Frjáls verslun - 01.05.2002, Blaðsíða 35
I fiallgöngu í Sviss. Hilmar með kærustu sína, Christinu Kind, á
háhesti.
Eclipse þoturnar taka sex menn í sæti. Þessi kostur, að leigja einka-
potu, er mjög hagkvœmur effleiri en einn ferðast saman, samkvœmt
upþlýsingum frá Aviace. Efferðalangurinn er bara einn er kostnaður-
inn svipaður og á Business Class.
milli mála að hugmyndin kviknaði í framhaldi af því. Við
fundum fyrir því að stjórnendur fyrirtækja fóru að nota einka-
þotur meira eftir hryðjuverkin og við gerum ráð fyrir að sú
þróun haldi áfram, ekki svo mikið vegna þess að menn óttist
um öryggi sitt heldur meira út af þægindunum. Fyrirtæki í
Evrópulöndum eins og Þýskalandi, Bretlandi og Frakklandi
þurfa að senda reglulega stjórnarmenn sina milli landa og
það er oft gert með mikilli fyrirhöfn. Ef stjórnandi þarf t.d. að
fara til Jótlands þá er betra fyrir hann að leigja sér einkaþotu,
sem flýgur með hann beint á staðinn, heldur en fljúga til
Kaupmannahafnar og taka síðan lest eða annað farartæki og
komast á áfangastað með mikilli fyrirhöfn. Einkaþotur spara
tíma og auka þægindi. Framleiðni þessara einstaklinga eykst
verulega," segir Hilmar. S3
Hver er þessi Hilmar?
Hilmar hefur millinafnið Agúst og er Hilmarsson, sonur
Hilmars Axels Kristjánssonar, sem um langt árabil var
ræðismaður íslands í Suður-Afríku, og Elínar Jónsdóttur
Dungal. Hilmar er af þekktri fjölskyldu athafnamanna því að
afi hans í föðurætt er Axel Kristjánsson, sem var forstjóri
Rafha í Hafnarfirði, og frændi hans er Gunnar Dungal, for-
stjóri í Pennanum-Eymundsson, en hann og móðir Hilmars
eru bræðrabörn. Hilmar er fæddur á íslandi 1964 en flutti sex
ára gamall til föður síns í Suður-Afríku og lauk þar barna-
skóla, menntaskóla og háskóla. Hann talar Jjölda tungumála,
þar á meðal afríkans, sem er náskyld hollensku. Hilmar á
flögur hálfsystkini. í móðurætt eru það Jón og Steinunn Þor-
valdsbörn, sem starfa við almannatengsla- og kynningarfyrir-
tækið Efli og vinna m.a. að kynningu á Aviace. í föðurætt eru
það Erlendína, lögfræðingur og enskukennari hér á íslandi,
og Kristín Kristjánsson, sem búsett er í Suður-Afríku.
Hilmar er sannkallaður ævintýramaður, alltaf tilbúinn til að
prófa eitthvað nýtt án þess þó að hætta lífi og limum. Hilmar
lærði rafeindaverkfræði og lauk MBA-prófi í Suður-Afríku en
fluttí til íslands að loknu námi. Hann lærði íslensku fyrir
útlendinga og fékk atvinnuflugmannsréttíndi á Islandi. Hann
lék einnig með íslenska landsliðinu í skvassi og enn í dag fer
hann á snjóbrettí á veturna, spilar tennis á sumrin og gengur
á fjöll. Hilmar var í viðskiptum meðan hann bjó hér á landi.
Hann stofnaði fyrirtækið Kvótamarkaðinn hf. árið 1991 og
vann faðir hans hjá honum.
Um 1995 seldi Hilmar Kvótamarkaðinn og keypti flugskól-
ann Loft en seldi svo flugskólann Loft fyrir þremur árum og
fluttíst til Sviss. Lítíð hefur farið fyrir honum síðan en þó bár-
Ævintýramaðurinn Hilmar á mótorhjóli.
Mynd: úr einkasafni
ust þær fréttír fyrir nokkrum árum að hann hefði gert tílboð
í svissnesku flugverksmiðjurnar Pilatus. Hilmar segist ekki
geta rætt það mál, tilboðið hafi komið mikið við svissneska
þjóðarsál og allt hafi orðið vitlaust. Hann vill hvorki neita né
játa því að eiga í fyrírtækinu, á þessu máli hvíli nú þagnar-
skylda. „En við skulum segja sem svo að ég fái að fylgjast vel
með þvi sem Pilatus er að gera,“ segir hann. 35
35