Frjáls verslun - 01.05.2002, Page 18
Smellið ykkur
Sumarmynd viðskiptalífsins
Frjáls verslun efnir til keppni um skemmtilegustu
sumarmyndina frá fyrirtækjum og starfsmannafélögum.
Þrjár vélar í verðlaun
Þrjár skemmtilegustu myndirnar hljóta verðlaun; nýju, litlu
stafrænu myndavélina frá Hans Petersen, L’espion. Vélin er
sumarsmellurinn frá Hans Petersen, „lyklakippu-myndavél"
sem þú gleymir ekki heima, nema þú gleymir lyklunum!
Myndirnar birtast I Frjálsri verslun
Sumarmynd viðskiptalífsins er tilvalinn leikur fyrir starfs-
mannafélög því að Fijáls verslun mun birta a.m.k. þrjátíu
smellnar myndir úr leiknum í bókinni 300 STÆRSTU sem
kemur út í haust! Þetta er því kærkomin leið til að koma fyrir-
tækinu ykkar á framfæri - og að sjálfsögðu í sumarskapi.
Sumarmynd viðskiptalífsins
getur verið af margs konar skemmtilegum atvikum og uppá-
tækjum innan fyrirtækja. Hún getur td. verða smellin mynd frá...
... sumarferðalagi starfsmannafélagsins
... grillveislunni á fyrirtækjalóðinni
... afmælisveislu einhvers vinnufélagans
... kaffitímanum
... matartímum
... hádegisferðinni á veitingahús
... keppni vinnufélaga í golfi
... gönguferð vinnufélaganna
... keppni þeirra í pílukasti
... keppni þeirra í keilu
... hjólaferðinni
... eða bara stritinu á vinnustaðmun í erli dagsins.
Með hverri mynd þarf að senda myndatexta. Auk þess þarf
að segja frá tilefninu, heiti fyrirtækisins og ljósmyndara
(sendanda).
Skilafrestur 1. september
Myndirnar þurfa að hafa borist Frjálsri verslun fyrir 1. september
nk. Hægt er að senda þær með hefðbundnum hætti á pappír - en
einnig á tölvutæku formi og verður upplausn myndanna þá að
vera 300 dpi (10xl5cm).
Ef verðlaunamynd er send inn í nafni starfsmannafélags þá
hlýtur það verðlaunin - ella fara þau til viðkomandi ljósmyndara.
Utanáskriftin er: Frjáls verslun,
Borgartúni 23,
105 Reykjavík.
(Sumarmynd viðskiptalifsins)
Netfangið er igh@heimur.is
Sumarmynd viðskiptalífsins Takið þátt - þvi leikurinn er ódýr og
smellin leið til að koma fyrirtækinu ykkar á framfæri.
Gerið sumarsmellinn frá Hans Petersen að
ykkar verðlaunamyndavél!
18