Borgin - 01.11.1932, Síða 54
Viðhafnarmikil samkvæmi verða
æ sjaldgæfari og eftir þvi verður
ástæðuminna að le'ggja mikið fje
i dýra kvöldkjóla, enda fæstar kon-
ui, sem hafa ráð á Jiví. Hinsvegar
ryður sjer óðum lil rúms ný gerð
af kjólum, sem er mitt á milli þess
að vera hversdagskjóll og sam-
kvæmislcjóll. Þessir „mil]ikjólar“
eru mjög hentugir fyrir leikhús,
minni háttar kvöldboð og ]>ví um
líkt og geta verið mjög ásjálegir og
enda hrein listaverk ef smekkvísi
og alúð er lögð i að sauma þá. Mynd-
in sýnir einn slikan kjól. Hann er
gerður í svörtum og hvítum lit. að
ofanverðu er ermin úr Crepe de
Chine og gengur svarla efnið upp
úr eins og gormur. Um úlnliðinn
lokast ermin af þröngri „manchettu".
Ef þjer eigið svartan kjól, sem
þjer eruð hættar að nota, þá getið
þjer auðveldlega með dálítilli hand-
lægni breytt honum i kjól eins og
Jiennan.
Það er ekki altaf ljett að eiga við
vetrarkápurnar, en ]>að er þó hrein-
asti leikur ])egar litla telpan á mynd-
inni á i hlut. Kápan hennar er með
allra nýasta sniði, „Empire-stíl“,
með „slaufukraga“ og „uppslagi“
eins og tískan krefst, ermarnar
sljettar með einum, svörtum hnappi
framan lil og að neðanverðu eru
hornin flegin. Kápan er úr ull, sem
nú er mikið notuð og sem einmitt
fer mjög vel á krakkakápum. Falleg-
usl er kápan i rauðum lit með gráu
skinni og má ])á lita hana svarta
að ári ef það hentar þá betur, þó
heppilegast væri auðvitað að sauma
hana úr brúnu eða gráu efni.
52