Borgin - 01.11.1932, Page 45

Borgin - 01.11.1932, Page 45
mánaða gamalt, vildi svo til eina nótt, að það fjekk hræði- legar krampateygjur, og morg- uninn eftir þekti það ekki for- eldra sína. Læknirinn rannsak- aði það af mestu nákvænmi og fór ekki í launkofa með það, að orsakir sjúkdómsins væri að Lnna hjá foreldrunum. Eftir nokkra daga hvari' löm- unin úr limum barnsins, en skynsemin liafði sloknað, skynj- u-nin sljófgast og jafnvel eðlis- hvatirnar gerðu ekki lengur varl við sig. Drengurinn var orðinn rænulaus, ólæknandi fábjáni. Son minn, elsku son minn, hvíslaði móðirin með ekka, þegar hún var að stumra yfir syni sínum, er svo skelfilega hafði brugðist vonum hennar. Faðirinn var ekki mönnum sinnandi. Hann fylgdi lækninum til dyra. Yður get jeg sagt eins og er. Jeg liygg að ekkert sje við þessu að gera. Honum getur batnað og farið eðlilega fram líkamlega, en svo líka ekki meira. Já .... einmitt já, ansaði Mazzini. En segið mjer: Þjer haldið að þetta stafi al' erfð frá ? Já, frá föðurafanum, eins og jeg sagði yður strax og jeg sá drenginn. Frá móðurinni hel'- ui hann veilu fyrir brjóstinu. Annað lungað er ekki í lagi. Þjer ættuð að láta skoða lumn vel. Mazzini gal ekki sofið fyrir samviskukvölum, og hann unni drengnum sínum, litla fábján- anum, ennþá meira fyrir það, að á lionum hlaut að bitna taum- laus ólifnaður afans. Hann varð einnig að lmgga Bertu, vera altaf reiðubúinn til að sefa harm hennar, þegar hún ljet yfirbugasl af hinum sáru von- svikum. Eins og eðlilegt var þótti þeiin öll hamingja þeirra undir þ\ i komin, að þau gætu átt annað harn. Og það fæddist, var hrausl og kátt og endurlífgaði vonina um bjarta framtíð. En það var ekki orðið átján mánaða, þegar ])að fjekk sama krampann og fyrra barnið, og daginn eftir var það orðið sami andlegi aum- ingin n. Örvænting l'oreldranna varð ekki með orðum lýst. Það var þá víst, að í æðum þeirra rann gerspilt blóð, að fordæmingar- álög hvíldu vfir ástum þeirra. Og hann, sem var ekki nema tuttugu og átta ára, en hún tutt- ugu og tveggja, þau voru dæmd tit þess að geta ekki eignast heilbrigt afkvæmi. Nú báðu þau ekki um fegurð og gáfur, eins og fyrst, aðeins um barn, sem að minsta kosti hefði sæmilega heilsu á sál og líkama. Þótt þessi nýju vonbrigði sviði þeim sárt, þá gátu þau ekki sætt síg við þann dóm, sem virtist yfir þeim kveðinn. Og svo eign- uðust þau tvíbura, sem sýktusl 13

x

Borgin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Borgin
https://timarit.is/publication/691

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.