst rúmt ár í leiguhúsnæði að Byggðasafn Suðurnesja Opið á laugardögum kl. 14-16. Aörir tímar eftir samkomulagi. Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769. 114 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.