Frjáls verslun - 01.05.2002, Side 22
- En hvers vegna nafnið Columbia Ventures?
„Hátt menntunarstig þjóðarinnar, nýleg skattalækkun á hagnað
fyrirtækja og afar almenn og útbreidd kunnátta í ensku er
styrkur ykkar íslendinga og laðar að erlenda fjárfesta."
„Ég byrjaði með Columbia Ventures sem dóttur-
fyrirtæki Columbia Aluminum sem átti og rak ál-
ver í Washington-fylki,“ segir Kenneth Peterson.
„Nafnið Columbia er í höfuðið á samnefndu fljótí
sem framleiddi rafmagnið fyrir álverið og er eitt af
stærstu fljótum í Norður-Ameríku. Columbia
Ventures var í raun eignarhaldsfélag sem ijárfestí
í ýmsum verkefnum á níunda og tíunda ára-
tugnum. Arið 1996 varð Columbia Ventures sjálf-
stætt fyrirtæki þegar við skildum það að frá Col-
umbia Aluminum.“
- Ýmsir á íslandi velta þvi fyrir sér hvernig þú
hafir efiiast og hvort þú hafir komist í álnir af eigin
rammleik eða byggt upp veldi þitt á fjölskylduauöi.
„Ég kem ekki úr ijárhagslega sterkri ijölskyldu
heldur ósköp venjulegri, bandarískri millistéttar-
fjölskyldu. Foreldrar mínir brýndu það fyrir mér
að góð menntun væri mikilvæg og verðmæt. Ég
gekk í háskóla og útskrifaðist sem lögfræðingur.
Eftír það hóf ég að reka mina eigin lögfræðistofu í
Portland, borginni þar sem ég ólst upp og þar sem
foreldrar mínir búa ennþá. I byrjun ársins 1984 var
skrifað um það í blöðum og tímaritum að lítil álver
ættu í miklum vandræðum í rekstri. Þetta vakti
athygli mína og fór ég að lesa mér tíl um þessi mál
og fylgjast náið með þessu. Ahuginn var kvikn-
aður fyrir alvöru á áliðnaðinum og árið 1987 tókst
mér loks að kaupa álver í Washington-fylki sem
hafði verið lokað um tíma og var í eigu Astrala. Ég
skrapaði saman fé og hellti mér út í miklar skuldir,
lagði allt sem ég áttí undir. Ég fékk lán í bönkum.
En það dugði ekki tíl, ég þurftí einnig að leita til
vina og ættíngja um lán. Samningar um kaupin á
álverinu tókust, verksmiðjan var opnuð aftur, verð
á áli hækkaði; dæmið gekk upp.“
- Hversu stórt fyrirtæki er Columbia Ventures?
Foreldrar hans búa ennþá i borginni. Körfuboltí er uppáhalds-
íþróttín og að sjálfsögðu er hann harður fylgismaður Portland
Trailblaisers. Lestur bóka er eitt helsta áhugamálið og segist
hann hafa mest gaman af sagnfræðibókum. Sem strákur lærði
hann á píanó og hann fer höndum um nótnaborðið annað slagið.
„Ég spila alls ekki reglulega," bætír hann við.
Kenneth gifist konu sinni, Claudiu, árið 1978. Þau eiga tvö
börn, Emily, 17 ára, og Erik, 9 ára. Þau hittust fyrst á menntaskóla-
árunum en það var ekki fyrr en háskólaárunum sem þau byrjuðu
saman á föstu. Þau búa í borginni Vancouver í Washington-fylki í
Bandaríkjunum, steinsnar frá Portland. Raunar er það fljótíð Col-
umbia sem skilur á milli borganna og fylkjanna Oregon og Wash-
ington. Washington-fylkið, þar sem höfuðstöðvar Columbia
Ventures eru, liggur að landamærum Kanada við vesturströnd-
ina. Þetta er fylkið sem er efst upp tíl vinstri þegar horft er á landa-
kort af Bandaríkjunum. I Kanada er svo önnur borg sem ber
nafnið Vancouver og er hún raunar öllu stærri og þekktari.
„Heildartekjur á þessu ári verða um 150 milljónir
Bandaríkjadala (13,5 milljarðar kr.) þótt þær séu auðvitað háðar
heimsmarkaðsverði á áli. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 400
talsins, þar með taldir starfsmenn Norðuráls. Heildareignir í
efnahagsreikningi eru metnar á um 400 milljónir Bandaríkjadala
(36 milljarða króna). Fyrirtækið er með starfsemi í Bandaríkj-
unum, Islandi og Mexíkó. Norðurálverksmiðjan á Islandi er eina
álverið okkar, en auk þess erum við með verksmiðjur sem vinna
úr álinu, t.d. í Mexíkó. Við erum enn með flestar eignir okkar
bundnar í áliðnaðinum og langflestir starfsmenn okkar koma
þar við sögu. En við erum byijaðir að tjárfesta í öðrum rekstri,
eins og símafyrirtækinu Halló á Islandi."
- Hvernig hefur afkoman verið síðustu fimm árin, hefúr fyrir-
tækið verið rekið með hagnaði öll þessi ár?
„Átíðnaðurinn er afar sveiflukennd atvinnugrein og það er
afar sterk fylgni á milli afkomu og álverðs þannig að afkoman
22