Frjáls verslun - 01.05.2002, Qupperneq 38
Búnaðarbankinn hagnaðist um 1,1 milljarö á síðasta ári, íslandsbanki hagnaðist um 3,1 milljarð á síðasta ári.
Taftal. Bi jnaðarbanki islands Islands- banki Landsbanki ísiands Sparisjóður véistjóra SPRON SEB
Stærð efnhags 199.582 348.211 268.926 20.254 38.570 11.381.874
Eigið fé 31.12.2001 12.959 20.287 15.505 2.994 3.192 433.353
Vaxtamunur. m.kr. 5.997 10.049 8.772 844 1.256 127.300
Vaxtamunur, % af efnahag 3,5% 3,1% 3,5% 4,4% 3,4% 1,1%
Vaxtamunur, % af meðalstöðu útlána 4,5% 4,1% 4,8% 6,2% 5,2% 2,1%
Kostnaóarhlutfali, % 70,8% 55,0% 66,2% 58,2% 76,2% 75,0% J
Kostnaðarhlutfall án gengishagnaðar. % 65,2% 52,1% 58,1% 56,3% 84,8% 83,3%
Kostnaður, % af efnahag 3,2% 2,2% 3,2% 3,2% 4,3% 2,1%
Hagnaður fyrir skatta 1.001 3.707 1.846 283 12 69.985 J
Hagnaður eftir skatta 1.062 3.140 1.749 418 238 49.419
Arðsemi eigin fjár 13,3% 19,2% 13,1% 17,5% 8,2% 11,9%
—*
Hver er eðlilegur
„Egget vel skilib einstakling sem mælir allt út frá eigin efnahag ad honum blöskri ad einhver banki eða
fyrirtæki hagnist um 3 milljarda á ári og hvað þá 143 milljarða. Með því að setja tölurnar í samhengi og
reyna þannig að fá þann hinn sama til að samþykkja að 143 milljarða hagnaður á ári geti verið „eðlilegur“
hefur mér reynst best að spyrja hvað hann vildi fá í vexti efhann ætti eina milljón á bankareikningi. “
Eftir Araa Tómasson, bankastjóra Búnaðarbankans Myndir: Geir Ólafsson
Fjármálafyrirtæki á íslandi eru oft borin saman við flármála-
fyrirtæki í öðrum löndum af mismikilli þekkingu. Gerðar eru
kröfur til að fjármálafyrirtæki hér standist erlenda sam-
keppni og er þá oft litið til Norðurlanda. Á það hefur margoft
verið bent að erfitt sé að gera raunhæfan samanburð á fjármála-
fyrirtækjum milli landa, en ég mun leitast við hér á eftir að gera
þennan samanburð engu að síður. Fyrir þá sem hafa metnað til
að bera saman sambærilega hluti er þó rétt að nefna eftírtalin
atriði, sem almennt er talið að valdi mismun á milli einstakra
banka annars vegar og milli landa hins vegar:
• Stærð
• Eðli starfseminnar
• Viðskiptaumhverfi
Byrjum á Stærðinni I nútíma bankarekstri er fastur kostnaður
tiltölulega mikill. Má í þessu sambandi nefna tölvur og tölvukerfi,
eftírlit með starfsemi og margvislegar opinberar skyldur, vöru-
þróun, lágmarks sérfræðiþekkingu til að uppfylla nauðsynleg-
ustu bankaviðskipti, erlend viðskiptasambönd og yfirstjórn. Allt
eru þetta dæmi um atriði sem minnstu bankar þurfa að uppfylla
til jafns við hina stærri. Að auki njóta minni einingar, þó að hlut-
fallslegur styrkur sé hliðstæður, lakari kjara á alþjóðlegum lána-
markaði en stærri einingar.
Allt gerir þetta það að verkum að stórar einingar njóta svo-
kallaðrar stærðarhagkvæmni, þ.e. þær geta dreift fastakostnað-
inum á fleiri viðskiptavini, auk þess að njóta hagkvæmni í kjörum
og öðrum aðföngum. Á móti kemur að þjónusta er oft betri hjá
minni aðilum; nálægð við viðskiptavini, skjót ákvörðunartaka,
betri yfirsýn o.sírv. Þetta hefur oft í för með sér lægri kostnað
fyrir viðkomandi banka, en oftast greiðir viðskiptavinurinn fyrir
með hærri gjöldum. Almennt er þó talið að aukinni stærð fylgi
hagkvæmni og lægri kostnaðarhlutföll.
Næst er fróðlegt að athuga mismunandi tegundir banka
eftir eðli starfsemi. Sumir bankar sinna einstaklingsþjónustu
nær eingöngu. Einkenni þeirra eru margar smáar afgreiðslur,
tjöldi afgreiðslustaða og margir starfsmenn miðað við umfang.
38